Læknablaðið - 01.02.1966, Qupperneq 61
LÆKNABLAÐIÐ
31
Sjúkratryggingin endurgreiðir sjúklingum % þess gjalds, sem
gjaldskrá hins opinbera ákveður, hvort sem reikningur læknisins er
í samræmi við hana eða ekki.
Lakartjánst Þá skal vikið nokkrum orðum að hlutverki og fyrir-
og Lákarlius. komulagi hinna tveggja hlutafélaga, er nefnd voru
Lákartjánst A/B og Lákarhus A/B.
Læknafélagið á rúman helming hlutafjár beggja félaganna, eins
og fyrr sagði, en einstakir læknar eiga hlutaféð að öðru leyti.
Lákarhus hefur það hlutverk að reisa hús eða útvega leiguhús-
næði undir lækningastarfsemi. Flest húsin í Stokkhólmi eru leiguhús,
vegna þess að þar er ekki unnt að fá lóðir og bygginga- og lóðakostn-
aður er félaginu ofviða. Utan Stokkhólms er hins vegar ætlunin að
reisa hús sem víðast.
Þegar staðsetning læknahúss er ákveðin, er tekið tillit til eftir-
farandi atriða: að húsið sé staðsett, þar sem önnur þjónusta fer fram,
svo sem í verzlanahverfi, og þá miðað við, að neðstu hæðir séu leigð-
ar undir verzlanir; að samgöngur að húsinu séu greiðar og bílastæði
næg, og loks, að nægilegur fjöldi fólks sé á því svæði, er húsið á að
þjóna.
Lákartjánst er hins vegar fyrirtæki, sem bæði sér um rekstur
læknahúsanna og er þjónustufyrirtæki fyrir almenna lækna, þá sem
starfa í læknahúsunum og aðra. Læknar, sem taka þátt í starfsemi
Lákartjánst, eru nú um 200, þar af eru 60, sem starfa í læknahúsum,
en gert er ráð fyrir, að þeim fjölgi mjög á næstu árum.
Þeir læknar, sem starfa í læknahúsunum, eru ráðnir hjá Lákar-
tjánst og þeim tryggð lágmarkslaun. Þeir geta orðið aðnjótandi ai-
mennra lífeyrissjóðsréttinda. Félagið sér um allan rekstur lækna-
húsanna og skapar læknum þar þau starfsskilyrði, er þeir óska eftir.
Allar tekjur af lækningastarfseminni ganga til félagsins, og það sér
um allt reikningshald og greiðslur. Þegar kostnaður af rekstri hvers
læknis hefur verið reiknaður, fær hann bónus til viðbótar föstum
launum í hlutfalli við það, sem inn hefur komið fyrir hans störf. All-
ir læknar í læknahúsunum hafa meira en lágmarkstekjur. Beri
rekstur einhvers læknis sig ekki, getur félagið sagt honum upp eftir
árið.
Öll starfsemin í læknahúsunum hefur verið skipulögð frá því sjón-
armiði, að tími læknanna og öll tæki nýtist sem bezt og sem minnsta
aðstoð þurfi að kaupa; í stuttu máli þannig að fullnýta allt, sem til
er keypt, án þess að spara.
Gjald læknis fyrir að vera félagi i Lákartjánst er nú 75 sænsk-
ar krónur á mánuði og 1% af rekstri læknisins. Flestir læknar greiða
nú um 1800 til 2000 kr. á ári fyrir þessa þjónustu. Fyrirtækið sér um
allt bókhald fyrir læknana, ekki aðeins það, er viðkemur starfinu,
heldur einnig þeirra einkabókhald, og kemur fram sem launagreið-
andi læknanna gagnvart skattayfirvöldum. Af þessum sökum njóla
þessir læknar annarra kjara um skattafrádrátt en aðrir, svo sem í
sambandi við ferðir á læknaþing, afskriftir af tækjum og húsmunum