Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Side 17
DV Fréttir föstudagur 16. mars 2007 17 um elds að höfði sér með því að vera með derring við Flokkinn. Það má til dæmis segja frá því að fyrst um sinn eftir að Sýn varð að al- vörusjónvarpsstöð árið 1995 var heimilisfang hennar á Suðurlandsbraut 4a, lögmannsskrif- stofu stjórnarformannsins Sigurðar G. Guð- jónssonar. Og þangað komu um það leyti stafn- búar úr Sjálfstæðisflokknum, þeir Sigurður Gísli Pálmason og Páll Kr. Pálsson, fyrir hönd fjármálaráðsins, og sögðu Sigurði að ÍÚ ætti að borga fimm milljónir á ári til Flokksins; sú upphæð væri bara reiknuð út frá stærð og veltu fyrirtækisins... mennirnir fóru tómhentir á dyr. Jón segir núna að í ljósi sögunnar hefði líklega verið viturlegra af Sigga að borga þetta – bara til að kaupa þeim frið; það hefði verndað þá fyrir miklu veseni...“ Hér er augljóslega gefið til kynna að synj- un Sigurðar G. Guðjónssonar hafi haft umtals- verðar afleiðingar fyrir Íslenska útvarpsfélagið. Tækifæri til þess að „kaupa frið“ hafi ekki verið nýtt. Þessi frásögn vekur margar spurningar Hjartahrein spilling Viðtekið var, að opna þyrfti bókhald ís- lensku stjórnmálaflokkanna og koma í veg fyrir að fyrirtæki eða kaup- sýslumenn gætu keypt sér áhrif á pólitíska ákvarðanatöku eða mútað einstökum þingmönnum til stuðnings við hagsmunamál sín. Höfundur Reykjavíkur- bréfs Morgunblaðsins 14. janúar síðastliðinn segir að það hafi komið mörgum á óvart að samstaða skyldi nást um að fjármagna flokk- ana nær einvörðungu með opinberu fé. Orð- rétt segir: „Líkleg skýring á því er sú, að ný kyn- slóð í viðskiptalífinu hafi fært sig upp á skaftið og gengið lengra í kröfugerð á hendur flokkun- um öllum sem endurgjald fyrir fjárhagslegan stuðning en forystumönnum flokkanna hafi þótti við hæfi og þess vegna hafi þeir getað náð samkomulagi sín á milli.“ Frásögnin í Jónsbók bendir ekki til þess að höfundur Reykjavíkurbréfsins hafi á réttu að standa. Fyrirtæki var þvert á móti skattlagt af voldugasta stjórnmálaflokki landsins og fékk að finna til tevatnsins þegar það neitaði að greiða í flokksjóðinn. Hugsanleg skýring á tilraun Sjálfstæðis- flokksins til þess að leggja flokksgjald á Íslenska útvarpsfélagið er sú að flokkurinn sé, eða hafi verið, einskonar hagsmunabandalag tiltekinna fyrirtækja með rótgróin völd í stjórnkerfinu. Flokknum hafi verið beitt gegn óæskilegum eða óstýrlátum fyrirtækjum og kaupsýslumönnum, rétt eins og ráðherrar og embættismenn beittu sér 20 árum fyrr gegn ferðaskrifstofunni Sunnu fyrir Flugleiðir. Um mútur og mútuþægni má loks nefna að Hjörleifur Hallgríms, fyrrverandi ritstjóri á Akureyri, bauð Framsóknarflokknum tvær milljónir króna í norðaustur- kjördæminu, fengi hann að taka þriðja sætið á lista flokksins í kjördæm- inu. „Svo hjarta- hrein er þessi spilling, að hún gerist ekki undir borði, heldur fyrir opn- um tjöldum. Málsaðilar hafa ekki hugmynd um, hvað er spilling. Og fjölmiðlarnir vita það ekki heldur, því að þar hefur ekki kviknað ljós,“ skrifaði Jónas Kristjánsson ritstjóri á vefsíðu sína 12. janúar síðastliðinn. Völd ofar fagmennsku Ein skýrasta mynd íslenskra klíkustjórnmála og spillingar birtist í pólitískum stöðuveiting- um í gegn um tíðina. Frá því snemma á síð- ustu öld hefur almenningur þó látið pólitísk- ar stöðuveitingar að mestu óátaldar og í raun samþykkt með ólund að úthlutun embætta á flokkslegum grundvelli væri hluti af einskonar hvatakerfi fyrir flokksmeðlimi. Þessa athuga- semd hefur Gunnar Helgi Kristinsson stjórn- málafræðiprófessor gert. Í athugun sinni árið 2006 á pólitískum stöðuveitingum segir Gunn- ar að fyrirgreiðsla