Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Page 56
föstudagur 16. mars 200758 Helgarblað DV
TónlisT
Geðveikislega-smúð-tíðaranda-bræðingur
Á ferðum mínum um Bretlands-
eyjar tók ég fljótlega eftir hljómsveit-
inni Mr. Hudson & The Library. Þeir
voru á allra vörum og með skilti í
flestum sölum. Diskurinn Tale of
Two Cities kom út þann fimmta
mars. Tónlistin er nokkurs kon-
ar bland af bresku eðal-indí rokki,
léttu garage, a la The Streets, Ska,
reggí og almennu fjöri. Ég er ekki
frá því að Mr. Hudson & The Library
sé besta band sem að ég hef heyrt í
lengi. Tónlistin er fersk og ótrúlega
þægileg áhlustunar og diskurinn
rennur mjúklega í gegn. Söngvar-
arnir Ben Hudson og Joy Joseph eru
mjög góðir, og eins og svo oft gerist
nú á dögum er ekki búið að ofvinna
vókal-upptökur heldur eru þær þægi-
lega hráar og mjúkar. Hiphop-áhrifin
á plötunni leyna sér, í alvöru. Í ein-
lægum textum má oft greina rapp-
slangur inn á milli og notast er
við trommuheila, raftromm-
ur og álíka en ekki lifandi sett
og svo nefna allir hljómsveita-
meðlimir þá Dr.Dre og J-dilla
sem sin helsta innblástur. Tón-
listarbræðingurinn á plötunni
er algjör afleiðing tíðarandans,
sem mun kannski valda því að
platan verður ekki langlíf. Hins
vegar mun hún eiga langt líf í
mínum spilara, þar sem ég verð
að segja að fyrsta lag plötunn-
ar, On The Street Where You
Live, gefur mér alveg hrikalega
gæsahúð og vekur upp ótrú-
legustu minningar. Í raun bregst það
ekki að ég þarf alltaf að fara á klósett-
ið eftir að hafa heyrt lagið. Lögin sem
fylgja á eftir, Take Us Somwhere New
og Too Late Too Late eru líka stór-
kostleg. Tale of Two Cities er góður
diskur, sem allir ættu að kíkja á, en
með réttu hugarfari, því það er svona
tónlist sem gerir heiminn að betri
stað að búa á.
„Þetta er gagnkvæmur áhugi sem
er í gangi og í gegnum árin höfum
við oft rætt um að vinna saman einn
daginn. Við létum svo bara verða
af því fyrir plötuna Volta,“ segir ís-
lenska tónlistarkonan Björk Guð-
mundsdóttir um samstarf sitt súper-
pródúsentsins Timbaland.
Mikið hefur verið rætt um sam-
starfið en Timbaland er heitasti pró-
dúsentinn í poppheiminum í dag og
virðist allt sem hann kemur nálægt
ná miklum vinsældum. Timbaland
hefur unnið mikið með Justin Tim-
berlake og Nelly Furtado sem að
hafa bæði verið á toppi vinsældar-
lista undanfarið.
Örvæntir ekki
„Það er ekki eins og ég hafi verið í
örvæntingafullri leit að heitasta pró-
dúsernum,“ lýsir Björk yfir. „Mér hef-
ur bara fundist í lengri tíma að við
séum mjög, mjög ólík en þrátt fyrir
það höfum
við þetta
litla eitthvað
sem við eig-
um sameigin-
legt,“ segir Björk
um samstarfið en
Timbaland vann
fyrst með henni þeg-
ar hann mixaði lag-
ið hennar Joga fyrir
Missy Elliott lagið
Hit Em Wit Da
Hee árið
1997.
„Ætli
ég hafi ekki
bara verið til í smá has-
ar í tónlistinni minni,“ heldur Björk
áfram. „Það er kannski þess vegna
sem að þetta varð stundin sem við
ákváðum að vinna saman.“
4 lög með Timbaland
Björk og Timbaland unnu að fjór-
um lögum saman en ekki víst hversu
mörg þeirra verða á plötunni Volta
sem er væntanleg í verslanir 7.maí
næstkomandi. Platan mun innhalda
tíu lög. Björk vinnur einnig með Ís-
landsvininum Antony Hegarty úr
hljómsveitinni Antony & the John-
sons í laginu My Juvenile. Þá mun
platan einnig innhalda lög sem heita
Innocence, Hope, I See Who You
Are, Declare Independence, Earth
Intruders, Dull Flame of Desire og
Wanderlust.
Það verður mikið að gera hjá
Björk í sumar og verður hún með-
al annars eitt af aðal nöfnunum á
Glastonbury hátíðinni sem byrjar
22.júní í Skotlandi.
asgeir@dv.is
Funheitur
timbaland er heitasti pródúserinn í
poppinu í dag
Björk Guðmundsdóttir
segir samstarfið til komið af
gagnkvæmum áhuga
Timbaland færir
Björk hasarinn
Sönkonan Björk Guðmundsdóttir tjáði sig nýlega í viðtali við MTV-sjónvarpsstöðina um
hið margrómaða samstarfs sitt við pródúserinn Timbaland sem er sá stærsti í poppinu
í dag.
Timbaland, Nelly Furtado og Justin Timberlake
timbaland semur tónlistina fyrir heitustu
stjörnurnar í dag
TónlisTardómur
H H H H H
Mercury/Universal
Mr.Hudson & The
Library
Tale of Two Cities
Mr.Hudson & the Library
Eitt ferskasta band sem ég hef heyrt í lengi.
Útgáfu-
tónleikar
ólafar arn-
alds
Næstkomandi miðvikudag, þann 21.
mars, heldur Ólöf arnalds útgáfutón-
leika ásamt fríðu föruneyti á Nasa við
austurvöll. Húsið opnar klukkan 20:00
og hefjast tónleikarnir klukkan 21.00.
forsala aðgöngumiða er í 12 tónum,
skólavörðustíg 15 og er miðaverð
þúsund krónur.
Ætlunin er að skapa friðsælt og
þægilegt andrúmsloft á tónleikunum.
Boðið verður upp á fleiri sæti en
venjan er og þeim komið fyrir á stóru
dansgólfi Nasa. Þannig á að skapa
gott umhverfi til að njóta tónlistar
Ólafar og félaga hennar. af þessum
sökum er fjöldi aðgöngumiða
takmarkaður.
Tónlistar-
veisla í lond-
on og leeds
Það verður mikið um dýrðir á O2
tónlistarhátíðinni í Englandi í sumar.
tónleikarnir fara fram á tveimur
stöðum sömu helgina, Hyde Park í
London og Harewood House í Leeds.
tónlistarhátíðin fer fram dagana 14. -
17. júní.
sömu hljómsveit troða upp á
hátíðinni yfir helgina á báðum
stöðum. meðal hljómsveita sem koma
fram má nefna the White stripes,
Queens Of the stone age, Kaiser
Chiefs, faithless, Badly drawn Boy og
daft Punk.
Mr Hudson & The Library - A TALe oF Two CiTies
Arcade Fire - NeoN BiBLe
J - Dilla - THe RuFF DRAFT Re-issue
Redman -ReD GoNe wiLD
The Klaxons - MyTHs oF THe NeAR FuTuRe
Gus Gus - FoReveR
Air - PoCeT syMPHoNy
Kíktu á þessa
TónlisTaraKademía dV seGir: