Læknablaðið - 01.04.1976, Qupperneq 8
54
LÆKNABLAÐIÐ
vegna rennslis í gegnum ductus frá aorta
yfir i arteria pulmonalis. Þegar þrýstings-
mismunurinn eykst frekar, en það skeður
oft ekki fyrr en barnið er orðið nokkurra
ára gamalt, þá verður stöðugt rennsli í
gegnum ductus, bæði í systolu og í diastolu
og óslitið óhljóð heyrist — vélarhljóð.
Þetta óhljóð er hægt að rita niður á papp-
ír með hljóðritunarvél eða phonocardio-
graf og er stuðningur að því við greiningu.
Hjartarafrit er oftast eðlilegt eða sýnir
stækkun á vinstra afturhólfi hjartans.
Röntgenmynd af brjósti sýnir oft mjög
áberandi pulmonalboga og stækkun á
vinstra aftur- og forhólfi hjartans og stund-
um er aukin æðateikning í lungum. Með
hjartaþræðingu og þá um leið súrefnis-
mælingum og jafnvel æðamyndatöku er
auðvelt að greina ductus. Oftast er ductus
greindur kliniskt við hlustun. Hið auð-
þekkta vélarhljóð heyrist bezt við vinstri
sternalrönd í 2.-3. rifjabili. Það heyrist
einnig frá sternalröndinni út undir axilla
eða niður undir apex. Tíðni meðfæddra
hjartagalla er talin vera um 6/1000 liíandi
fædd börn og þar af eru 10.5-17% opinn
ductus eingöngu, en dálítið mismunandi
eftir því um hvaða uppgjör er að ræða.
Það er ekki ennþá vitað hver tíðni þessa
galla er hér á landi. Þessi galli er helm-
ingi tíðari hjá stúlkum en drengjum.
Galen lýsir fyrstur ductus arteriosus,
en hann var fæddur árið 131 A.D.4 Síðan
lýstu ýmsir þessum gangi bæði hjá fóstr-
um og eldri einstaklingum. Harvey (1628)
sýndi fram á þýðingu þessa gangs í blóð-
rás fóstursins. í byrjun þessarar aldar
voru fyrst uppi ráðagerðir um. að loka
þessum gangi, en það var samt ekki íyrr
en árið 1937, að Strider, amerískur lækn-
ir, reyndi að loka ganginum, en það tókst
ekki og sjúklingurinn dó. Þann 26.8. 1938
tókst svo R. E. Gross, bandarískum lajkni,
að loka ductus arteriosus á 7 ára gamalli
stúlku. Tókst aðgerðin ágætlega og má
segja, að það hafi verið upphafið að nú-
tíma. hjarta- og æðaskurðlækningum, en
þeirri grein handlæknisfræðinnar hefur
fleygt fram hin síðari ár.
Aðgerðir vegna opins ductus arteriosus
hafa verið framkvæmdar í Landspítalan-
um frá því árið 1962. Fyrsta aðgerðin var
gerð þann 29. janúar það ár. Var það 6
ára gömul stúlka, sem hafði dæmigerð ein-
kenni um opinn ductus arteriosus. Heilsað-
ist henni ágætlega eftir aðgerð.
TAFLA 1
Fjöldi og kyn op.sj. á ári.
Stúlkur Drengir
1962 2
1963
1964 3 1
1965 1 1
1966 1 1
1967 1 1
1968 1
1969 2
1970 3 1
1971 2 1
1972 2
TAFLA 2
Einkenni fyrir aðgerð hjá 24 sjúklingum.
Aldur við aðgerð
Einkenni fyrir aðgerð: 0-4 5-9 10-14 >15
Öndunarfærasýkingar 5 2
Hjartabilun 6 2
Engin einkenni 3 8 1 2
Finnst við skoðun:
Vélarhljóð 10 11 1 2
Önnur óhljóð
Óeðlileg Ekg. 8 7 1 1
Óeðlilegt Rtg. 9 10 1 2
Óeðlileg Pkg. 5 4 1 1
Undanfarin 11 ár hafa verið gerðar að-
gerðir á 24 sjúklingum vegna þessa ágalla,
sbr. töflu I. Stúlkur voru í meiri hluta
eða 18, sbr. töflu III. Sjúklingar voru á
aldrinum frá 11 mánaða til 24 ára við
aðgerð. Meirihluti eða 14 hafði ekki fund-
ið til neins sjúkleika, var einkennalaus,
sbr. töflu II. Höfðu flestir verið sendir til
athugunar vegna hjartaóhljóða, er heyrzt
höfðu við almenna skoðun, oft skólaskoð'-
un. Átta höfðu einkenni um byrjandi
hjartabilun og 7 í tveimur yngstu flokk-
unum voru færð til læknis vegna síendur-
tekinna sýkinga í öndunarfærum. Við
hjartahlustun heyrðist dæmigert vélar-
hljóð hjá þeim öllum. Röntgenmyndir aí