Læknablaðið - 15.12.1986, Síða 20
334
LÆKNABLAÐIÐ
um fjölda starfandi í atvinnugreinum frá
Framkvæmdastofnun ríkisins. Unnt er að reikna
út nýgengi slysa í hverri atvinnugrein, þegar
þekktur er fjöldi starfandi í henni. Þetta á við um
höfuðborgarsvæðið. Svo enn sé tekið dæmið af
landbúnaði, var reiknaður hlutfallslegur fjöldi
slasaðra karla árið 1983 36.9, en starfandi í
atvinnugreininni voru 606 karlar. Því verður
fjöldi slysa á hverja 10.000 starfandi karla 607.3.
Með nýgengitölunum er hægt að bera saman
atvinnugreinarnar á réttari hátt, en ef slíkur
samanburður væri gerður eftir hlutfallstölum
einum.
Fjöldi slysa á hverja 10.000 í aldurshópum,
nýgengi. Frá Framkvæmdastofnun ríkisins
fengust einnig tölur um fjölda starfandi í
aldurshópum nokkurra atvinnugreina. Þetta á við
um höfuðborgarsvæðið. Eftir sömu
meginaðferðum og lýst er hér að framan, er
reiknað út nýgengi slysanna í hverjum aldurshópi
þessara atvinnugreina. Það hefur verið látið ráða
vali atvinnugreinanna, sem þannig er fjallað um,
hve mörg slys hafa orðið í þeim. Þannig hafa þær
greinar, sem 25 eða fleiri höfðu slasast í af öðru
hvoru kyninu, verið athugaðar með tilliti til
aldurshópa.
Tölfræðilegar aðferðir. Reiknuð eru út 95%
öryggismörk fyrir nýgengitölurnar, sem fundnar
eru í þessari skýrslu. Þau eru mynduð eftir þeirri
meginreglu, að líkindin eru 95% á að þau
innihaldi hið »sanna« gildi (8). Af
öryggismörkunum fást ákveðnar upplýsingar um
áreiðanleika niðurstaðnanna.
Við útreikningana á neðri öryggismörkunum er
notuð jafnan:
I- 1.96 X (kvaðratrótin af (I/R)),
og við efri öryggismörkin er notuð jafnan:
1+ 1.96 X ( kvaðratrótin af (I/R)).
(I þýðir nýgengitala og R stendur fyrir
samanlagðan áhættu tíma þ.e.a.s. fjölda
starfandi í viðkomandi atvinnugrein).
Ekki er gerður tölfræðilegur samanburður á
nýgengitölum í þessari skýrslu, en hægt er að gera
sér nokkra grein fyrir hvort líkindi á að munur
milli nýgengitalna sé sannur með því að skoða
öryggismörk þeirra. Könnunina ber að skoða
fyrst og fremst sem lýsingu á nýgengi slysa á
höfuðborgarsvæðinu.
NIÐURSTÖÐUR
Niðurstöður eru sýndar í töflum og á myndum.
Tafla II sýnir fjölda slysa i úrtakinu á
höfuðborgarsvæðinu hjá körlum og konum í
hverri atvinnugrein, en út frá honum og fjölda í
úrtakinu og þeim heildar fjölda, sem kom til
Slysadeildarinnar vegna vinnuslysa, er reiknaður
út fjöldi slysa á hverja 10.000 starfandi í
greininni. Hér er því um að ræða nýgengitölur.
Af þeim sést tíðni slysanna í hverri grein miðað
við sama fjölda starfandi. Neðst í töflunni eru
líka sýndar tölur fyrir allar atvinnugreinarnar
saman. Það urðu því 1061.0 vinnuslys á hverja
10.000 starfandi karlmenn og 245.7 vinnuslys á
hverja 10.000 starfandi konur á árinu 1983. Ef
samanburður á milli atvinnugreina er gerður, eða
að einstaka greinar eru bornar saman við allar
atvinnugreinarnar saman er raunhæfast að gera
slíkan samanburð með þessum nýgengitölum.
Hvað varðar karla eru nokkrar greinar sem skera
sig úr, hafa hærri nýgengitölur en allar
atvinnugreinar saman. Hæst er ál- og járnblendi,
þá málm- og skipasmíðar, persónuleg þjónusta,
fiskveiðar, vefjariðnaður, trjávöruiðnaður og
matvælaiðnaður. Sumar eru lægri en
nýgengitalan fyrir allar atvinnugreinar saman og
nægir þar að nefna fjölmennar greinar svo sem
heildverslun, smásöluverslun, opinbera
stjórnsýslu og opinbera þjónustu.
Hjá konunum eru nokkrar greinar, sem hafa
hærri nýgengitölur en allar atvinnugreinar saman,
hæst eru fiskveiðar, fiskvinnsla, vefjariðnaður,
matvælaiðnaður, veitingar og hótel og götu- og
sorphreinsun. Sumar greinar hafa lægri
nýgengitölu en allar atvinnugreinar saman, svo
sem heildverslun, smásöluverslun, opinber
þjónusta og menningarstarfsemi.
Myndir 1 og 2 byggja á tölum í töflu II.
Hafa ber í huga þegar nýgengitölurnar eru
skoðaðar að sumar þeirra byggja á fáum slysum
eða að slysin verða í fámennum greinum. Sumar
þessar talna eru því háðar óvissu, sem reynt er að
meta með því að reikna öryggismörk fyrir þær,
eins og sýnd eru í töflunni. 95% öryggismörkin
eru þannig fundin að líkindin á að þau innihaldi
hið »sanna« gildi eru 95%. Ef nýgengitalan fyrir
ákveðna grein er hærri en nýgengitalan fyrir allar
atvinnugreinar saman, og lægri 95%
öryggismörkin eru hærri tala en hærri 95%
öryggismörk fyrir allar atvinnugreinar saman, eru
sterk likindi á að munurinn á nýgengitölunni fyrir
greinina og nýgengitölunni fyrir allar
atvinnugreinarnar sé »sannur«. Hvað varðar
karla þá er þessu þannig varið um ál- og