Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Page 4
föstudagur 26. mars 20072 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Dagfari verður að játa að hann skilur ekki alveg hina pólitísku um- ræðu þessa daganna. Ástæðan er kannski ekki sú að hann sé svona vit- grannur, frekar að menn eru sífellt að tyggja einhver óskiljanlegt heiti. Auð- lindaákvæðið er eitt sem hann skilur ekki og einnig þjóðareign. Ef Dagfari er að ná þessu rétt þá vill Framsókn festa merkingarlausa klausu um þjóðareign í stjórnar- skránna. Mönnum finnst víst þjóð- areign vera merkingarlaust orð. Að minnsta kosti of loðið. Eðlilega kemur orðið mönnum spánskt fyrir sjónir. Þjóðareign er eitt- hvað sem Dagfari var löngu búinn að gleyma sjálfur. Miðað við skuldastöð- una í bankanum, illa augnráðið sem hann fær á vídjóleigunni og skattinn sem sífellt krafsar í veskið - þá telur Dagfari sig ekki einu sinni ráða yfir eigin sálarheill. Það er hægt að skilja góðan vilja Framsóknarmanna. Þá lang- ar að minna okkur á, að þrátt fyr- ir bága skuldastöðu, eigum við alla vega fjandans fiskinn í kringum okk- ur. Raunar minnir Dagfara að fyrir mörgum árum hafi Framsókn einnig komið á kvótakerfinu. Sem er annað óskiljanlegt hugtak. En þarna telur Dagfari að punkt- urinn sé kominn. Það sem pólitíkusar munu rífast um fram að kosningum verða ekki bág kjör öryrkja eða aldr- aðra, eða heilbrigðiskerfið eða skuld- ir heimilanna og svo framvegis. Það sem við ræðum verður fiskur og aftur fiskur. Það gerðum við líka fyrir fjórum árum. Og reyndar fjórum árum þar áður. Sennilega líka þar áður. Dagfari leggur því til að menn ein- faldi umræðuna svo hann geti fylgst almennilega með þessu. Í stað þjóð- areignar verður sagt, feitir kvótakall- ar. Auðlindarákvæðið verður kallað samviskubit Framsóknarflokksins. Og kvótakerfið verður rán um hábjartan dag. Þá fyrst getur Dagfari tekið upp- lýsta afstöðu í næstu þingkosningum dagfari Óskiljanleg hugtök stjórnmálamanna Jón H.B Snorrason, fyrrverandi sak- sóknari hjá ríkislögreglustjóra, sett- ist í vitnastúku í aðalmeðferð Baugs- málsins Héraðsdóms eftir hádegi í gær. Vitað var af Jóni í húsinu þó ekki tækist að finna hann strax. Hann kom ekki í leitirnar fyrr en eftir nokkr- ar mínútur þegar dómarar málsins hugðust nýta tímann til kaffihlés. Aðspurður af saksóknara, Sig- urði Tómasi Magnússyni, sagði Jón stjórnmálamenn ekki hafa haft af- skipti af málinu né reynt að hafa áhrif á það á nokkurn hátt. Hættum rannsókn tuga ákæru- liða Verjendur spurðu út Jón hvers vegna hin og þessi gögn sem þeir töldu styðja framburð sakborninga hefðu ekki verið könnuð nánar og hvers vegna fólk sem þeim gögnum tengdist hefði ekki verið kallað til skýrslutöku og svaraði Jón því til að ekki hafi þótt ástæða til. Eins sagði Jón að þeir liðir sem hætt hafi ver- ið að rannsaka eða saksækja vegna skýringa sem komu í ljós hafi skipt tugum. Í viðtali við DV sagði Jón að hon- um þætti ekki óeðlilegt að verjendur reyndu að kasta rýrð á rannsóknina. „Mér þætti það afar léleg vinna verj- enda ef þeir teldur sig mæta hinni fullkomnu rannsókn og reyndu ekki að sækja að henni einhversstaðar. Þá teldi ég þá ekki vera að vinna vinn- una sína,“ sagði Jón. Þá sagði hann ekki hafa viljað haga rannsókninni með örðum hætti en gert var. Að- alatriðið sé að rannsóknin sé hlut- laus og vönduð og það hafi hún ver- ið. Það sagði hann líka eiga við um stöðu Jóns Geralds Sullenberger í málinu og að eftir á að hyggja hefði hann ekki haft hann á bekk með sak- borningum í málinu. Honum finnst það þó ekki skjóta skökku við að