Læknablaðið - 15.12.1985, Page 46
Orðabókarsjóður
læknafélaganna
Fyrir skemmstu var stofnaður Oröabókarsjóður Læknafélag-
anna.
Hlutverk sjóðsins er, að standa undir kostnaöi við gerð íðorða-
safns lækna og i framhaldi af því, frágangi læknisfræðilegrar orða-
bókar. Stofnfé sjóðsins er það fé, sem læknafélögin hafa lagt fram
siðastliðin átta ár, til þess aö greiöa undirbúning verksins, og fram-
lög annarra aðila, sem berast sjóðnum fyrir 15. okt. 1985.
Læknum er gefinn kostur á því, að gerast stofnfélagar sjóðsins
með því aö greiða 1500 krónur — eittþúsund og fimmhundruð
krónur — inn á reikning sjóösins í Búnaðarbanka íslands. Framlag
þetta er jafnframt fullt áskriftargjald fyrir íðorðasafn lækna, sem
koma mun út í 15 til 20 heftum á næstu fjórum til fimm árum.
Þeir læknar, sem vilja fá íðorðasafnið frá byrjun, eru beðnir að
greiða áðurgreint gjald í reikning sjóðsins númer 26-8925 í Bún-
aðarbanka íslands í Austurstræti 5. Ef greitt er i öörum bönkum eða
í sparisjóðum eru auðkenni reikningsins: 301-26-8925.
Aðgætið að setja rétt heimilisfang i innlagnarseðil.
Orðanefnd læknafélaganna