Læknablaðið - 15.12.1985, Blaðsíða 44
360
LÆKNABLAÐIÐ
Tafla IV. Skipting sjúkrarúma 1962, 1972 og 1982 eftir rekstraraðila (dagvistun undanskilin).
1962 1972 1982
Rekstraraðili N °7o N % N %
Ríki 728 (39,3) 951 (30,4) 1.121 (28,9)
Sveitarfélög 831 (44,8) 1.068 (34,1) 1.265 (32,5)
Félög, félagasamtök og sjálfseign 295 (15,9) 1.112 (35,5) 1.499 (38,6)
Samtals 1.854 (100,0) 3.131 (100,0) 3.885 (100,0)
Rúm á hverja 1.000 íbúa 10,1 14,9 16,9
breytur (continous variables) og fer það eftir
nákvæmni mælitækjanna, hversu mörg gildi
geta lent innan tiltekinna marka.
Hvort sem breytur fást með því, að skipta í
tvo flokka, telja eða mæla, þarf að flokka
þær. Það leiðir til töflugerðar. Kjósi menn að
túlka efnivið töflunnar í mynd, ber að velja
línurit við hæfi.
Línurit eru teiknuð í hnitakerfi.
Á lárétta ásinn eru vanalega mörkuð flokk-
unargildi, svo sem aldur, ártöl og mælingar.
Á lóðrétta ásinn eru mörkuð fjöldi athug-
ana, hundraðshlutar, tíðnitölur, bæði beinar
tölur og hlutfallstölur þeirra.
Ekki er hægt að setja algildar reglur um
gerð línurita, en hér gilda almennt eftirfar-
andi fyrirmæli:
Ekki skal setja inn fleiri strik eða tákn, en
auðvelt er að leiða augum.
Sérhvert línurit á að geta staðið eitt sér, án
frekari skýringa. Þess vegna þarf að áletra það
skilmerkilega: Á því skal vera númer, þannig
að vitað sé, hvar í röð mynda línuritið er,
kvarðar skulu vera greinilegir og vel merktir
og hið sama gildir um skýringartákn. Þegar
við á skal þess getið, hvaðan mynd er fengin.
í prentuðum texta er titill venjulega settur
neðan við myndir.
Þegar fleiri en ein breyta er sýnd, skal
Tafla V. Fjöldi lœkna og kandidata 1960-1985 og
ágiskun um fjölda þeirra 1990 og 2000.
Læknar búsettir á íslandi Aðrir læknislærðir Læknar alls
1. janúar 1960... 218 (63,4%) 126 (36,6%) 344
1. janúar 1965 ... 252 (59,6%) 171 (40,4%) 423
1. janúar 1970... 280 (57,9%) 204 (42,1%) 484
1. janúar 1975... 353 (61,5%) 221 (38,5%) 574
1. janúar 1980... 466 (57,7%) 341 (42,3%) 807
1. janúar 1985... 550 (55,3%) 445 (44,7%) 995
1. janúar 1990... (639) (55,3%) (516) (44,7%) 1155
1. janúar 2000 (775) (52,5%) (700) (47,5%) 1475
f \
0
V____________________________J
Mynd 8. Skyggna númerfjögur: TaflalV
merkj a hvora (hverj a) fyrir sig með viðeigandi
táknum og kvörðum. Línurit eru lesin frá
vinstri til hægri og neðan frá og upp eftir.
Ekki skal draga fleiri hnit en nauðsynleg
eru, til þess að auðvelda lesanda sjónun.
Strik í kvörðum skulu vera breiðari en hnit.
Strik er tákna breytur skulu vera breiðari en
strik í kvörðum og hnitum.
Samræmi skal vera milli strika, tákna,
tölustafa og bókstafa, þannig að allir hlutar
r \
©
v____________________________J
Mynd 9. Skyggna númer fimm: Tafla V