Læknablaðið - 01.02.1966, Síða 57
L Æ K N A B L A Ð IÐ
27
greiði sérfræðingsgjaldskrá, þarf almennur læknir að vísa sjúklingi
til sérfræðings. Ef sjúklingur kemur án tilvisunar, endurgreiðir sam-
lag einungis, eins og um hefði verið að ræða viðtal eða meðferð hjá
almennum lækni. Á sunnu- og helgidögum og á nóttum frá kl. 19—8
hækka gjaldskrár og endurgreiðslur um 75%. Víða gera læknar og
samlög með sér samkomulag um, að læknirinn taki aðeins greiöslu-
hluta sjúklings af honum, en sendi síðan reikning til samlags fyrir
þeim hluta, er það á að greiða.
Skýrt var frá fyrirkomulagi læknahúsanna í Svíþjóð og fyrir-
hugaðri þróun þeirra mála þar í landi.
í Þýzkalandi er ekkert skipulagt hópsamstarf lækna varðandi
almenna læknisþjónustu, og taldi þýzki fulltrúinn ekki líklegt, að
það yrði tekið upp í náinni framtíð.
Skýrt var í stórum dráttum fyrirkomulag á samvinnu lækna,
sem fyrirhuguð er í Domus Medica í Reykjavík.
Engar ákveðnar samþykktir voru gerðar, en fundarstjóri dró
þær ályktanir í lokin, að hópsamstarf lækna sé að öllum líkindum
framtíðarfyrirkomulag, sem framar öðru beri að hafa í huga, þegar
leitað er að nýjum og betri leiðum til skipulagningar á almennri
læknisþjónustu. Taldi hann, að mál þessi myndu þurfa að þróast um
árabil, áður en ljóst yrði, hvaða fyrirkomulag væri hentugast, og
þyrfti að sníða það eftir staðháttum í hverju landi um sig.
Eftir fundinn var þátttakendum boðið að skoða Det förenade
kliniska laboratoriet A. B., Helsinki 12, Frederikengatan 20 A. Þar eru
lækningastofur fyrir 20—30 lækna, sem bæði stunda almennar
lækningar og sérfræðistörf. Einnig eru þarna allrúmgóðar og vei
búnar rannsóknastofur í blóðvatnsfræði, blóðfræði, klíniskri efna-
fræði og sýklafræði. Starfsemi þessi fer fram í gömlu íbúðarhúsnæði,
sem breytt hefur verið eftir föngum til þess að gera það nothæít
fyrir þessa starfsemi. Einnig var fundarmönnum sýnd Dextra-klinikin,
þ. e. lækningastöð sú, sem lýst var fyrr á fundinum.
Um kvöldið voru fundarmenn gestir finnska læknafélagsins.
Sjúkrahús. Sunnudagurinn 14. nóvember var notaður til þess að
sýna okkur tvö ný sjúkrahús í háskólaspítalahverfi borg-
arinnar í Mejlans, en þar eru yfir 3000 sjúkrarúm. Alls eru sjúkra-
rúm í Finnlandi 56.912 eða 12.48 rúm á 1000 íbúa, þar með eru
talin berklahæli og hressingarhæli. Almenn sjúkrarúm að meðtöldum
rúmum fyrir geðsjúka eru 8.78 á 100 íbúa.
Fyrst sáum við þriggja ára gamlan geislalækningaspítala, sem
<—
Forystumenn finnska læknafélagsins (Suomen Liiákariliitto) ásamt
gestunum. Talið frá vinstri: Olavi Kilpinen (Finnlandi), Váinö Pensala,
framkvæmdastjóri félagsins; Ronald Gibson (Englandi), Ilkka Váán-
ánen varaformaður, Odd Bjercke (Noregi), P. O. Jensen (Danmörku),
Martti J. Karvonen formaður, Páll Sigurðsson, Hans Öigaard (Svi-
þjcð), Gerhard Larsen (Ncregi), Karl-Fr. Blom (Svíþjóð), Knud
Christensen (Danmörku), Max Blumenthal (Finnlandi), Arinbjörn
Kolbeinsson, W. Theopold (Þýzkalandi), Þórarinn Guðnason.