af þessum toga sé ekki horf- in, heldur eigi hún sér stað í þrengra samhengi elítustjórnmála. Flokkspólitískar stöðuveit- ingar eða veiting embætta á grundvelli klíku- stjórnmála er dæmi um ólögmæta spillingu því aðeins að lög mæli fyrir um að staðið skuli að veitingu auglýstra starfa eða embætta á fagleg- um grunvelli þar sem tekið er mið af kunnáttu, reynslu og hæfni umsækjenda. Í athugun Gunnars Helga segir með- al annars: „Störf hjá hinu opinbera geta verið hluti af lögmætum sigurlaunum í stjórnmál- um, þetta leiðir til só- unar, óskilvirkni og skorts á hæfni í opinbera geir- anum. Að baki liggur dulin þörf stjórnmála- manna fyrir að útvega störf handa fólki sem þeir telja að verðskuldi slíkt að launum fyrir pólitískan stuðning.“ Athugun Gunnars Helga leiddi í ljós að af 111 stöðuveitingum reyndust 49 vera af póli- tískum rótum. Aðrar samrýmdust faglegum eða skrifræðislegum sjónarmiðum. Athyglisvert er að Gunnar Helgi telur að skipulag Framsóknarflokksins byggi meira á fyrirgreiðslu en skipulag Sjálfstæðisflokksins. Geðþótti valdsmanna Veiting opinberra embætta hefur tilheyrt umbunarkerfi stjórnarherranna hverju sinni frá öndverðri síðustu öld og áður en íslenska flokkakerfið varð til í sinni núverandi mynd. Þekkt er dæmið af Guðmundi Finnboga- syni, sem árið 1905 féll í ónáð hjá Hannesi Haf- stein ráðherra heimastjórnarinnar. Sjálfur orð- aði Guðmundur það svo, að hann hefði talað sig frá embætti fræðslumálstjóra, en mörgum þótti hann sjálfkjörinn til starfans eftir að hafa helgað sig rannsóknum á lýðmenntun í land- inu og samið fyrir stjórnvöld fyrstu lögin um fræðslu barna í landinu, fyrstu grunnskólalög þjóðarinnar. Guðmundi varð það á að tala gegn sjón- armiðum Hannesar ráðherra á almennum bændafundi í Símamálinu svonefnda, en þar var tekist á um það hvort leggja ætti sæstreng til landsins eða koma á loftskeytasambandi við útlönd. Á Alþingi varð brátt ljóst að Hannes hafði ekki áhuga á frekara samstarfi við Guð- mund. Matthías Jochumsson var meðal þeirra sem reyndu að sefa ráðherrann með bréfa- skriftum, en allt kom fyrir ekki. „Guðmundur varð því líklega fyrstur ís- lenskra embættismanna þess sérkennilega heiðurs aðnjótandi að finna fyrir því hvaða afleiðingar það getur haft að hugsa og tala á þeim nótum sem eru ráð- herrum ekki að skapi,“ skrif- ar dr. Jörgen Pind í merkri bók um Guðmund, Frá sál til sálar, en hún kom út á síðasta ári. Framhald á næstu opnu Guðni Þórðarson í sunnu guðni hefur sýnt fram á að flugleiðir, ráðherrar og seðlabankinn hafi lagt á ráðin um að knésetja rekstur sunnu og Viking air á áttunda áratugn- um. Jón ólafsson Jón neitaði að greiða í flokksjóði sjálfstæðis- flokksins og var refsað, eins og lesa má um í Jónsbók eftir Einar Kárason. Gunnar HelGi Kristinsson gunnar segir ráðamenn halda úti neti sérstakra ráðgjafa á vegum ráðuneytanna. Þessir ráðgjafar séu í ákveðnu mæli hluti af ríkisrekstri stjórn- málaflokkanna. Hannes Hafstein rætur geðþóttavaldsins við veitingu embætta er raktar til fyrstu ráðherra þjóðarinnar á öndverðri síðustu öld. Blekkingin mikla um óspillt íslensk stjórnmál Áður óbirt minnisblöð Brynjólfs Ingólfssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í samgönguráðuneytinu, benda til þess að koma Seðlabankans að málefnum Sunnu og Viking Air hafi verið bæði óvenjuleg og óeðlileg. Til að mynda virðist sem bankaeftirlit Seðlabankans hafi látið samgönguráðherra í té upplýsingar um viðskipti Sunnu og Alþýðubankans sem bankaleynd hvíldi yfir að lögum. „Bankaleynd Seðlabankans var breytileg eftir því hver átti hlut að máli.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.