Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.1985, Side 46

Læknablaðið - 15.12.1985, Side 46
Orðabókarsjóður læknafélaganna Fyrir skemmstu var stofnaður Oröabókarsjóður Læknafélag- anna. Hlutverk sjóðsins er, að standa undir kostnaöi við gerð íðorða- safns lækna og i framhaldi af því, frágangi læknisfræðilegrar orða- bókar. Stofnfé sjóðsins er það fé, sem læknafélögin hafa lagt fram siðastliðin átta ár, til þess aö greiöa undirbúning verksins, og fram- lög annarra aðila, sem berast sjóðnum fyrir 15. okt. 1985. Læknum er gefinn kostur á því, að gerast stofnfélagar sjóðsins með því aö greiða 1500 krónur — eittþúsund og fimmhundruð krónur — inn á reikning sjóösins í Búnaðarbanka íslands. Framlag þetta er jafnframt fullt áskriftargjald fyrir íðorðasafn lækna, sem koma mun út í 15 til 20 heftum á næstu fjórum til fimm árum. Þeir læknar, sem vilja fá íðorðasafnið frá byrjun, eru beðnir að greiða áðurgreint gjald í reikning sjóðsins númer 26-8925 í Bún- aðarbanka íslands í Austurstræti 5. Ef greitt er i öörum bönkum eða í sparisjóðum eru auðkenni reikningsins: 301-26-8925. Aðgætið að setja rétt heimilisfang i innlagnarseðil. Orðanefnd læknafélaganna

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.