Læknablaðið - 15.12.1986, Blaðsíða 14
328
LÆKNABLAÐIÐ
áætlun um æskilegar blóðónæmisrannsóknir hjá
öllum vanfærum konum samkvæmt
meðfylgjandi töflu IX.
SKIL
Þetta yfirlit um mótefnarannsóknir 1970-1984
veitir upplýsingar um mótefnamyndun hjá bæði
Rhesus D-neikvæðum og Rhesus D-jákvæðum
mæðrum. Það sýnir breytingar þær á tíðni og
dreifingu mótefna í blóðflokkakerfum hjá
vanfærum konum, sem orðið hafa í kjölfar
ónæmisaðgerða með anti-D immúnglóbúlín og
mótefnaleit hjá öllum þunguðum konum
1978-1984.
Óvanalegum mótefnum fjölgar stöðugt, meðan
anti-D mótefnum fækkar. Tíðni jákvæðra
skimprófa reyndist hærri hjá D-jákvæðum
konum en hjá D-neikvæðum eftir að skipulögð
leit hófst í hverri meðgöngu. Hins vegar kom í
ljós, að á meðan rannsóknin hjá D-jákvæðum
konum var tímasett í byrjun meðgöngunnar,
fundust flest ný mótefni af völdum
blóðflokkaósamræmis vegna vandamála, sem
tengdust fæðingunni eða nýburunum. Með
endurteknum skimprófum hjá D-neikvæðum
konum greinast mótefnin tímanlega og því er
hægt að bregðast fyrr við þegar aukaverkanir
segja til sín. Nýburagula vegna
blóðflokkaósamræmis reyndist vera til staðar í
helmingi þeirra barna D-jákvæðra mæðra, sem
voru rannsökuð. Þótt sjúkdómurinn væri á vægu
stigi hjá flestum þeirra, voru einnig dæmi um
alvarlegar afleiðingar. Könnunin gefur tilefni til
að endurskipuleggja staðalrannsóknir kvenna í
mæðraeftirlitinu þannig, að blóðónæmisat-
huganir verði meira í samræmi við núverandi
aðstæður.
Höfundur þakkar yfirlækni Blóðbankans, dr.
med. Ólafi Jenssyni, starfsfóki Rhesusvarna
Blóðbankans og Fæðingardeildar Landspítalans
fyrir aðstoð og samvinnu við efnisöflun og
úrvinnslu.
SUMMARY
New cases of red cell antibodies detected in antenatal
screening during 1970-1984 were reviewed. A total of
151 allo-antibodies were recorded, 97 in 80 Rh0
(D)-negative and 54 in 47 Rhc (D)-positive women.
Although anti-D proved to be the most common
antibody found, a steady increase in irregular antibodies
was evident. One fifth of all new antibodies in the
Rhesus-system and the majority (80%) of antibodies in
the Kell, Duffy, Kidd and MNSs blood groups were
formed by D-positive females. While most of the new
cases of immunization were found in the third trimester
of pregnancy in D-negative women, the majority of
antibodies in D-positive women were recorded in
association with labor. A history of previous blood
transfusion was obtained in 49% of the D-positive
group, as compared to 9% of the D-negative. All
infants, excluding two (94 of totally 130), carrying the
antigen Rh0 (D) or the combination of D and C or E and
born to mothers with the corresponding antibody
(antibodies) had a positive direct antiglobulin test
(DAT). Infants born to D-positive mothers with
irregular antibodies were DAT positive in 50% of the
cases tested (20 tested of totally 36 neonates).
HEIMILDIR
1. Biering G, Snædal G, Theodórs A. Rhesus-varnir á
Isla'ndi 1970. Læknablaðið 1971; 57:67-72.
2. Biering G, Snædal G, Rhesusmál á íslandi.
Læknablaðið 1980; 66: Fylgirit nr. 10; 1-29.
3. Theodórs A, Sigurðsson BV, Jensson Ó.
Blóðónæmisrannsóknir vegna Rhesusvarna:
Aðferðir. Læknablaðið 1980; 66: Fylgirit nr. 10;
30-33.
4. Giblett ER. Blood group alloantibodies: An
assessment of some laboratory practices.
Transfusion 1977; 17: 299-308.
5. Perrault R, Högman C. Automated red cell
antibody analysis. A parallel study. Vox Sang 1971;
20: 340-355.
6. Kornstad L. New cases of irregular blood group
antibodies other than anti-D in pregnancy. Acta
Obstet Gynecol Scand 1983; 62: 431-436.
7. Pepperell RJ, Barrie JU, Fliegner JR. Significance
of red-cell irregular antibodies in the obstetric
patient. Med J Aust 1977; 2; 453-456.
8. Smith BD, Haber JM, Queenan JT. Irregular
antibodies in pregnant women. Obstet Gynecol
1967; 29: 118-124.
9. Hardy J, Napier JAF. Red cell antibodies detected
in antenatal tests on Rhesus positive women in
South and Mid Wales, 1948-1978. Br J Obstet
Gynaecol 1981; 88: 91-100.
10. Fraser ID, Tovey GH. Observations on Rh
isoimmunisations: Past, present and future. Clin
Haemat 1976; 5: 149-163.
11. Mannessier L, Goudemand M, Delecour M. Les
alloimmunisations a des antigenes de groupe
erythrocytaire autres que D Intéret du dépistage.
Lille Medical 1980; 25: 90-93.
12. Beal RW. Non-rhesus (D) blood group
isoimmunization in obstetrics. Clin Obstet
Gynaecol 1979; 6: 493-508.
13. Giblett ER. Blood group antibodies causing
hemolytic disease of the newborn. Clin Obstet
Gynecol 1964; 7: 1044-1055.
14. Mickley H. Hemolytic disease of the newborn due
to antibodies other than rhesus anti-D. Br Med J
1981; 283; 1605-1606.
15. Nelson J, Shulman I, Bernard B, Powars D.
Hemolytic disease of the newborn in infants born to
Rh0 (D) positive mothers with unexpected anti-
bodies. Transfusion 1984; 24: 429 (Abstract).