Læknablaðið - 01.08.1965, Qupperneq 60
82
LÆKNABLAÐIÐ
stjóra félagsins hefur nú fyrst
skapazt niöguleiki á því að
framkvæma þessa hugmynd
innan tíðar.
Skrifstofa félagsins annast
neyðarvakt samkv. samningi við
Sjúkrasamlag Reykjavikur, þ.e.
a.s. milligöngu gagnvart þeim
læknum, sem neyðarvakt taka
hverju sinni, og fær skrifstofan
til þess nokkurn stvrk frá
Sjúkrasamlaginu eftir samn-
ingi.
Eðlilega hafa öll þessi auknu
umsvif valdið töluverðri liækk-
un á kostnaði viðskrifstofuliald,
t. (1. liækkar á reikningi kostn-
aður við framkvæmdastjóra, að
sjálfsögðu vegna þess, að á fyrra
ári starfaði framkvæmdastjóri
okkar, Sigfús Gunnlaugsson við-
skiptafræðingur, aðeins frá 15.
október, en allt siðastliðið ár.
Hefur hann aðstoðað stjórn fé-
lagsins í hvívetna á árinu og
unnið áfram að útreikningum
sínum á kjörum lækna, svo sem
getið er í síðustu ársskýrslu.
Vann hann einnig að endur-
skoðun á greiðslum lækna frá
Sjúkrasamlaginu. Þegar líða tók
að síðustu árslokum, l'ór stjórn-
in þess á leit við Sigfús, að hann
yki starf sitt hjá skrifstofunni,
en honum var sá vandi á hönd-
um, að Skattstofan, sem er lxans
aðalstarfsvöllur, þurfti eiunig á
auknum kröftum hans að halda,
og tjáði hann stjórninni, að hann
myndi ekki geta aukið starf sitl
á þessu ári eða síðar, nema
segja starfi síuu lausu lijá Skalt-
stofunni.
Segja má, að ráðning fram-
kvæmdastjóra til félagsins hafi
gerhreytt allri vinnuaðstöðu,
ekki sízt hvað snertir nefndar-
störf og undirbúningsvinnu á
öllum útreikningum fyrir sainn-
inga, og tel ég óhætt að full-
yrða, að við höfuni fengið þann
pening ríflega endurgreiddan,
sem farið liefur til launa fram-
kvæmdastjórans. Þar sem ekki
voru horfur á fvrir áramótin,
að Sigfús gæti lálið í téð meira
starf en þegar var orðið, réð
stjórn félagsins Árna Þ. Árna-
son viðskiptafræðing og núver-
andi framkvæmdastjóra Stjórn-
unarfélags Islands til starfa hjá
félaginu, og hefur hann þegar
tekið við ýmsum málefnaftokk-
um hjá félaginu og starfar að
þeim af miklum áhuga og dugn-
aði. Aðstoð þessara tveggjagóðu
starfsmanna gerir okkur kleift
að sinna mörgum þeim verkefn-
um í þágu læknastéttarinnar,
sem ella yrði lítt tiægt að vinna
að, svo sem aukið bókhald skrif-
stofunnar o. fl.
Dagleg starfsemi skrifstof-
unnar liefur að öðru leyli hvílt
á herðum Guðrúnar Þórlialls-
dóttur, sem unnið hefur lijá fé-
laginu frá því 1961. Hefur hún
lagt mikla alúð við starf sitt,
enda hefur hún nú orðið mikla
þekkingu á öllum málefnum fé-
lagsins og rekstri skrifstofunn-
ar og nýtur sívaxandi trausts