Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.11.1983, Qupperneq 27

Læknablaðið - 15.11.1983, Qupperneq 27
LÆKNABLADID 69,289-293,1983 289 Ólafur Steingrímsson', Hannes Þórarinsson2, Anna Sigfúsdóttir1, Arinbjörn Kolbeinsson1 KÖNNUN Á TÍÐNISÝKINGA AF VÖLDUM C. TRACHOMATIS Á ÍSLANDI í SAMANBURÐIVIÐ TÍÐNILEKANDA Rannsókn á sjúklingum er leituðu til húð- og kynsjúk- dómadeildar Heilsuvemdarstöðvar Reykjavíkur árið 1982 INNGANGUR Á síðari árum hefur C. trachomatis komið fram á sjónarsviðið sem ein algengasta orsök kynsjúkdóma á Vesturlöndum (1). Ræktanir á C. trachomatis eru óvíða framkvæmdar í sama mæli og; ræktanir á N. gonorrhoeae og sjúk- dómurinn er ekki tilkynningarskyldur nema í fáum ríkjum, svo sem á íslandi og Bretlandi. Þess vegna er heildartíðnin óviss í flestum löndum. Á hinum Norðurlöndunum eru rækt- anir víða framkvæmdar í verulegum mæli og er ljóst að C. trachomatis sýkingar eru algeng- ari par en lekandi (2, 3). Lítið er vitað um tíðni þeirra hér á landi vegna pess að bakteríugreining var ekki tiltæk innanlands til skamms tíma. Rannsókn á nokkr- um sýnum frá sjúklingum með einkenni um pvagrásarbólgu, framkvæmd af Möller og fleirum, gaf vísbendingu um að klamydíasýk- ingar væru óalgengar á íslandi (4). Ræktanir á C. trachomatis hófust á Sýkla- deild Rannsóknastofu Háskólans við Barón- stíg í desember 1981. Eftirfarandi rannsókn var gerð til pess að kanna tíðni klamydíasýk- inga í samanburði við lekanda meðal sjúklinga sem leituðu til húð- og kynsjúkdómadeildar Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur árið 1982. EFNVIÐUR OG AÐFERÐIR Sjúklingar. Tekin voru sýni til ræktunar frá öllum sjúklingum, sem komu til húð- og kynsjúkdómadeildarinnar í Reykjavík vegna gruns um lekanda eða klamydíasýkingu. Ýmist var um að ræða sjúklinga, sem leituðu til stöðvarinnar vegna einkenna eða einstaklinga, sem taldir voru hafa haft samfarir við sýkt fólk og komu vegna tilmæla lækna deildarinnar Frá Lýkladeild Rannsóknastofu Háskólans við Barónsstíg og 2kynsjúkdómadeild Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur. Barst ritstjórn 09/07/83. Samþykkt til birtingar 12/07/83 og send í prentsmiðju. eða annarra lækna. Meðal þeirra voru rekkju- nautar kvenna, sem greindar voru á Kvenna- deild Landspítalans. í stöku tilvikum var um að ræða einstaklinga, sem voru einkennalausir, en komu af eigin hvötum til pess að fá úr pví skorið, hvort peir bæru með sér kynsjúkdóma- bakteríur. í nær öllum tilvikum voru tekin sýni bæði til lekandaræktana og til ræktana fyrir C. trachomatis. í undantekningartilvikum var pó aðeins gerð ræktun fyrir annarri bakteríunni, ef um var að ræða einkennalausan einstakling, sem hafði smitast af sjúklingi, sem aðeins önnur bakterían hafði ræktast frá. Upplýsingum um sjúklingana var safnað afturvirkt (retrospective), með pví að fara yfir sjúkraskrár peirra. Athugað var hvers vegna sjúklingarnir leituðu til deildarinnar og hver kynskipting og aldursdreifing peirra var. Einn- ig var athugað hvort peir hefðu haft kynsjúk- dóm áður og hve rekkjunautar voru margir. Reynt var að rekja smitferil eins og hægt var og reyndist pað oftast mögulegt 1-2 mánuði aftur í tímann. Einnig var athugað hve margir karlanna hefðu haft einkenni um pvagrásar- bólgu. Sýnataka. Sýni til lekandaræktana voru tekin frá pvagrás hjá körlum og pvagrás og leghálsi hjá konum. Þegar ástæða pótti til voru einnig tekin sýni frá hálsi og endaparmi. Sýnin voru tekin með Culturette (R) sýnatökusettum, sem í var endurbætt Stuarts-æti og flutt til rann- sóknastofunnar innan priggja klukkustunda. Sýni til ræktana á C. trachomatis voru tekin frá pvagrás hjá körlum og leghálsi hjá konum. Við sýnatöku frá urethra var pess gætt að stinga pinnanum 2-3 cm upp í pvagrásina og honum nuddað við slímhúðina nokkrum sinn- um. Hjá konum voru sýnin tekin úr leghálsopi. Sýnin voru tekin á kalsiumalginatpinna og sett í sérstakt flutningsæti. Flutningsætið var
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.