Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Side 51
DV Fréttir föstudagur 16. mars 2007 51
Okkur langar í þetta.
tvær litríkar töskur, ein lóðrétt, önnur lárétt, ein fyrir
dýravininn í þér en hin fyrir rokkarann. Eyrnalokkarnir eru
frá top shop sem og töskurnar. En munið að það er líka flott
að vera bara með einn, svo kaupið tvær saman og sparið
smá aur.
góðir tónar
strákarnir í 12 tónum mæla svo sannar-
lega með þessu þremur plötum. Þeir segja
disk Ólafar arnalds alveg einstakan og
gavin Portland diskurinn kemur þeim í gírinn. fyrir forvitna
þá er hægt að grenslast fyrir um hina ýmsu atburði sem og
annað á heimasíðu 12 tóna; http://www.12tonar.is/.
Nafn? Björk Viggósdóttir.
Aldur? 25 ára.
Hvað ert þú að gera? Ég er myndlistarmaður
í kennararéttindanámi við Listaháskóla
Íslands.
Hvernig mundir þú lýsa stílnum þínum ?
Ævintýralegum og litríkum.
Hvað keyptir þú þér síðast ? Ég keypti mér
skærbláa súper hlýja dúnulpu í barnadeildinni
í Hagkaup og stóra hvíta bókahillu.
Hverju færðu ekki nóg af? sköpunarkrafti,
góðri myndlist, tónlist, vinum mínum, og að
elda góðan mat.
Með hverju mælir þú fyrir forvitnar sálir?
fara á áhugaverðar myndlistarsýningar, helst
nútímamyndlist með ungum listamönnum,
með stoppi í Brunch á Hótel sögu, þar sem
hægt er að fá allt milli himins og jarðar.
Hvað langar þig mest í ákkurat núna ? Nýja
og fallega Hd vídeóupptökuvél, stafræna
Leicu myndavél og arkaos video dJ forrit og
svo fallega skó í kaupbæti.
Ef þér væri boðið í partý í kveld í hverju
mundir þú fara? Ég myndi fara í einhverju
litríku og fallegu með hressleika og gleðigjafa
í handtöskunni. gult límband kemur til greina.
(Yellow mustaché).
Hvenær líður þér best? Í faðmlagi með gott
kaffi, nýbúin að afreka eitthvað erfitt og
skemmtilegt.
Afrek vikunnar? Ég fékk alveg frábærar
hugmyndir fyrir næstu sýningu sem geta ekki
beðið eftir að fæðast og svo samdi ég nokkur
dularfull hljóðverk sem ég á aldrei eftir að
þora að leyfa neinum að heyra.
Það er mikið úrval af
bindum í bænum en þessi
eru frá retró í smáranum og
top shop. Hönnunin á
bindum er eins og öll önnur
hönnun, þar skiptir efnið
máli, litur, munstur og snið.
flottustu bindin í bænum
fást í versluninni Liborius á
mýrargötunni en þau eru
með Kendi-ties. fyrir
forvitna er hægt að
kíkja inn á: http://
www.liborius.is/
og http://www.
kendities.
com/.
Hinn franski hönnuður Jean-Charles de Castelbajac kemur alltaf
skemmtilega á óvart í listsköpun sinni. Hann hefur gert allt enda
ekki hræddur við að prófa sig áfram. Hann hannar frumleg föt
sem hvetja til fagurfræðilegs lífsmáta. Bangsa jakki, risa snoopy
bolir og upplásnar herðaslár (ponsjó) koma upp í huga manns. Í
sérviskulegri hönnun hans blandast saman skærir litir, nútíma-
menning og húmor. Hönnun hans er litrík og skemmtileg;
hönnun hans speglar ást hans á litum og náttúrunni. Castelbajac
er andsnúinn tískustöðlum og fer sínar eigin leiðir. Hann nýtir efni
eins og teppi, gólfdregla og flottar umbúðir út frá grunnlitum
eða í samvinnu og ævintýralegum verkefnum með listamönnum
eins og Loulou Picasso, robert Combas and Jean-Charles Blais.
fyrir þá sem vilja grennslast fyrir um
kauðann geta kíkt á síðuna hans;
http://www.jc-de-castelbajac.com/.
Fötin eru hans strigiPersónanBjörk Viggósdóttir
Bætum við okkur bindum
givenchy miu miu
Jean-Charles de Castelbajac
Bangsa jakkinn frægi, haust 1988.
Innblásið frá Keith
Haring og mikka
mús: Jean-Charles
de Castelbajac
haust/vetur 2002/3
Jean-Charles de Castelbajac
eftir vel heppnaða sýningu
nú á dögum.
Jean-Charles de Castelbajac haust/vetur 2007/2008.
Bernhard Willhelm
DV-mynd Gúndi