Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.1976, Page 57

Læknablaðið - 01.04.1976, Page 57
LÆKNABLAÐIÐ ASTRA - SYIMTEX Gigtsjúkdomastyrkur ASTRA SYNTEX býður fram árlegan styrk að upphæð 25.000 sænskar krónur til rannsókna á gigtsjúkdómum. Styrkurinn takmarkast við Norðurlönd og er úthlutað sameiginlega af ASTRA SYNTEX og gigtsjúkdómafélögunum á Norðurlöndum. TILGANGUR Tilgangurinn með styrkveitingunni er að efla lyfhrifafræðilegar og klíniskar rannsóknir á gigtsjúkdómum. Þetta skal fr'amkvæmt á þann hátt, að styrkurinn sé notaður til þess að greiða kostnað vegna tæknilegs starfsliðs og/eða stjórn- unar, sem nauðsynleg er til þess að unnt sé að ljúka ákveðnum rannsóknar- störfum, sem stjórnað er af námsmönnum. Styrkinn má einnig nota sem kaup- uppbót til ungra fræðimanna, sem nota tómstundir sínar til þess að gera skýrsl- ur yfir rannsóknirnar. STYRKFJÁRHÆÐ Styrkurinn er að upphæð tuttuguogfimm þúsund (25.000) sænskar krónur á ári. Við hverja úthlutun má ekki skipta styrknum milli fleiri en tveggja styrk- þega og skal hlutur annars vera a.m.k. fimmtán þúsund (15.000) sænskar kr. ÚTHLUTUNARNEFND Mat umsókna og val styrkþega er í höndum nefndar, sem í eiga sæti fulltrúar frá gigtsjúkdómafélögum á Norðurlöndum og frjá ASTRA-SYNTEX AB. Árið 1977 eiga þessir sæti í nefndinni: Dr. Olle Lövgren, Svíþjóð formaður, próf. Veikko Laine, Finnlandi, dr. med. Hans Graudal, Danmörku, dr. med. Einar Munthe, Noregi, dr. Jón Þorsteinsson, íslandi og herra Göran Berglund, ASTRA- SYNTEX AB (ritari). UMSÓKNIR Skrifleg umsókn í tvíriti áritist til úthlutunarnefndar gigtsjúkdómastyrks ASTRA-SYNTEX AB. og sendist til Jóns Þorsteinssonar, læknis, Landspitalan- um, Reykjavík, fyrir 28.2 1977. MEÐ UMSÓKN SKAL FYLGJA: a) Upplýsingar um starfsferil ásamt skrá yfir þær greinar umsækjanda um viðfangsefni á þessu sviði, sem birtar hafa verið. b) Skilgreining á takmarki rannsóknarverkefnis, ásamt áætlun um fram- kvæmd. c) Áætlun tíma og kostnaðar um framkvæmd þeirrar rannsóknar, sem sótt er um styrkina fyrir. d) Upplýsingar um hvort leitað sé eftir fjárhagsaðstoð hjá öðrum aðilum til sömu rannsóknar. AFHENDING Afhending styrksins fer fram á ráðstefnu sem haldin verður á árinu 1977, sem helguð hefur verið gigtsjúkdómum. Ákvörðun um afhendingu verður birt í árs- byrjun 1977. Niðurstöður nefndarinnar verða birtar umsækjendum í mars 1977. Nafn styrkþega verður ekki birt opinberlega fyrr en við afhendingarathöfnina. UTBORGUN Útborgun fer fram við afhendingu styrksins. GREINARGERÐ Eigi síðar en 1 ári eftir úthlutun eru styrkþegar skuldbundnir til að senda styrk- nefndinni skriflega greinargerð um niðurstöður sínar, ef mögulegt er í formi greinar til birtingar í fagtímarit. Styrknefndin

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.