Læknablaðið - 15.12.1985, Blaðsíða 4
334
LÆKNABLAÐIÐ
INNGANGUR
Bæklingur sá, sem nú kemur fyrir sjónir
lækna, er miðaður við þarfir þeirra, sem ekki
hafa áður skrifað fræðilega grein eða flutt
fyrirlestur um niðurstöður kannana/rann-
sókna.
f Læknablaðinu komu leiðbeiningar fyrir
greinahöfunda fyrst á árinu 1960 (1). Við þær
varaukið 1973 (2)og ennfimm árum síðar(3).
Árið 1981 (4) var endanlega horfið að kröfum
Vancouverkerfisins (5). Fjöldi ritstjóra tíma-
rita á sviði læknisfræði og skyldra greina hafa
komið sér saman um það, að kerfið gildi um
handrit, sem send eru með ósk um birtingu
(6). Leiðbeiningar ritstjórnar (4) voru tvívegis
birtar óbreyttar í Handbók lækna (7, 8).
Á árinu 1983 birtust í Læknablaðinu tvær
greinar. Fjallar önnur um það, hvernig fara
megi að við að semja og flytja fyrirlestur (9).
Hinn er um helstu reglur, er gilda um ritun
fræðilegra greina (10). Við fyrri greinina
hefur verið aukið efni og settar inn myndir og
er hún nú orðin sérstakur kafli: Að tala á
fundum og ráðstefnum.
Nokkurra ára reynsla við ritstjórn
málgagns lækna hefur fært mér sönnur þess,
að nauðsynlegt er að auka við leiðbeining-
arnar til greinahöfunda, þó ekki væri til ann-
ars en að létta ritstjórn starfið. Áður hefur ver-
ið ymprað á því að taka beri upp kennslu
í læknadeild Háskóla fslands í ritun vís-
indagreina (11). Meðan það gerist ekki, verð-
ur þetta fræðslukver að nægja.
Efnis hefur verið aflað víða, m.a. úr bókum
og tímaritum. Þeirra er getið í tilvitnunum,
sem eru í samræmi við kröfur Vancourver-
kerfisins, samanber endurskoðaðar reglur
ritstjórnar Læknablaðsins (12).
TILVITNANIR
1. Læknablaðið 1960; 44: XVIII.
2. Leiðbeiningar til greinahöfunda. Læknablaðið
1973; 59; 34-5.
3. Leiðbeiningar til greinahöfunda. Læknablaðið
1978; 64: 37-40.
4. Leiðbeiningar fyrir greinahöfunda. Læknablaðið
1981; 67: 23-6.
5. International Steering Committe ofMedical Editors.
Br Med J 1978; i: 1334.
6. International Committee of Medical Journal Edi-
tors. Uniform requirements for manuscripts submit-
tedtobiomedicaljournals. BrMed J 1982; 284:1766-
70.
7. Leiðbeiningar til greinahöfunda. Handbók lækna 1.
árg. 1981-82. Kaupmannahöfn, Læknablaðið: 1981;
s. 73-6.
8. Leiðbeiningar fyrir greinahöfunda. Handbók lækna
2. árg. 1983. Kaupmannahöfn, Læknablaðið: 1983,
s. 83-6.
9. Bjarnason Ö. Heilræði handa verðandi fyrirlesara.
Læknablaðið 1983; 69: 243-5.
10. Bjarnason Ö. Hollráð handa ungum höfundi.
Læknablaðið 1983; 69: 294-7.
11. Bjarnason Ö. Um norrænan vinnumarkað lækna,
rétt til sérfræðiviðurkenningar og skylduritgerðir
umsækjenda. Læknablaðið 1981; 67: 190-1.
12. Reglur ritstjórnar Læknablaðsins um birtingu efnis,
um frágang handrita, um meðferð og mat á efni og
um prófarkalestur. Handbók lækna 3. árg. 1984/85.
Kaupmannahöfn: Læknablaðið, s. 35-8.