Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Side 24
föstudagur 16. mars 200724 Helgarblað DV „Ég er á móti fermingargjöfum sem ástæðu fyrir fermingu en að sjálfsögðu er eðlilegt að gleðjast með fólki á tímamótum með gjöfum. Ég held við þurfum líka að brýna betur fyrir börnunum að sælla er að gefa en þiggja. Fermingarbörnin geta nefnilega sjálf gefið stærstu gjafirn- ar eins og einn fermingardrengur gerði hjá okkur í fyrra þegar hann gaf hluta fermingarpeningsins til hjálp- arstarfs,“ segir Ása Björk Ólafsdótt- ir prestur í Fríkirkjunni í Reykjavík. „Mér hefur oft blöskrað hvað fólk er að gefa mikið í fermingargjafir. Þetta geta verið veruleg fjárútlát fyrir þá sem eiga marga frændur og frænk- ur sem eru að fermast. En það er erf- itt að breyta þessu nema umræðan verði opnuð og talað sé almennilega um þetta.“ Ása segir að gjafirnar skapi tví- mælalaust ákveðið ójafnvægi hjá krökkunum því sumir eiga mjög stóra fjölskyldu og fá þar af leiðandi margar gjafir á meðan aðrir eiga svo til enga fjölskyldu. „Ég horfði á einn dreng í fyrra sem átti eiginlega enga ættingja, ég veit ekki einu sinni hvort það hafi jafnvel verið haldin veisla hjá honum,“ segir Ása og bætir við að það sé sárt að horfa upp á slíkt ójafn- vægi. Sjálf er Ása ófermd en hún var snemma komin með sterkar skoðan- ir á trúmálum. „Ég upplifði gjafirn- ar sem svo sterkan þátt hjá jafnöldr- um mínum og mér fannst fáránlegt að standa og játa eitthvað með sömu orðum og þau sem voru ekkert að meina það sem þau sögðu og voru bara að fermast gjafanna vegna. Ég ákvað því að fermast ekki því ég vissi að Guð þekkti alveg minn vilja og mína trú,“ segir Ása. Aðspurð hvort henni finnist ferm- ingarhópurinn í ár hugsa mikið um gjafirnar þá segir hún svo ekki vera. „Þau eru að skemmta sér svo mikið í fermingarfræðslunni að talið hefur bara ekkert borist að gjöfunum. Við erum að tala um aðra hluti sem eru mikilvægari í lífinu og þau eru svo fróðleiksfús að þau eru að springa,“ segir Ása og bætir við að í fermingar- fræðslu Fríkirkjunnar nálgist krakk- arnir kirkjuna og trúna með öðrum og persónulegri hætti. Þannig hafi fermingarhópurinn fengið að gista í kirkjunni um helgina og það hafi ver- ið algjört ævintýri. Ása ítrekar mikilvægi þess að börnin viti af hverju þau séu að ferm- ast. „Ef börnin vilja manndómsvígslu þá er það allt annað en að fermast. Það má alveg halda veislu af því til- efni með gjöfum en ef þau koma í kirkjuna og láta ferma sig þar þá á það að vera vegna trúar.“ Fermdist ekki sjálF „Mér finnst við gera óþarflega lít- ið úr börnum með því að vera alltaf að tala um þessar gjafir. Þetta eru ein- staklingar eins og aðrir og við prest- arnir sem erum búnir að vera með þau í fermingarfræðslu í allan vet- ur vitum þegar við horfum í augun á þeim að þau eru að hugsa um margt annað en gjafirnar,“ segir sr. Gísli Jón- asson prestur í Breiðholtskirkju. Hann segist ekki vera hrifinn af því að segja fólki hvernig það eigi að haga gjöfum og veislum en minnir fermingarfor- eldra hinsvegar á að láta hlutina koma í réttri röð. „Í því sambandi segi ég oft sögu af samtali sem ég átti við ferm- ingardreng fyrir mörgum árum síðan. Hann kom til mín og sagði að mamma sín væri svo stressuð og með svo mikl- ar áhyggjur að hún mætti ekkert vera að því að hugsa um ferminguna. Það sem hann var að meina var það að móðir hans hafði svo miklar áhyggjur af veislunni, gjöfunum, að það þyrfti að mála og öðru amstri að drengnum fannst hann vera orðinn að einhverju vandamáli í fjölskyldunni og sjálf fermingin væri að gleymast.“ Gísli segir að hver og einn verði að meta það hvers konar veislu hann haldi og hvað hann ætli að gefa, allt eftir efnum og aðstæðum. „Persónu- lega finnst mér út í hött að vera að gefa krökkunum hest eða mörg hundr- uð þúsund króna gjafir en ég veit svo sem ekki heldur hversu dæmigerðar slíkar gjafir eru. Ég held að fjölmiðlar blási þetta oft upp,“segir Gísli og bætir rétt Forgangsröðun mikilvæg við að það sé í raun skrýtið hversu mikinn áhuga fjölmiðlar hafi á fermingargjöfum miðað við aðr- ar gjafir og þannig sé til að mynda sjaldan sagt frá dýrum fimmtugsaf- mælisgjöfum. Gísli er sammála því að vissu- lega sé gaman fyrir krakkana að eiga eitthvað til minningar frá þess- um degi. Sjálfur segist hann aða- lega hafa fengið peninga í ferm- ingargjöf. „Ég bjó á þessum tíma í sælla er að gefa en þiggja Auglýsendur keppast nú við að kynna hentugar fermingargjaf- ir. Á meðan ganga ættingjar í hringi í stresskasti yfir því hvað það eigi nú að gefa öllum þessum frændum og frænkum í ferm- ingargjöf. DV heyrði álit þriggja presta á gjafaflóði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.