Læknablaðið - 01.04.1976, Blaðsíða 18
60
LÆKNABLAÐIÐ
Á Húsavík heÉur hópstarf lækna við heilsugæzlu staðið samfellt síðan 1966. Þessi mynd
er tekin fyrir nokkrum árum og sýnir, talið frá vinstri: Odd Bjarnason, Gísla G. Auð-
unsson og Örn Arnar. Gísli er enn starfandi við sjúkrahúsið á Húsavík, Oddur starfar á
Landspítalanum en Örn Arnar dvelst vestanhafs. Á sjúkraliúsinu starfa auk Gísla þeir
Árni Ársælsson, Ingimar Hjálmarsson, Guðmundur Óskarsson og Hafsteinn Skúlason.
(Ljósmyndastofa Péturs, Húsavík).
1973 væri ákveðið að Reykjavik skuli skipt
niður í heilsugæzluumdæmi og verði
heilsugæzlustöð í hverju umdæmi. Ljóst er
þó að heilsugæzlustöðvakerfið í Reykja-
vík verður að þróast smátt og smátt við
hliðina á gamla númerakerfinu. Gert er
ráð fyrir að heilsugæzluumdæmi í borg-
inni verði samtals níu með 6-17.500 íbúum
í hverju umdæmi. Skúli sagði orðrétt:
„Fyrst var gengið út frá því, sem skýrt
er tekið fram í lögunum um heilbrigðis-
þjónustu, að heilsugæzlustöðvar skuli stað-
settar við sjúkrahús, þar sem þau eru
fyrir hendi. Við Landakotsspítala yrði
reist heilsugæzlustöð fyrir hluta Vestur-
bæjar og gamla Miðbæinn milli Hring-
brautar annars vegar og Lækjargötu og
Ftíkirkjuvegar hins vegar og í þessu um-
dæmi yrðu samtals 6.600 íbúar. í Domus
Medica, eða þegar fram líða stundir, á
Landspítalanum, yrði gert ráð fyrir heilsu-
gæzlustöð, er tæki yfir íbúa Þingholfs og
Norðurmýrar svo og hluta af Hlíðunum,
og yrði það stærsta heilsugæzlustöðin, með
um 17.500 manns. Borgarspítalinn í F'oss-
vogi tæki við Fossvogshverfi og Bústaða-
hverfi, en þar búa um 12.000 manns. Fyr-
ir íbúa Háaleitis, hluta af Hlíðum og Teig-
ana, svo og vestasta hluta Kleppsholts
yrði heilsugæzlustöð staðsett við Lágmúla,
en þar er húsnæði tengt rannsóknastöð
Hjartaverndar, sem ákjósanlegt væri að
útbúa sem heilsugæzlustöð. Til mála kæmi
að reisa heilsugæzlustöð á Eiðsgranda, er
tæki yfir Melahverfi svo og Skerjafjörð,
en þar búa nú samtals um 8.000 manns,
með fyrirsjáanlegri aukningu innan 10 ára
um 3.500 manns. Fyrir íbúa Heima, Voga
og Kleppsholts væri æskilegt að finna hús-
næði, er hentaði, t. d. í Glæsibæ, en að
öðrum kosti yrði reist þar í grenndinni
sérstök stöð. Þegar hefur verið ákveðið
að stofnsetja heilsugæzlustöð við Árbæjar-
hverfi með samtals 4.000 íbúa, með fyrir-
sjáanlegri aukningu um 2.000 íbúa á næstu
10 árum og er það í Hraunbæ 102. í Breið-
holtshverfum verður að gera ráð fyrir
tveim heilsugæzlustöðvum, annars vegar
fyrir Breiðholt I og II, með væntanlegan
íbúafjölda um 13.000 manns og í Breið-