Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Qupperneq 30
föstudagur 16. mars 200730 Sport DV
Um helgina fer fram fyrsta mót árs-
ins í Formúlu 1 þegar keppt verður í
Ástralíu. Formúlan nýtur gríðarlegra
vinsælda hér á landi og því bíða ef-
laust margir eftir því að keppnistíma-
bilið hefjist.
Ýmsar breytingar hafa verið gerð-
ar á reglum fyrir komandi tímabil.
Ein breytingin er sú að nú er aðeins
notast við dekk frá einum framleið-
anda, Bridgestone. Áður voru það
Bridgestone og Michelin sem sáu um
að framleiða dekk fyrir keppnisliðin.
Breytingin er gerð til að spara kostn-
að og þróunarvinnu.
Hvert lið fær 24 dekk til afnota
fyrir hvorn bíl fyrir sig, bæði í tíma-
tökunni og kappakstrinum hverja
keppnishelgi. Liðin fá fjögur sett af
mjúkum dekkjum og fjögur sett af
hörðum dekkjum til að velja á milli
til notkunar í tímatökunni og kapp-
akstrinum. Áður fyrr gátu lið valið að
nota eingöngu mjúk dekk í tímatök-
unni og kappakstrinum en nú verða
liðin að velja hvort tveggja.
“Það verður erfitt samspil hjá
keppendum hvenær á að nota mjúk
dekk og hvenær á að nota hörð dekk.
En það fá allir nákvæmlega sama
dekkjafjölda og nákvæmlega sömu
dekk. Það er jafnvel verið að tala um
að merkja dekkin þannig að áhorf-
endur viti hvort verið sé að aka á
mjúkum dekkjum eða hörðum. Þetta
segja menn að komi til með að jafna
keppnina og ég hef fulla trú á að svo
verði,” sagði Gunnlaugur Rögnvalds-
son, Formúlusérfræðingur. Hann er
einnig ritstjóri nýs blaðs sem ber ein-
faldlega heitið Formula 1 og fæst frítt
á bensínstöðvum Essó og Shell og
einnig í Bílanaust.
Vélaþróun fryst
Einnig hafa verið gerðar breyt-
ingar á reglum í sambandi við vélar
liðanna. Þróun á vélum hefur verið
fryst næstu fjögur ár, það er að þá út-
færslu á vél, sem notuð var í Brasil-
íu á síðasta ári, verður að nota næstu
árin. Ástæðan að sögn Gunnlaugs er
sú sama, til að spara kostnað við þró-
unarvinnu.
“Bara sem dæmi þá er talið að
Honda hafi sett tvöhundruð milljón-
ir dala í smíði og hönnun á vélum í
fyrra. Á meðan fátækasti vélafram-
leiðandinn, ef svo má segja, Cos-
worth kostaði til fimmtán milljónum
dala. Það er því verið að setja bremsu
á að liðin séu að setja endalausan
pening í vélar. Vélarnar mega heldur
ekki snúast meira en nítján þúsund
snúninga.
Sumir hafa verið á móti þessu,
bæði að verið sé að frysta vélarnar
og að verið sé að setja alla á sömu
dekk, því að Formúlan eigi að vera
toppurinn í framþróun. En kostnað-
urinn er bara orðinn svo óheyrilegur
að mönnum finnst þetta einfaldlega
vera gáfulegast. Kostnaðurinn er allt-
af að aukast. Jafnvel þótt stóru lið-
in eigi næga peninga þá er rekstrar-
kostnaðurinn alltaf að aukast,” sagði
Gunnlaugur.
Miklar mannabreytingar
Töluverð endurnýjun hefur ver-
ið á ökumönnum liðanna. Stærstu
liðin, McLaren, Ferrari og Renault,
hafa öll gert breytingar hjá sér. Til að
mynda eru tveir nýliðar undir stýri
Keppnistímabilið í Formúlu 1 fer af stað um helgina þegar Ástralíukappaksturinn fer fram. DV fékk Gunn-
laug Rögnvaldsson Formúlusérfræðing til að spá og spekúlera í komandi keppnistímabil.
hjá þessum liðum, Lewis Hamilton
hjá McLaren og Heikki Kovalainen
hjá Renault.
Heimsmeistarinn Fernando
Alonso ákvað að söðla um og fór frá
Renault til McLaren. Þá fór hinn vin-
sæli Kimi Raikkonen frá McLaren til
Ferrari til að leysa sjálfan Michael
Schumacher af hólmi, sem hætti eft-
ir síðasta tímabil.
Gunnlaugur var einn þeirra sem
stóðu fyrir stórri Formúlusýningu í
Smáralindinni um síðustu helgi og
hann sagðist hafa tekið eftir því að
fólk væri tvístígandi með hverjum
það ætti að halda í kjölfar þessara
breytinga.
“Ég gæti trúað því að um fimmtíu
prósent þeirra sem hafa fylgst með
Formúlunni síðustu ár hafi haldið
með Schumacher. Núna eru þeir eig-
inlega í lausu lofti og margir ekkert
búnir að ákveða með hverjum þeir
ætla að halda.
Það eru margir tvístígandi, bæði
hvern þeir eigi að velja í staðinn fyr-
ir Schumacher og eins hvort þeir eigi
að halda áfram að halda með Raikk-
onen eftir að hann fór yfir til Ferrari.
Ég varð var við að þetta er sálarstríð
hjá mörgum,” sagði Gunnlaugur.
“Ég geri ráð fyrir að Alonso og
Raikkonen verði fremstir í flokki.