rétt- arstaða Jóns Geralds sé breytt. „Nei það er bara mat Sigurðar miðað við það hvernig hann rekur málið og ég hef í sjálfu sér ekkert neikvætt við það að athuga,“ segir Jón. Í vitnaleiðslunum sagðist Jón ekki vita hvernig blaðamaður Morgun- blaðsins hafi vitað af húsleit í Kaup- þing banka í Lúxemborg. Þó sagði hann lögregluna hafa þurft að hafa samband við nokkra sérfærðinga í Lúxemborg. Jón sagðist ekki kannast við það að hann né aðrir hafi fagn- að eins og á fótboltaleik þegar Helgi Sigurðsson, yfirlögræðingur Kaup- þings, tilkynnti honum að ákveðin gögn hefðu ekki fundist í bankanum. Fregnirnar komu símleiðis og sagði Helgi fyrir rétti að það hefðu ver- ið viðbrögð Jóns og annarra á hans skirfstofu eftir að símtalinu lauk án þess að sambandið slitnaði. „Nei. Fagna hverju. Þetta er alveg fráleitt. Ég átta mig ekki á þessu.“ Hjördís rut sigurjónsdóttir blaðamaður skrifar: hrs@dv.is „nei. Fagna hverju? Þetta er alveg fráleitt. ég átta mig ekki á þessu.“ jón H.B. snorrason, fyrrverandi yfirmaður efnahagsbrotadeildar og saksóknari hjá rík- islögreglustjóra, mætti í yfirheyrslur í Baugsmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur. Eftir á að hyggja segist Jón ekki hafa viljað haga rannsókn málsins á annan veg en hann gerði, ekki heldur varðandi stöðu Jóns Geralds Sullenberger sem sakborningsl. Amast ekki yfir veru Sullenberger á sakabekk jón H.B. snorrason, fyrrverandi saksóknari Baugs- málsins Jón mætti í yfirheyrslur í Héraðsdóm. smá tíma tók að finna hann í húsinu þegar hans tími í vitnastúku rann upp. Hann skilaði sér þó áður en dómararnir fóru í kaffi. Ofleikur hjá viðvörunar- kerfi Slökkviliðsmenn þustu að Þjóðleikhúsinu í gær þegar tilkynning barst frá sjálfvirku brunaviðvörunarkerfi Þjóð- leikhússins um hálfþrjúleytið gær. Brunalykt sem barst um hæðir og stiga reyndist eiga upptök sín hjá iðnaðarmönn- um sem voru að vinnu í hús- inu. Ryk sem þyrlaðist upp við sögun barst í reykskynjara og setti sjálfvirka kerfið af stað. Slökkviliðsmennirnir leit- uðu fljótt af sér allan grun og héldu að svo búnu áfram við dagleg störf. Á 90 í miðbæ Akureyrar Lögreglan á Akureyri mældi einn ökumann á 90 kílómetra hraða á Glerárgötu þar sem há- markshraðinn er 50 kílómetrar á klukkustund upp úr hádegi í gær. Vegarkaflinn þar sem maðurinn brunaði yfir er þar að auki þekkt slysagildra. Lögreglumenn voru við mæl- ingar eftir hádegið og náðu mynd af skráningarnúmeri bílsins á á færanlega hraðamyndavél. Þá var einn ökumaður stöðvaður á 132 kílómetra hraða rétt við Hvalfjarðargöngin um tvöleytið í gær. Úthýstu Hag Hafnarfjarðar Hag Hafnarfjarðar var meinuð þátttaka á almennum fundi, á vegum ungliðahreyfinga stjórn- málaflokkana í Hafnarfirði, sem haldin var í Flensborg í gær- kvöldi. Þessu heldur Ingi B. Rúts- son, formaður félagsins fram á heimasíðu þess. Hann heldur því fram að upprunalega hafi félag- inu verið boðin þátttaka en hún á að hafa verið dregin til baka vegna mótmæla frá öðrum þátt- takendum. Segir Ingi að þetta séu afar ólýðræðisleg og ósann- gjörn vinnubrögð og gagnrýna athæfið harðlega. Minna fé úr sjó Heildarafli íslenskra skipa í síðasta mánuði skilaði útgerð- armönnum minni tekjum en í febrúar á síðasta ári. Aflaverð- mæti var fimm prósentum lægra nú en í fyrra. Sé hins vegar horft til tveggja fyrstu mánaða ársins eru tekjurnar svipaðar fyrir bæði árin. Aflinn sem kom að landi var meiri í febrúar í ár en í fyrra. Nú nam aflinn 230 þúsund tonnum en 214 þúsund tonnum í fyrra. Þorskafli dróst hins vegar saman

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.