Læknablaðið - 01.02.1966, Page 32
4
L Æ K N A B L A f) I «
Kristín E. Jónsdóttin
HVÍSÓTT (Q-FEVER) Á ÍSLANDI4)
lnngangur.
Árið 1935 kom uj)p hilasótt af óþekktum orsökum meðal
starfsliðs í sláturhúsi í Queensland í Ástralíu. Derrick gaf þess-
ari veiki nafnið Q-fever (Q=query), sem á islenzku mætti
kallast lwísótt (Vilm. Jónsson). Derrick tókst árið 1937 að
einangra sýkil þann, sem veikinni veldur, og tveim árum síðar
sýndu Burnet og Freeman fram á, að hann tilheyrði ricketl-
sium, og gaf Derrick honum nafnið Rickettsia hurnetii. Siðar
var stungið upp á að breyta nafninu í Coxiella burnetii eftir
Cox, sem ásamt Davis lókst árið 1938 að einangra sams konar
sýkil úr maurum frá Nine Mile Creek, Montana, U.S.A. Eru
nöfnin nú notuð á víxl, en vegna þess að sýkillinn er frábrugð-
inn öðrum rickettsium, fer t. d. í gegnum síur, gefur ekki já-
kvæða Weil-Felix svörun og veldur ekki útbrotasjúkdómi,
telja margir réttara að hafa hann í sérflokki og kalla hann
Coxiella. Hann þolir hita og kemísk áhrif miklu hetur en rick-
ettsiur, getur lifað af 50°C i a. m. k. 30 minútur og jafnvel
60°—70° í styttri tíma. Er venjuleg gerilsneyðing mjólkur því
ekki einlilít til að vinna á lionum. Hann getur lifað i fjölda-
mörgum dýrategundum, s. s. skordýrum, fuglum og spen-
dýrum. L 3, 4
Vegna hæfileika sýkilsins lil að þola þurrk og hita getur
hann lifað dögum saman í ryki, og er talið, að fólk smitist
oftast við að anda að sér ryki, sem herst frá grij)ahúsum eða
öðrum dvalarstöðum dýra, eða við að handleika dýraafurð-
ir, t. d. í sláturhúsum. 5, G Sýkillinn herst oftast úr nautgrip-
um, sauðfé eða geitum i fólk, en ekki er vitað til, að þessi
dýr sýni nein merki veikinda, þó að þau gangi með sýkilinn i
sér. Lifir hann í flestum líffærum þeirra, getur m. a. skilizl
út með mjólk, en sérlega mikið finnst af honum i liildum
þeirra og legvatni. Hefur verið sýnt fram á með tilraunum, að
dulin sýking í búfé getur orðið virk við fæðingu afkvæmis og
*) Frá TilraunastöS Háskólans í meinafræði aS Keldum. (ForstöSu-
maSur: Páll A. Pálsson. ASstoSarstúlka viS þessa rannsókn: Anna Eydal
stud. med.).