Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.1985, Side 50

Læknablaðið - 15.12.1985, Side 50
364 LÆKNABLAÐIÐ VIÐAUKII REGLUR RITSTJÓRNAR um birtingu efnis, um frágang handrita, um meðferð og mat á efni og um prófarkalestur EFNI Efni, sem óskað er birtingar á, skal sent ritstjórn Læknablaðsins, Domus Medica, Egilsgötu, 101 Reykjavík. Skulu því fylgja upplýsingar um vinnustað og heimilisfang höfundar (höfunda). Skal þess getið frá hvaða stofnun(um) efnið er og tengslum höfunda við stofnanir. Læknablaðið birtir vísindalegar greinar um öll svið læknisfræðinnar, hvort sem þær eru byggðar á eigin athugunum og rannsóknum eða um er að ræða samantekt á reynslu annarra, bæði yfirlits- og fræðslugreinar. Blaðið birtir efni er varðar málefni L. í., svæða- og sérgreinafélaga og um hvert það efni annað, sem tengt er hagsmuna- og áhugamálum lækna. Þá eru og birtar stuttar athugasemdir og lesendabréf. GREINAR Greinar skulu settar upp á skýran og ljósan hátt. Efnivið fræðilegra greina skal skipað niður samkvæmt IMRAD-kerfinu (Introduc- tion, Material (or Patients) and Methods, Results, Discussion: Inngangur, efniviður (eða sjúklingar) og aðferðir, niðurstöður, umræða). Greinartitill skal vera stuttur, en skýr, og lýsa viðfangsefni greinarinnar. Stundum er betra að hafa undirtitil. Inniheldur aðaltitill þá eitt eða fleiri lykilorð sem nauðsynleg eru til réttar færslu greinarinnar í spjaldskrá. Útdráttur (abstract): í upphafi greinar skal í örstuttu máli segja frá efni hennar og þar sem það á við, hvert sé tilefni hennar og/eða tilgangur með birtingu hennar. Greinar skulu vera á góðri íslenzku og skal íslenzka öll erlend orð og heiti, verði því komið. Ef ekki er til íslenzkt heiti eða hugtak, skal það erlenda skilgreint í stuttu máli og það síðan sett í sviga aftan við skilgreininguna. HANDRIT Ritstjórn skal senda frumrit, auk tveggja eintaka í ljósriti. Einnig skulu tvö ljósrit fylgja hverju fylgiskjali og öllum myndum. Frágangur handrita skal vera í samræmi við Vancouverkerfið, samanber International Committee of Medical Journal Editors. Uni- form requirements for manuscripts submitted to biomedical journals. Br Med J 1982; 284: 1766-70. Handrit skulu vélrituð skýrt og greinilega öðrum megin á pappírsakir í stærðinni A4, (með 50 mm eyðu vinstra megin og 20 mm eyðu hægra megin). Línubil skal vera tvöfalt (8,5 mm). Ekki er leyfilegt að vélrita á jaðrana. Blaðsíður handrits skulu tölusettar í röð í efra horni hægra megin. Slík töluröð er áframhaldandi á efniságripi og heimildum. Áður en handrit er sent ritstjórn skal það vandlega yfirfarið. Minniháttar leiðréttingar má vélrita inn á milli lína. Sé hins vegar um meiriháttar leiðréttingar að ræða, skal vélrita þann hluta að nýju. TÖFLUR Töflur spara oft langt mál og skal ekki að nauðsynjalausu endurtaka í texta þær upplýs- ingar, sem í töflum standa. Töflur skulu hafðar eins einfaldar og skýrar og unnt er. Töflur á að vera hægt að skilja óháð texta í aðalmáli. Á þeim skal vera númer, t.d. Tafla I, eða Table I, þegar ástæða er til að hafa texta töflunnar á ensku. Á þeim skal vera titill eða yfirskrift. Þar skal í örstuttu máli gera grein fyrir efni töflunnar, hvers konar upplýsingum hefir verið safnað, hvar, hvenær o.s.frv.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.