Læknablaðið - 15.11.1983, Blaðsíða 47
LÆK.NABLAÐIÐ 69,303-305,1983
303
Gunnlaugur Snædal, Gunnar Biering, Helgi Sigvaldason, Jónas Ragnarsson
Fæðingar á íslandi 1972-1981, 9. grein:
LENGD MEÐGÖNGU
Mat á réttri lengd meðgöngu er einn af peim
páttum sem mikil áhersla er lögð á í mæðra-
verndarskoðunum. Einkum skiptir pað máli að
matið sé sem nákvæmast, pegar flýta parf
fæðingu. Áður fyrr var oft vandkvæðum
bundið að meta rétta lengd meðgöngu. Það
atriði sem helst var stuðst við í pví sambandi
voru upplýsingar um síðustu blæðingar konunn-
ar, p.e. fyrsta dag síðustu tíða, sem hefur
ávallt verið talið upphaf meðgöngu. Skoðun á
fyrri hluta meðgöngu hefur einnig mikið gildi,
einkum ef hún er gerð á fyrstu premur
mánuðum meðgöngutímans. Upplýsingar um
fyrstu fósturhreyfingar eru einnig pýðingar-
miklar við mat á lengd meðgöngu. Sama gildir
um mælingar á legbol og stækkun hans frá
einni skoðun til annarrar. Þessar upplýsingar
geta pó ekki talist mjög nákvæmur mæli-
kvarði. Á síðasta áratug hafa komið fram á
sjónarsviðið aðferðir svo sem sónarskoðanir,
sem aukið hafa til muna nákvæmni við mat á
réttri meðgöngulengd. Hér skiptir miklu máli
að fyrsta sónarskoðun sé framkvæmd snemma
í meðgöngu eða fyrir miðjan meðgöngutíma
og síðan sé gerður samanburður á peirri
skoðun og síðari ef vafi leikur á.
Mat á lengd meðgöngu hefur ávallt verið
talið pýðingarmikið atriði í tengslum við
fyrirburafæðingar. Sem dæmi má geta pess að
í íslenskri ljósmæðralöggjöf frá 1933 eru
ákvæði um að andvana burður skuli teljast
fósturlát ef konan er gengin með 28 vikur eða
skemur en barn ef hann fæðist eftir pennan
tíma. Á peim tíma var talið nánast óhugsandi
að fóstur gengið skemur en 28 vikur gæti
fæðst lifandi.
Fyrrnefnd atriði til mats á lengd meðgöngu
eru pó oft brigðul. Þannig muna konur ekki
alltaf dagsetningu síðustu blæðinga og getur
jafnvel munað um heilan mánuð hvað pað
snertir. Skoðun hjá lækni getur einnig skeikað
um tvær til prjár vikur, jafnvel pótt sú skoðun
fari fram á fyrsta priðjungi meðgöngutímans.
Skekkjan getur orðið enn meiri ef fyrsta
skoðun fer fram á síðari hluta meðgöngu.
Upplýsingar um fósturhreyfingar eru heldur
ekki óskeikular, og sama má segja um són-
arskoðun, pó par sé minnst hætta á röngu
mati. Á síðari árum hefur einnig verið lögð
áhersla á pyngd nýbura, pví að par er um beina
mælingu að ræða. Um pyngd og lengd nýbura
verður nánar rætt í síðari grein. Faglegt
proskamat á nýburum, gert eftir fæðinguna,
sker úr um lengd meðgöngunnar svo að litlu
skeikar, ef hin atriðin hafa á einhvern hátt
brugðist. Gallinn er sá að petta proskamat
verður einungis gert eftir að barnið er fætt.
Allt frá pví að nýja fæðingaskráningin hófst
árið 1972 var lögð áhersla á skráningu á lengd
meðgöngu og jafnframt óskað upplýsinga um
fyrsta dag síðustu tíða í fæðingartilkynningu.
Telja má að vel hafi tekist pegar frá byrjun pví
að á fyrsta ári skráningarinnar var lengdar
ro
o'
■'T
Mynd 1. Hlutfallsleg skipting fæðinga eftir
medgöngulengd, 1972-1981.