Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Síða 27
DV Helgarblað föstudagur 16. mars 2007 27
hafa þessi blessuðu rauðu bönd
hjálpað stjörnunum og ættum við
hin að trítla yfir í garnbúðir bæjar-
ins og gera okkar eigin bönd, svo við
virkum að minnsta kosti. „in“? Þau
kosta nefnilega sitt á Kabbalah-síð-
um á netinu, enda blessuð í bak og
fyrir af rabbínum.
Madonna hefur gjörbylt lífi sínu
eftir að hafa aðhyllst trúna; barna-
bækurnar sem hún hefur skrifað,
„The English Roses“ og „Mr. Pea-
body´s Apples“, „Yakov and the
Seven Thieves“, „The Adventures
of Abdi“ og „Lotsa de Casha“ eru
byggðar á dæmisögum úr kabbalah.
Hár Rocco, sonar þeirra Guy, var
ekki klippt fyrr en hann var orðinn
fjögurra ára en kabbalah mælir með
því að hár drengja sé óklippt fram að
þeim aldri og litið er á fyrstu klipp-
inguna sem fyrsta skrefið til mann-
dóms. Madonna og Guy Ritchie
hafa endurnýjað hjúskaparheit sín
að kabbalahsið, greitt fúlgur í Kabb-
alahmiðstöðina í Englandi og drekka
einungis blessað kabbalahvatn sem
kostar víst mun meira en venjulegt
vatn (en ekki hvað?!).
Nýtt nafn með nýjum vinum
Peningar eru kannski það sem
Madonna og Guy þurfa síst að hafa
áhyggjur af, en öllu verra er þó að
Madonna hefur misst samband við
tvær nánustu vinkonur sínar þar sem
hún var ósátt við að þær aðhylltust
ekki fræðin af sömu ákefð og hún og
leggðu ekki nægilegt fé fram til Kabb-
alahmiðstöðvarinnar. Fyrrum vin-
konurnar eru Stella McCartney fata-
hönnuður og Debi Mazar leikkona,
en Madonna og Debi hafa verið vin-
konur í meira en tuttugu ár. Og vin-
átta er eitthvað sem ekki er hægt að
setja verðmiða á og því minnir þessi
krafa Madonnu um að vinir hennar
aðhyllist sömu trúarbrögð og hún,
svolítið á hegðun þeirra sem ganga
í svokallaða sértrúarsöfnuði. Popp-
stjarnan gengur undir nafninu Est-
her hjá „nýju“ vinum sínum sem
aðhyllast trúna, en Esther var fátæk
kona sem varð síðar drottning Per-
síu og bjargaði milljónum gyðinga
frá tortímingu. Nú má oft sjá mynd-
ir af okkar konu með hálsmen með
stafnum E sem tákn um nýja nafnið
hennar. Í síðustu tónleikaferðalögum
Madonnu eru vinir hennar úr söfn-
uðinum sem iðka trúna með henni
og halda henni á jörðinni eins og hún
orðaði það sjálf í viðtali. Á meðan
þessi grein er skrifuð eru fréttir farnar
að berast þess efnis að Madonna sé
að fá leið á kabbalah og að forystu-
menn safnaðarins heimti meiri og
meiri peningagjafir frá þeim hjónum
og að því séu farnar að renna á hana
tvær grímur.
Verður rauða bandið
jólagjöfin í ár?
Nú er komið að Íslendingum að
fræðast um kabbalah því nú í vik-
unni var haldinn fyrirlestur í Sjálf-
stæðishúsinu í Kópavogi og fyrirles-
arinn kom frá The Kabbalah Center
í London. Það verður spennandi að
sjá hvernig Íslendingar taka þessum
trúarbrögðum og lífsstíl. Ætli rauða
bandið verði aðaljólagjöfin í ár?
Kabbalah í Kópavogi Kabbalah var kynnt fyrir Íslendingum í vikunni en margar erlendar stórstjörnur aðhyllast trúarbrögðin. Þeir hinir sömu bera gjarnan rautt band um úlnlið. En hvað er Kabbalah, hvers vegna er ráðlagt að fólk kynni sér það ekki fyrr en eftir fertugsaldur og hver er tilgangur rauða bandsins?
Stjörnurnar aðhyllast Kabballah
Þau Victoria og david Beckham, Britney
spears, demi moore og madonna hafa öll
borið rautt armband kaballah-trúnnar.