Læknablaðið - 01.04.1973, Qupperneq 40
68
LÆKNABLAÐíÐ
Fáein dæmi sýna, hvernig ofangreindir
möguleikar eru nýttir:
1. Á endastöð (sjá mynd 1), sem staðsett
er í vaktherbergi kliniskrar deildar, er
sett inn pöntun um bráða blóðrannsókn.
Þessi eina athöfn hefur keðjuáhrif:
— pöntunin er skráð á sjúklingaskrá
tölvunnar
— pöntunin prentast á endastöð rann-
sóknastofu
— bjalla, sem er innbyggð við endastöð
rannsóknastofu, hringir til að vekja
athygli á bráðri pöntun
— vinnugögn handa meinatæknum eru
prentuð á endastöð rannsóknastofu
— staðfesting þessarar pöntunar prent-
ast á endastöð deildarinnar. Þegar
rannsókninni lýkur eru upplýsingar
settar inn í tölvu við endastöð rann-
sóknastofu.
Þetta leiðir margt af sér:
— útkoma er prentuð á endastöð deild-
arinnar
— bjöllunni á deildinni er hringt (ef
óskað)
— útkoman bætist við sjúkraskrá ein-
staklings eða við skrá ósamþykktra
niðurstaðna, þ. e. þær útkomur, sem
á eftir að samþykkja af hálfu rann-
sóknastofu
— útkoman bætist, ef þess er óskað,
við safn statistiskra upplýsinga rann-
sóknastofu.
Ætíð er hægt að grennslast eftir þessari
rannsókn í gengum endastöð. (Er búið
að panta hana? Er útkoma komin? o. s.
frv.).
2. Á endastöð deildarinnar er lyfjaskipun
sett inn. Löng keðja er sett í gang:
— skipunin prentast á viðtengdan
prentara til staðfestingar og til ör-
yggis. Ef skipunin er ófullkomin eða
lyfin hafa óæskileg víxláhrif við
önnur lyf, sem sjúklingur fær, gæti
athugasemd komið strax fram á
skermi, þannig að hægt væri að leið-
rétta eða breyta skipuninni í tæka
tíð. Skipunin er skráð á vinnuáætlun
fyrir viðkomandi sjúkling í tölvunni.
— með reglulegu millibili prentasl á
endastöðinni listi yfir öll lyf, sem
á að taka til fyrir næsta tímabil,
ásamt miðum fyrir lyfjabakka með
nafni sjúklings og lyfjaheiti
— til að tryggja, að lyfin hafi verið gef-
in, gæti tölvan beðið um staðfestingu