Læknablaðið - 01.04.1976, Page 47
LÆKNABLAÐIÐ
79
Tillöguflutningur
Eftirfarandi tillögur voru samþykktar á
fundinum:
„Aðalfundur L.I. 1974 ályktar: Læknastétt-
inni er sýndur trúnaður á margvislegan hátt,
ekki sízt á þann hátt, að fjölmargir einkaaðilar
jafnt sem opinberir aðilar leita til meðlima
hennar sem votta í hinum margvíslegustu til-
vikum.
Vill fundurinn áminna alla meðlimi L.I. að
gæta ákvæða 5. gr. læknalaga, svo og Codex
Ethicus, í þessu efni.“
„Aðalfundur L.I. haldinn á Hallormsstað
dagana 30. og 31. ágúst 1974 lýsir stuðningi við
þá stefnu félagsins, sem mótuð var á síðasta
aðalfundi. varðandi væntanlegar breytingar á
fóstureyðingarlöggjöfinni.
Fundurinn er samþykkur þeim tillögum á
breyttri fóstureyðingariöggjöf. sem stjórn fé-
lagsins hefur lagt fyrir heilbrigðis- og trygg-
ingamálanefnd Alþingis.
I þessum tillögum felst veruleg rýmkun nú-
gildandi löggjafar og viðurkenning á siálfsá-
kvörðunarrétti konunnar, þótt hafnað sé tak-
markalausum ákvörðunarrétti hennar.
Hins vegar varar aðalfundur L.I. við því, að
læknar séu neyddir til að framkvæma ónauð-
synlegar aðgerðir á fólki. sem yrði óhjákvæmi-
leg afleiðing frjálsra fóstureyðinga."
„Aðalfundur L.I. 1974 ályktar: Hin nýju lög
um heilbrigðisþjónustu gerir ráð fyrir stór-
auknum framkvæmdum í heilbrigðismálum.
Ekki verður séð. að með síðustu fjárlögum
hafi verið varið fé til útgjalda, sem óhiákvæmi-
lega leiða af framkvæmd laganna, til þess að
ekki verði um beinan samdrátt að ræða frá
því, sem var fyrir setningu þeirra.
Fundurinn skorar á Alþingi að sjá fyrir
nægilegum fjárveitingum til að hrinda í fram-
kvæmd þeim nauðsynlegu úrbótum i heilbrigð-
isþjónustunni, sem lögin gera ráð fyrir.“
„Aðalfundur L.I. 1974 ályktar: Lög um heil-
brigðisþiónustu frá 1973 marka tímamót í gerð
heilbrigðislöggjafar hér á landi og boða nýja
stefnu í skipulagningu heilbrigðisþjónustunnar
á Islandi.
Hins vegar hafa II. kafli ásamt grein 19,1
enn ekki tekið gildi, og hefur það þegar valdið
erfiðleikum í framkvæmd heilbrigðisþjónust-
unnar.
Fundurinn beinir þeim eindregnu tilmælum
til Alþingis og ríkisstjórnar. að málið verði tek-
ið upp að nýju og kveðið á um gildistöku lag-
anna. enda verði héraðaskiptingin endurskoðuð
og henni breytt.
..Aðalfundur Læknafélags Islands haldinn
dagana 30. og 31. ágúst 1974 skorar á ríkis-
stjórnina að flýta sem mest skÍDulagningu og
unpbyggingu heilsugæzlustöðva á Stór-Reykja-
víkursvæðinu og bæta þannig v'nnuaðstöðu
heimilislækna og þjónustu við fólkið á þessu
svæði.
Tillögunni fylgdi svohlióðandi greinargerð:
..Þrátt fyrir nokkra fiölgun á útskrifuðum
læknum úr læknadeild á undanförnum árum
hefur gætt vaxandi örðugleika við framkvæmd
heimilislæknaþjónustu í Reykjavík og er nú
svo komið, að fjöldi fólks er heimilislæknalaus
og þeir heimilislæknar, sem nú starfa á þessu
svæði, hafa mun meira vinnuálag en eðlilegt
getur talizt. Yngri læknar virðast ekki vilja
ráða sig til vinnu sem heimilislæknar á þessu
svæði og má eflaust kenna um lélegri starfsað-
stöðu. Skipulagning heilsugæzlustöðva er nokk-
uð á veg komin, en því miður hefur ekkert orð-
ið úr framkvæmdum enn sem komið er. Slíkar
heilsugæzlustöðvar munu bæta mjög þjónustu
við fólkið og starfsaðstöðu lækna og gera þessi
störf fýsilegri en nú er. Er því mjög mikil-
vægt, að stjórnin gefi þessum málum gaum
hið bráðasta."
„Aðalfundur Læknafélags íslands 1974 sam-
þykkir að fela stjórn L.I. að beita sér fyrir
skipan nýrrar nefndar til Þess að vinna að
gagnasöfnun og tillögugerð varðandi skipulag
framhaldsmenntunar íslenzkra lækna heima og
erlendis."
Greinargerð:
Aðgerðir til þess að skipulegg.ia framhalds-
nám lækna á Islandi eru miög aðkallandi. Má
í því sambandi minna á, að íslenzkir læknar
eiga nú í vaxandi örðugleikum með að fá við-
eigandi námsstöður erlendis. Að öðru leyti vís-
ast til fyrri álitsgerðar F.I.L.B. um þetta mál.
Tillögunni var vísað til allsherjarnefndar.
„Aðalfundur L.I. 1974 beinir þeim tilmælum
til stjórnar L.I. að hún leiti eftir samstarfi við
heilbrigðisyfirvöld um tilraun til þess að gera
áætlun um æskilegan læknafjölda fyrir Island
og nýliðunarþörf einstakra sérgreina."
„Aðalfundur Læknafélags Islands haldinn
dagana 30. og 31. ágúst 1974 beinir þeim til-
mælum til heilbrigðisyfirvalda og borgarstjórn-
ar að hafnar verði framkvæmdir við byggingu
siúkradeildar fvrir langlegusjúklinga við
sjúkrahúsin í Reykjavík hið bráðasta.
Mikill skortur er á rúmum fyrir langlegu-
siúklinga á Stór-Reykjavíkursvæðinu og á
siúkradeildum, er sinna eiga bráðum tilfellum.
Allt að 30 ofn sjúkrarúmanna er nýtt fyrir lang-
legusiúklinga og hamlar þetta m.iög eðlilegri
starfsemi og nýtingu þessara deilda. Bvgging
langlegudeilda hefur verið látin sitia á hakan-
um um árabil og slíkum siúkrarúmum ekki
fiölgað á Stór-Revkjavíkursvæðinu þrátt fyrir
vaxandi þörf. Við svo búið getur ekki staðið
lengur o«r því vill fundurinn beina beim til-
mælum til ríkisstiórnar. að hafizt verði handa
nú þeear um fiölgun siúkrarúma fvrir lang-
leeusiúklinga. Telur fundurinn eðlilegast, að
slíkar deildir vrðu byggðar við núverandi
sjúkrahús í Revkiavík og mætti á bann hátt
nvta betur þjónustudeildir og starfslið siúkra-
húsanna."
..Aðalfundur L I. 1974 Ivsir ánægiu sinni með
störf og álit göngudeiidarnefndar L.Í.. sem
skinuð var samkvæmt t.illögu siðasta aðalfund-
ar L.I.. en fundurinn vill benda á nauðsvn b°ss.
að sem fyrst sknnist tengsl á milli göneud°ilda
SDÍta.lanna og beiisugæzlustöðvanna á Stór-
Revkiavíkursvæðinu á landinu öllu.“
Tekinn var fyrir G. liður 8. máls frá 30. ágúst