Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Side 47
föstudagur 16. mars 2007 47DV Ferðalög
M
ig langar til þess
að segja lesendum
frá fjallinu Hlöðu-
felli. Fjallið er í um
25 km fjarlægð frá
Laugarvatni og þangað liggur ágæt-
is jeppaslóði,“ segir Pálmi sem geng-
ið hefur nokkrum sinnum á fjallið.
„5 km innan við Laugarvatn er veg-
ur upp svokallað Miðdalsfjall. Farið
er upp hjá bænum Miðdal en þang-
að eru 20 km upp að Hlöðuvöllum.
Þar er að finna skála sem er öllum
opinn og þaðan er eina gönguleið-
in upp á fjallið.“ Að sögn Pálma er
gönguleiðin ekki merkt en kominn
er slóði sem hægt er að fylgja. Fyrir
ofan skálann er gil og vestan megin
við það er gengið upp.Pálmi segir að
fjallið sé nokkuð bratt og því sé það
ekki heppileg gönguleið fyrir algjöra
byrjendur en henti þeim sem eru í
meðalgóðu gönguformi vel. „Fjallið
er 1188m hátt og það má alveg reikna
með góðum klukkutíma á toppinn,“
segir Pálmi og bætir við að hækkunin
sé um 600 m frá skála og upp á topp.
Af toppnum er gríðarlega gott útsýni
m.a. yfir Skjaldbreið. Að göngu lok-
inni er svo kjörið að tilla sér niður í
skálanum að Hlöðuvöllum, borða
þar nesti og kvitta í gestabókina. „Ég
hef alltaf gengið einn á þetta fjall
nema í eitt skipti þegar ég fór þang-
að í útkall á vegum björgunarsveitar-
innar Ingunnar á Laugarvatni,“ segir
Pálmi og undirstrikar að ekki sé ráð-
legt að ganga á fjallið nema veður-
útlit sé gott. Hættulegt sé að villast
á toppnum þar sem hamrar séu þar
allan hringinn og einungis ein leið
fær upp og niður fjallið sem sé vand-
fundin í þoku.
„Ég fer ekki nærri nógu oft í göng-
ur og myndi vilja fara miklu oftar. En
ég reyni alltaf að ganga á eitt og eitt
fjall þegar fjölskyldan er á ferðalagi
á sumrin. Í sumar ætlum við norð-
ur í land en ég ekki búin að ákveða
á hvaða fjöll ég geng þar,“ segir Pálmi
og viðurkennir að hann sé einn af
þeim sem gaman hafa af því að safna
fjallstoppum.„Ætli þeir séu ekki á bil-
inu 20-30 talsins núna, þetta gengur
hægt hjá mér.“
Aðspurður að því hvort það sé
mikill útivistaráhugi meðal nem-
enda Menntaskólans á Laugavatni
játar hann því og segir að boðið sé
upp sérstakan útivistaráfanga sem
valfag við skólann og hann hafi verið
vinsæll. Sjálfur hafi hann farið með
krökkunum í ýmsar ferðir í tengslum
við þennan útivistaráfanga. Hann
segir að mynda hafi verið gengið með
nemendur frá Laugarvatni að Skjald-
breið og hafi krökkunum verið kennt
á áttavita og GPS tæki í leiðinni. „Þau
gengu svo upp með Laxárgljúfrum og
gistu í Hólaskógi á Gnúpverjaafrétti
og gengu svo frá Háafossi að Stöng
daginn eftir. Einnig höfum við farið
nokkrum sinnum í rafting á Hvítá, í
skíða- og skautaferðir, í kanósigling-
ar frá Laugavatni niður Hólaá og í
Apavatn, í hellarannasóknir, snorkl-
ferð í Silfru á Þingvöllum og í ísklifur
í Þórsmörk.“
Pálmi skorar á starfsfélaga sinn,
Smára Stefánsson, kennara við
Menntaskólann að Laugavatni að
segja frá ferðalögum sínum í næstu
viku. Hann er tiltölulega nýbyrjaður
að kenna við skólann en á ættir að
rekja til Akureyrar og getur hann því
hugsanlega sagt lesendum frá ein-
hverjum skemmtilegum stöðum á
heimaslóðum sínum.
U m s j ó n : V a l g e i r Ö r n R a g n a r s s o n . N e t f a n g : v a l g e i r @ d v . i s
á ferðinni Jeppaferð á Drangjökul Vestfirðir eru spennandi og krefjandi svæði til vetrarferða á jeppum og eftir viku býður ferðafélagið Útivist upp á jeppaferð á drangjökul. Þetta er eingöngu ferð fyrir mikið breytta jeppa og er þátttaka háð samþykki fararstjóra. gist verður í svefnpoka-
plássi og er nauðsynlegt að vera með talstöð í þessari ferð.
