Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.1983, Page 20

Læknablaðið - 15.11.1983, Page 20
286 LÆK.NABLADID 69,286-288,1983 NABLAÐIÐ THE ÍCELANDIC MEDICAL JOURNAL Læknafélag islands og Læknafélag Reykjavíkur 69. ÁRG. - NÓVEMBER 1983 TÆKNI í LÆKNISFRÆÐI OG SÝKINGAR AF VÖLDUM CHLAMYDIA TRACHOMATIS Tækni í læknisfræði. Tækni í læknisfræði hefur stundum verið skipt í prjá flokka með tilliti til hagkvæmni (1). í fyrsta lagi er talað um það, sem réttast er að kalla tæknileysi (nontechnology). í þessum flokki eru aðgerðir, sem oftast breyta litlu eða engu um gang sjúkdómsins, en beinast einkum að því að bæta líðan sjúklingsins. Á ensku er þetta nefnt »supportive care« eða stuðnings- meðferð. Þetta var það, sem hægt var að bjóða upp á við sjúkdóma eins og heilahimnu- bólgu, mænuveiki og lungnabólgu og aðra smitsjúkdóma áður en sýklalyf og ónæmisað- gerðir komu til sögunnar og þetta er það eina, sem hægt er að beita við marga taugasjúk- dóma svo sem heila- og mænusigg, sum krabbamein, alvarlega liðagigt og vissa geð- sjúkdóma svo nokkuð sé talið. Þessar aðgerðir eru nauðsynlegar en oft mjög kostnaðar- samar. í öðrum flokki er svo það, sem kalla mætti hálftækni (halfway technology). Hér falla und- ir aðferðir, sem notaðar eru til þess að draga úr afleiðingum sjúkdóma og framlengja líf. Hér má nefna ísetningu gerviliða, nýrnaí- græðslur og aðra líffæraflutninga. Margt í því flókna kerfi, sem tengist lækningum á krans- æðasjúkdómum fellur í þennan flokk og sömu- leiðis margar aðgerðir við krabbameini. Hér er oft um að ræða hluti, sem eru tækni- lega fullkomnir, en jafnframt frumstæðir að því er varðar lausn á vanda sjúklingsins. Tækni- nýjungar af þessu tagi vekja oft mikla athygli og er slegið stórt upp í fjölmiðlum, sem mikl- um framförum í lækningum. Þó er oft um að ræða framfarir á öðrum sviðum tækni, sem lítil áhrif hafa á læknisfræði sem fræðigrein. Jafn- an er um kostnaðarsamar aðgerðir að ræða, sem krefjast mikilla spítalabygginga og stöð- ugt fjölgar starfsfólki og jafnvel heilbrigðis- stéttum, sem við þær starfa. í þriðja flokki er svo forvarnarstarf, sem miðar að því að hindra sjúkdóma, svo og lækningar, sem vinna bug á sjúkdómum. Hér er rætt um hluti eins og ónæmisaðgerðir og notkun sýklalyfja. Einnig má nefna notkun hormóna við efnaskiptasjúkdóma og fleira. Yfirleitt er um að ræða aðgerðir, sem eru markvissar og áhrifaríkar, en eru oft lítið í sviðsljósi og taldar sjálfsagðar. En það verður stundum til þess að þær eru vanmetnar og van- ræktar. Undantekningalítið er hér um að ræða aðgerðir, sem eru hlutfallslega sára ódýrar. Mörg dæmi hafa verið nefnd um minnkun kostnaðar þegar sjúkdómur fluttist af öðru tæknisviði á þriðja. Má þar t.d. bera saman berklameðferð áður fyrr, meðan enn tíðkaðist að skera burt hluta lungna og nú þegar meðferð fer að mestu fram í heimahúsum. Meðferð á taugaveiki krafðist áður erfiðrar meðferðar á sjúkrahúsum í að meðaltali 50 daga og svo mætti lengi telja. Frægasta dæmið er þó líklega mænusótt eða lömunarveiki. Tal- ið var að Bandaríkjamenn hefðu varið um ein- um milljarði dollara árlega til stofnana, sem fórnarlömb mænusóttarinnar voru vistuð á fyrir daga bóluefnisins. Lokaátakið til þess að fullkomna bóluefnið kostaði 40 milljónir doll- ara. Gott innlent dæmi, eru aðgerðir gegn rauð- um hundum. Kostnaður við uppeldi og fram- færslu eins barns, sem væri illa skaðað af rauð- um hundum væri sennilega meiri en kostnaður við aðgerðir, sem afstýra fóstursköðum af völd- um þessara veira. Aigengi og nýgengi klamydíasýkinga. Nú er ljóst að klamydíasýkingar eru mun algengari en lekandi á íslandi og líklega ámóta algengar og í nágrannalöndunum (2). Hér er því um verulegt heilbrigðisvandamál að ræða. Vitað er að C. trachomatis veldur mörgum sjúk- dómum, svo sem þvagrásarbólgu, legháls- bólgu, legkvefi (endometritis), eggjaleiðara- bólgu (sem oft leiðir til ófrjósemi), Reiters-sjúk- dómi, lyppubólgu (epididymitis) og lifrar- grenndarbólgu (perihepatitis) hjá fullorðnum. Að auki getur hún valdið lungnabólgu og slímhúðarbólgu í augum barna, sem koma í heiminn gegnum sýktan fæðingarveg (3).

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.