Læknablaðið - 01.04.1973, Side 29
LÆKNABLAÐIÐ
57
Auk 7-oxa-13 prostynoic sýru er vitaS,
að indomethacin og aspirín hindra mynd-
un PG-efna í vefjum. Þetta hefur verið
sýnt fram á með tilraunum á ýmsum líf-
færum. Það magn, sem þarf að vera í blóði
af acetylsalicylsýru til að hindra myndun
PG, er mjög lágt og mun hærri konsentra-
tionir nást auðveldlega í blóði með venju-
legum lækningaskömmtum af lyíi þessu,
jafnvel þegar tillit er tekið til að það
binzt á protein í plasma.
Aspirín hefur verið mikið notað sem
lyf í næstum 75 ár og áhrif þess hafa
mikið verið rannsökuð allan þann tíma,
en þó er enn ekki vitað, hvernig það verk-
ar. Nú má færa sterkar líkur að því, (þó
enn sé það engan veginn sannað), að aspir-
ín verki að mestu eða jafnvel eingöngu
með því að draga úr eða stöðva myndun
PG-efna.-9 27 7 Dæmi: Mörg PG-efni valda
hita, ef þeim er sprautað inn í heila og
PGE, er eitt sterkasta pyrogenefni, sem
þekkt er. Hitalækkandi verkun aspiríns er
því hægt að skýra með hindrun á myndun
PG í heilaveí. Aspirín hefur ertandi áhrif
á slímhúð maga, en hægt er að skýra það
með minnkaðri myndun PG og þar með
aukinni sýruframleiðslu (sjá ofar). PG-
efni eiga þátt í eðlilegu bólgusvari líkam-
ans eins og áður segir. Verkun aspiríns
á bólgur er hægt að skýra með minnkaðri
framleiðslu PG. Ef þessi skýring á verkun
aspiríns reynist vera rétt, vakna ýmsar
nýjar spurningar um lítt könnuð áhrif
þessa lyfs.
LÍFEÐLISFRÆÐILEGT HLUTVERK
PROSTAGLANDINS
Hér að framan hefur verið minnzt á
margt, sem PG-efni gætu átt þátt i að
stjórna. T. d. getur verið, að PGA eigi
þátt í stjórnun blóðþrýstings, flutningi á
vatni og jónum yfir epitelfrumur (saman-
ber áhrif þess á þvag og útskilnað nat-
riums og kaliums), sýrumyndun í maga,
niðurbroti fitu og fleira.
Margt annað, sem til greina kemur, er
þó ótalið. Það hefur t. d. lengi verið vitað,
að sæði karla er einstaklega ríkt af PG-
efnum. Einnig er langt síðan stungið var
upp á því, að þetta mikla magn PG í sæði
væri nauðsynlegt fyrir flutning sæðis-
frumna upp í gegnum legið til móts við
egg'ið. Nú hafa Bygdman og félagar3 gert
samanburð á PG-efni í sæðisvökva frá
körlum, sem nýlega höfðu getið barn og
kvæntra karla í bamlausu hjónabandi, þar
sem engin skýring fannst á því, að hjónin
eignuðust ekki barn. Magnið af PGE í
sæði frá fyrri hópnum var að meðaltali
54.4 pg per ml, en aðeins 18.1 pg per ml
í barnlausa hópnum. Þetta er mjög mark-
tækur munur, P minna en 0.001. Enginn
munur var á magni PGA eða PGB í sæði
frá þessum tveim hópum. Ekki er þó
alveg ljóst, hvernig PGE ætti að hafa þessi
áhrif; það hefur engin áhrif á hreyfanleika
eða súrefnisneyzlu sperma. Á hinn bóg-
inn er vitað, að PGE2 geíið intravaginalt
getur íramkallað fósturlát. Hugsanlegt er,
að prostaglandin, sem berst inn í legið við
samfarir, geti stuðlað að flutningi sæðis-
fruma inn legið með beinum áhrifum á
það cg legpípur (tuba uterina). Áður var
minnst á þann möguleika, að snögg hækk-
un á PGF2 alía gæti verið sá hvati, sem
til þarf, til að lcoma af stað fæðingu.
Samspil PG-efnanna og margra hormona
er flókið mál, sem að mestu hefur verið
sleppt hér. Þó var minnst á samband PG
cg ACTH og TSH og að PGEX dregur úr
blóðþrýstingsaukningu af völdum adrenal-
íns cg auknu niðurbroti fitu af völdum
sama efnis og ýmissa annarra hormóna.
Það eru að minnsta kosti tveir megin-
snertipunktar í verkun hormóna og PG:
a) Margir hormónar verka á frumur með
því að breyta virkni hvata, sem er að
finna á yfirborði frumunnar og kallast
adenylcyclase. PG verkar á þetta sama
kerfi. b) Virkni margra hormóna er háð
magni frírra calciumjóna inni í frumum
cg aðrir hormónar verka e. t. v. með því
að fría þessa jóna. PGE^ eykur magn
calciumjóna í sumum frumum.
Ólíklegt er að PG sé aðalstjórnunarefni
í nokkrum þessara þátta, heldur má búast
við, að önnur efni hvetji eða letji myndun
PG á staðnum og valdi þannig breytingum
á magni þess. Þá væri PG milliliður í at-
burðakeðju og gæti, við vissar aðstæður,
hvatt sumar breytingar, en verið hemill
á aðrar. Þessi önnur stjórnunarefni gætu
verið hormónar.
Rannsóknir á lífeðlisfræðilegu og líf-
efnafræðilegu hlutverki PG í heilbrigðurq