Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Síða 35
DV Sport föstudagur 16. mars 2007 35
Um síðustu helgi voru bikarúrslitaleikir yngri flokka í
handbolta. HK átti fjögur lið af fimm mögulegum og
skilaði einum titli í hús. Mikil gróska er í handbolta-
starfi yngri flokka HK og iðkendum fjölgar stöðugt.
Dugnaður
í Digranesi
Hafdís Guðjónsdóttir, yfirþjálfari
yngri flokka félagsins, segist sátt við
starf HK í yngri flokkum. Töluverð
fjölgun hafi orðið á iðkendum eft-
ir að hún kom til starfa hjá félaginu
fyrir fimm árum. HK bíður eftir nýju
íþróttahúsi sem er í byggingu og mun
gjörbylta aðstöðu félagsins. Hafdís
viðurkennir að Digranes sé fyrir löngu
búið að sprengja utan af sér.
„Við höfum hlúð vel að yngri
flokkunum og fengið góða þjálf-
ara sem skiptir miklu máli í yngri
flokka starfi. Grundvöllurinn fyr-
ir að byggja upp er að hafa góðan
þjálfara.“
Af fimm bikarúrslitaleikjum yngri
flokka átti HK lið í fjórum, fjórða
flokki karla og kvenna og unglinga-
flokki karla og kvenna. Eini leikur-
inn sem HK átti ekki fulltrúa í var í
öðrum flokki karla. Unglingaflokkur
kvenna vann sinn leik á móti Fylki
27-16 og því kom einn titill í hús.
„Við hefðum getað verið með fimm
lið. HK tapaði fyrir Haukum í undan-
úrslitum í öðrum flokki. Það er frá-
bært að vinna hjá HK og öflugt starf
hefur verið unnið hér í gegnum tíðina
og ég held að það sé að skila sér.“
Athygli vakti að HK 2 var í bik-
arúrslitum í fjórða flokki kvenna en
þær unnu stöllur sínar í HK 1 í átta
liða úrslitum.
„Við erum með 38 stelpur í fjórða
flokki kvenna og við skiptum því
þannig að HK 2 er yngra árið en HK
1 er eldra árið, þó svo að markvörð-
urinn og línumaðurinn í HK 2 séu á
eldra ári. Þetta er kjarni sem hefur
mikinn metnað og í þetta sinn hafði
yngra árið betur.“
Æfa á sex stöðum
Hafdís kom til starfa hjá HK fyrir
um fimm árum og þá var fjöldi ið-
kenda um 200. Nú er fjöldinn kom-
inn upp í 350. Íþróttahúsið Digranes
á erfitt með að taka á móti slíkum
fjölda og segir Hafdís að það muni
miklu um nýtt íþróttahús sem nú er
í byggingu í Fagralundi.
„Elstu flokkarnir æfa í Sala-
skóla, sjötti og sjöundi flokkur æfir
í Lindaskóla, fimmti flokkur karla
og kvenna æfir í Kársnesskóla og
yngstu flokkarnir æfa í Kópavogs-
skóla og Snælandsskóla. Vonandi
fáum við inni í nýja íþróttahúsinu
í Salahverfinu. Digranesið er löngu
sprungið og við bíðum bara eftir
húsinu í Fagralundi, um leið og það
hús verður tilbúið verður þetta því-
líkur munur. Það hús á að verða tvö-
falt stærra og léttir mikið á Digra-
nesinu.“
Stærsta handboltamót unglinga
er Partille Cup í Svíþjóð. HK fer með
100 krakka á það mót og segir Hafdís
að framtíðin sé mjög björt hjá félag-
inu. „Framtíðin hjá HK er rosalega
björt ef haldið er rétt á spilunum.
Við erum að fara með 100 krakka á
Partille Cup og reynum að gera eit-
hvað slíkt, til að halda krökkunum
í íþróttinni því brottfallið er mest á
þessum aldri.“
Stoltar að taka þátt í verkefn-
inu
Mörg lið sem eru efnileg missa
marga af sínum bestu leikmönn-
um til annarra félaga vegna skorts á
þolinmæði í bið eftir velgengi. Haf-
dís hefur þó ekki orðið vör við það
hjá HK.
„Meistaraflokkur kvenna hjá
okkur er unglingaflokkur plús tveir
útlendingar. Stelpurnar okkar eru
stoltar að taka þátt í þessu verkefni.
Við erum með ákveðin markmið í
gangi sem er ekki að vinna titla strax
heldur byggja upp okkar lið sem
byggir á okkar mannskap. En með
þessum tveimur útlendingum þá
erum við að láta þær draga vagninn,
því það verða að vera sterkir leik-
menn með þeim yngri. Þannig læra
yngri leikmenn og ekki skemmir fyr-
ir að búið er að ráða Erling Richard-
son.“
Erlingur kemur inn sem þjálfari
meistaraflokks kvenna, yngri flokka
og mun sjá um styrktarþjálfun hjá
félaginu.
Það er öflugt starf unnið hjá HK
og vel haldið utan um starfið og
gerðar miklar kröfur. Þetta er ekki
eithvað sem á að líða hjá. Kópavog-
ur er stór bær og við eigum að geta
haldið vel á spilunum þar sem við
sitjum ein að handbolta hér í bæ.
Breiðablik er ekki með handbolta-
deild og við eigum því að geta náð
fleiri iðkendum. benni@dv.is