En einnig held ég að Fillipe Massa
hjá Ferrari verði sterkur. Hann nýt-
ur stuðnings frá Schumacher og
mun gera það áfram. Þeir eru góð-
ir félagar,” sagði Gunnlaugur. Hann
var einnig spenntur fyrir nýliðunum
Lewis Hamilton og Heikki Kovalain-
en.
“Hamilton er fyrsti blökkumaður-
inn í Formúlu 1 og Kovalainen verð-
ur mikill “show”-kall. Hann er Finni
sem kann að tjá sig og er glaðlegur
í fasi. Ólíkt bæði Mika Hakkinen og
Kimi Raikkonen sem eru báðir ör-
lítið til baka. Ég held að Kovalainen
verði vítamínssprauta fyrir Formúl-
una,” sagði Gunnlaugur.
Kubica er framtíðarmaður
Gunnlaugur hefur trú á því að
BMW gæti komið á óvart í vetur. “Ég
hef trú á því að BMW-menn verði
sprækir. Þeir hafa sýnt það á æfing-
um í vetur að það býr mikið í bílnum.
Þeir hafa að vísu átt í vandræðum
með að láta hann endast. En hann
hefur verið sprettharður á æfingum.
Ég held að kappi sem heiti Ro-
bert Kubica, frá Póllandi, sé fram-
tíðarmaður og komi til með að ógna
þessum toppliðum eins og Renault,
McLaren og Ferrari.
Síðan er nýr ökumaður hjá Willi-
ams sem heitir Alexander Wurz,
Austurríkismaður. Hann keppti á
árum áður en er að koma aftur eftir
að hafa verið þróunarökumaður hjá
McLaren. Ég held að hann komi til
með að ýta Williams-liðinu aðeins
ofar en síðustu ár,” sagði Gunnlaug-
ur og bætti við að Williams væri eina
liðið sem nyti stuðnings frá íslensku
fyrirtæki en Baugur hefur styrkt
Williams í nokkur misseri.
Sutil hinn nýji Schumacher
Þjóðverja?
Nokkur eftirvænting er að sjá
hvaða áhrif fráhvarf Schumachers
muni hafa á Formúluna í ár. Schum-
acher var án efa vinsælasti ökumað-
urinn og skilur eftir sig stórt skarð í
liði Ferrari.
Gunnlaugur telur þó að þetta gæti
haft góð áhrif á keppnina. “Ég held
að þetta sé gott fyrir Formúluna. Það
eru ferskir vindar að blása og nýir
ökumenn að koma inn. Það eru í
raun kynslóðaskipti. Skotinn David
Coulthard er nú aldursforseti og ef
maður skoðar listann þá er meðal-
aldurinn að lækka hjá ökumönnum.
Mér finnst spennandi að fá fyrsta
blökkumanninn inn í Formúluna.
Hann er mjög sprækur. Hann er
heimsmeistari í GB2, sem er næsta
mótaröð undir Formúlu 1. Ég held
að hann eigi eftir að koma á óvart í
mótum ársins,” sagði Gunnlaugur.
Þjóðverjar eiga einn ungan öku-
mann sem gæti tekið við af Michael
Schumacher. “Adrian Sutil ekur hjá
Spyker, hollenskum bílaframleið-
anda sem ætlar sér mikið. Þeir eru
komnir með hönnuð sem var áður
hjá Toyota og Renault, sem heitir
Mike Gascoyne.
Menn eru að vona það að þessi
Adrian Sutil eða Nico Rosberg hjá
Williams verði næsti Michael Schum-
acher þeirra Þjóðverja. En Schuma-
cher var yfirburðarmaður bæði and-
lega og líkamlega þannig að það er
kannski ólíklegt að einhver feti í hans
fótspor,” sagði Gunnlaugur.
Bretar ánægðir að fá Hamilton
Það kom mörgum á óvart þegar
McLaren ákvað að taka inn nýliða
sem ökumann. Oftast er það svo að
ungir ökumenn starfa sem þróunar-
ökumenn hjá liðum í nokkurn tíma
áður en þeir fá tækifæri meðal stóru
strákanna.
“Þeir töldu að það væri synd að
láta hann bíða. Þeir segja að það búi
svo mikið í honum. Stundum er beð-
ið of lengi með að taka inn nýja öku-
menn.
Heikki Kovalainen hefur keyrt
Renault-bílinn um það bil þrjátíu
þúsund kílómetra sem þróunaröku-
maður. Sú leið er venjulega farin að
menn eru látnir keyra í eitt ár sem
þróunarökumenn. Hann er mun
reyndari heldur en Hamilton.
En allavega hafa Bretarnir mikla
trú á Hamilton. Breta hefur vantað
mann til að fylgjast með. Formúl-
an er mjög vinsæl í Bretlandi, flest
keppnisliðin eru stödd þar. Þar í
landi eru menn mjög ánægðir með
að fá Hamilton í Formúluna,” sagði
Gunnlaugur.
dagur@dv.is
Formúluveislanað hefjast
Gunnlaugur Rögnvaldsson Er formúlu-
áhugamönnum að góðu kunnur enda tíður
gestur á skjám landsmanna.
Styrktir af Baugi Williams-liðið í
formúlu 1 er að hluta til styrkt af Baugi.
Aldursforsetinn david
Coulthard, ökumaður red Bull,
er aldursforsetinn í formúlunni.
Heimsmeistarinn fernando alonso
sést hér fagna heimsmeistaratitlinum
eftir kappaksturinn í Brasilíu í fyrra.