Bob Dylan í London
Icelandair bjóða í
apríl upp á
tónleikaferð til
London sem
aðdáendur Bobs
dylan ættu ekki að
láta fram hjá sér
fara. fyrsta plata
dylans í 5 ár,
modern times, er
nýkomin út og plöt-
unni mun hann fylgja eftir með
heljarinnar tónleikaferðalagi um
Evrópu. Platan hefur hlotið mjög góða
gagnrýni svo það má búast við
þrusutónleikum.
ferðin sem Icelandair býður upp á er
háð því að næg þáttaka í hana fáist en
hún er fyrirhuguð dagana 14.-16.apríl.
Kostar hún 69.900 á mann í tvíbýli en
innifalið í því er íslensk fararstjórn,
akstur til og frá flugvelli, gisting í tvær
nætur á ramada Jarvis Hyde Park sem
er fjögurra stjörnu hótel og miði á
tónleika Bobs dylan sem haldnir eru
15. apríl á Wembley arena..
Ferðalag í
fermingargjöf
Iceland Express hvetur til þess að fólk
geri fermingarbörnin að heimsborgur-
um og auglýsir í því samhengi
gjafabréf sem eru kjörin til fermingar-
gjafa. gefandinn ákveður sjálfur
hversu há upphæðin er, þó ekki lægri
en 2.000 krónur. Ekkert liggur á því að
fermingarbarnið nýti gjafabréfið því
það gildir í tvö ár og til hvaða
áfangastaðar Iceland Express sem er.
Hægt er að kaupa þessi gjafabréf á
heimasíðu Iceland Express. ferðamann
heimsæki borgina árlega, fyrir 2015.
Telemark-hátíð
á Akureyri
um helgina stendur Íslenski alpa-
klúbburinn fyrir telemark-skíðahátíð í
Hlíðarfjalli. Nægur snjór er í fjallinu og
því útlit fyrir góða skíðahelgi.
Í ár verður boðið upp á þá nýjung að
blásið verður til fjallaskíðakeppni á
sunnudaginn. Keppnin er bæði fyrir
telemark- og fjallaskíðaunnendur og
er öllum heimil þátttaka. Keppnin felst
í því að ganga, skinna og skíða
ákveðinn hring í kringum skíðasvæð-
ið. Áætlað er að þessi þolraun taki um
klukkustund og eru vegleg verðlaun í
boði fyrir alla aldursflokka. aðalstyrkt-
araðili hátíðarinnar í ár er Útivera og á
utivera.is verður hægt að fylgjast með
fréttum helgarinnar.
Hingað til hafa menn varla ferðast til
Danmerkur til að fara á skíði en það
er þó hægt að gera allan ársins hring
í IndoorSki í Rødovre. Hjá IndoorSki
er rekin innanhússskíða- og bretta-
aðstaða, sú eina sinnar tegundar í
Danmörku. Aðstaðan hentar fólki á
hvaða aldri og getustigi sem er því
hægt er að stilla skíðabrautirnar, sem
eru í formi færibanda, eftir reynslu
hvers og eins. Þannig geta þeir sem
eru verulega góðir á skíðum fengið
að spreyta sig á kolsvörtum leiðum
en aðrir sem ekki eru eins öruggir
geta haldið sig á grænum brautum.
Upplifunin er sögð jafnast á við mjög
góða ferð í alvöru brekkum. Við Ind-
oorSki starfa þaulreyndir skíðakenn-
arar sem gefa góð ráð bæði varðandi
búnað og skíðastíl en einnig er skíða-
búnaður seldur á staðnum og þar er
líka hægt að fá sér veitingar að skíða-
ferð lokinni. Ekki er nauðsynlegt að
mæta í skíðagallanum, fólk mætir
bara á staðinn eins og það er klætt en
þarf þó að taka eigin skíðaskó með
sér, annað fær maður hjá IndoorSki.
Hugmyndin að fyrirtækinu kemur
upphaflega frá Bandaríkjunum en
þar hafa menn getað skellt sér á skíði
innandyra í meira en 30 ár.
Lesa má nánar um þá þjónustu
sem þarna er boðið upp á heimasíð-
unni indoorski.dk.
Danir þurfa ekki að treysta á veðurguðina til að iðka vetraríþróttir:
Í síðustu viku skoraði kennarinn Jóna Björk Jónsdóttir á Pálma
Hilmarsson húsvörð og heimavistarstjóra við Menntaskólann að
Laugarvatni. Pálmi varð við þeirri áskorun að segja frá falleg-
um stað í nágrenni sínu enda mikill útivistarmaður. Auk þess að
ganga á fjöll sjálfum sér til skemmtunar er hann í björgunarsveit
og leiðbeinir einnig við sérstakan útivistaráfanga sem stendur
nemendum við Menntaskólanum að Laugarvatni til boða.
Jeppaferð á
DrangJökul
Á göngu Pálmi á göngu upp með Laxárgljúfrum í haust með nemendum í
útivistaráfanga mL.
Skíða innandyra allan ársins hring
Í vetrarbúningi
Þessi mynd er af norðvest-
urhlið Hlöðufells og sýnir
klettabeltið sem nær
nánast hringinn og gerir
fjallið aðeins kleift á einum
stað með góðu móti.