Læknablaðið - 15.11.1983, Blaðsíða 61
LÆKNABLADID
313
vinnur að ýmsu varðandi útgáfustarfsemi læknafé-
laganna.
Samskipti við önnur lönd
1. Annað hvert ár koma fulltrúar stjórna læknafélag-
anna á Norðurlöndum saman á fund, sem kallast
Central styrelses möte. Mæta par gjarnan 10-15
fulltrúar frá hverju félagi. Síðasti fundur var haldinn
í Loen í Noregi dagana 9.-13. júní 1982. Formenn L.i.
og L.R. og gjaldkeri L.Í. sátu fundinn sem fulltrúar
íslands. Auk almennra upplýsinga um félagsstarfið í
hverju landi var rætt um afstöðu læknafélaganna til
bandalaga háskólamanna í hverju landi, um lækna-
pörf og atvinnuhorfur og samvinnu læknafélag-
anna á Norðurlöndum, pegar þau standa í kjaradeil-
um. Samþykkt var að athuga stofnun kjaradeilu-
sjóðs eða á annan hátt tryggja, að læknasamtök í
kjaradeilum ættu rétt á fjárhagslegum stuðningi frá
læknasamtökum hinna landanna. Petta mál var
síðan rætt á fundi, sem haldinn var í sambandi við
125 ára afmæli danska læknafélagsins og er enn í
athugun, en áhugi er mikill á málinu.
Ákveðin ósk kom fram um, að næsta Central
styrelses möte yrði haldið á Íslandi, og er nú
ákveðið, að það verði haldið dagana 17.-22. júní
1984. Hvert land greiðir allan kostnað við þátttöku
eigin fulltrúa.
2. Den almindelige danske lægeforening hélt 125
ára afmælisfagnað dagana 31. ágúst og 1. sept. 1982
og síðan 100. ársþing sitt 2. sept. D.a.d.l. bauð L.í. að
senda 2 fulltrúa ásamt mökum í afmælisfagnaðinn,
og fóru formaður og varaformaður ásamt eigin-
konum. Þeir færðu danska læknafélaginu fundar-
hamar að gjöf frá L.í. Hamarinn er úr íslenzku birki,
og á hausinn eru felldar skífur úr hvaltönn. Hamar-
inn er útskorinn, og eru m.a. á honum merki danska
og íslenzka læknafélagsins. Práinn Árnason, mynd-
skeri, gerði hamarinn.
3. Nordisk Federation for Medicinsk Undervisning
hélt fund á Höfn í Hornafirði dagana 26.-29. sept.
1982. Fundarefni var: Udformning af det nordiske
samarbejde vedrörende lægers videreuddannelse.
Þorvaldur Veigar Guðmundsson og Haraldur Sig-
urðsson (frá F.U.L.) voru fulltrúar L.Í. í upphafi var
gerð grein fyrir framkvæmd samnings um sam-
eiginlegan norrænan vinnumarkað i hverju landi
fyrir sig og reynslu þeirri, sem fengizt hafði. Á
fundinum kom fram, að greinilega væri mikil þörf
fyrir að samræma framhaldsmenntun á Norðurlönd-
unum og sérstaklega var deilt á Svíþjóð fyrir að
hafa of lágar kröfur í sumum greinum. Rætt var um
þörf þess að stofna nefnd til að vinna að og vera
ráðgefandi um samræmingu framhaldsmentunar á
Norðurlöndum. Stjórnin lagði til, að leitað yrði eftir
að stofna slíka nefnd á vegum Norðurlandaráðs, en
meiri hluti fundarmanna taldi eðlilegt, að N.F.M.U.
stæði sjálf fyrir stofnun hennar, enda er N.F.M.U.
stofnun Norðurlandaráðs. Stjórninni var falið að
vinna upp nýjar tillögur, og voru skipaðir 2 fulltrúar
frá hverju landi til að fara síðan yfir þær. Þorsteinn
Sv. Stefánsson og Þorvaldur Veigar Guðmundsson
voru tilnefndir fulltrúar íslands. Nýjar tillögur bárust
frá nefndinni síðla vetrar, en gengu enn í sömu átt
og stjórnin hafði áður gert ráð fyrir, og voru þær
ekki samþykktar. Síðan hefur ekki heyrzt frá
stjórninni.
4. Finnska læknafélagið stóð fyrir fundi í Helsinki
dagana 12.-13. okt. 1982 og bauð til hans fulltrúum
læknafélaganna á Norðurlöndum og læknafélaga í
norðanverðri Vestur-Evrópu. Formaður L.í. var
fulltrúi íslands. Á fundinum var rædd afstaða lækna-
félaganna til World Medical Association. Annað
þeirra félaga, sem enn var í W.M.A. (írland), hafði
tilkynnt úrsögn sína, og hitt (Bretland) er að íhuga
að ganga úr samtökunum. Einkum var rætt um
samvinnu fundarlandanna um siðamál og aðeins
minnzt á möguleika á að stofna Evrópusamband
læknafélaga. Norska læknafélagið hefur boðað til
framhaldsfundar um þessi mál í lok september 1983.
5. Sveinn Magnússon, þáverandi formaður F.Í.L.Í.S.,
var fulltrúi L.Í. á aðalfundi sænsku læknasamtak-
anna, sem haldinn var í Stokkhólmi 13.-14. nóv. 1982.
Hann sendi skýrslu um helztu mál, sem þar voru
rædd.
6. Danska læknafélagið bauð L.Í. að senda fulltrúa á
fund, sem haldinn var 24. maí sl., en þar voru
sjúklinga- og lyfjatryggingar til umræðu. Stjórnin
fékk Jón Snædal, sem er núverandi formaður
F.Í.L.Í.S. og býr í Lundi í Svíþjóð, til að sitja fundinn
fyrir íslands hönd. Hann sendi greinargóða skýrslu
um fundinn.
Önnur mál
1. Árlega berast L.í. til umsagnar reglugerða- og
frumvarpstillögur. Á síðasta ári bárust m.a. tillögur
um frumvarp til laga um málefni fatlaðra og
frumvörp um breytingar á lögræðislögum og lögum
um heilbrigðisþjónustu. Stjórnin leitar að jafnaði
aðstoðar ýmissa lækna við gerð umsagna. Frum-
varpið um breytingu á lögum um heilbrigðisþjón-
ustu var þó kynnt óvenjuvel. Það var sent stjórnum
allra svæðafélaganna, Félagi yfirlækna, Félagi ísl.
heimilislækna, Sérfræðingafélagi íslenzkra lækna
og læknaráðum stærri spítalanna. Athugasemdir
bárust frá allmörgum þessara aðila, og vann stjórn
L.Í. úr þeim umsögn, sem send var heilbrigðis- og
trygginganefnd neðri deildar Alþingis. Bréflega og
munnlega var þess farið á leit að fá tækifæri til að
skýra athugasemdirnar munnlega fyrir nefndinni.
Þetta virtist fá jákvæðar undirtektir, en gefið í skyn,
að frumvarpið yrði ekki afgreitt á yfirstandandi
þingi. Það fór þó svo, að málið var fyrirvaralaust
tekið á dagskrá Alþingis 3 dögum fyrir þingslit.
Nokkrar athugasemdir L.Í. voru teknar til greina, en
ekki þær, sem mest áherzlan var lögð á, svo sem að
fella niður eða breyta 2. gr. frumvarpsins um
kvörtunarnefnd. Til þessarar nefndar má skjóta