Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1986, Síða 58

Læknablaðið - 15.12.1986, Síða 58
360 LÆKNABLAÐIÐ Nr. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Sjúklingar HJH FHM GA JGS HV BS KF EO JHM KJ Grein. ár 1973 1974 1977 1978 1979 1980 1982 1984 1984 1985 Aldur 45 69 67 25 48 47 55 67 36 66 Áhættuþætt: Saga um bþ + + + + + + + Marfan sjd. + + bþ við komu + + + + + Kvartanir við komu: brjóstverk + + + + + + + eink. frá kviðarholi + + + + + bakverkir + + + + + Syncope + + Flokkur DeBakey 3 3 1 1 3 3 2 1 3 3 Angiografia + + + + + + Aðgerð + + Liftími frá grein. (ár) 7 4 <1 <1 <1 <1 <1 Látnir ’86 + + + + + + + Taflan sýnir greiningarár, aldur við greiningu, áhættuþætti, einkenni flokka, rannsóknir, meðferð og afdrif sjúklinganna. Það kemur fram i okkar rannsókn, að um mjög alvarlegan sjúkdóm er að ræða, með hárri dánartíðni. Hjá einum sjúklingi (55 ára konu) gréri klofagúlpurinn af sjálfu sér, þótt hann ætti upptök sín í rismeginæð, sem er mjög sjaldgæft. ÁHRIF DISOPYRAMIDS Á SLEGIL TAKTTRUFLANIR í SJÚKLINGUM MEÐ HJARTAVÖÐVASJÚKDÓM (HCM) Helgi Óskarsson, Árni Kristinsson. Lyflækningadeild Landspítalans. Stór hluti sjúklinga með HCM hafa tiðar slegil takttruflanir, sem í þriðjungi tilfella eru illkynja og margfalda þá árlega dánartíðni, eða úr u.þ.b. 3% í rúmlega 8%. Oftast er einnig um að ræða truflun á starfsemi slegils, í hlébili (diastolu) og stundum slagbili (systolu), sem getur haft veruleg áhrif á blóðrás þessara sjúklinga og valdið miklum einkennum. Lyfið amiodarone kemur að verulegu leyti í veg fyrir alvarlegar slegil takttruflanir í sjúklingum með HCM og virðist minnka dánartíðni þeirra. Það hefur hins vegar engin marktæk áhrif á starfsemi hjartans í hlébili eða slagbili og hefur auk þess all tíðar og oft alvarlegar aukaverkanir. Lyfið disopyramid hefur einnig hamlandi áhrif á slegil takttruflanir í ýmsum hjartajúkdómum, en þau áhrif hafa þó lítið verið könnuð í HCM sérstaklega. Hins vegar er vitað að það hefur æskileg áhrif á hjarta og blóðrás sjúklinga með þennan sjúkdóm og dregur úr einkennum þeirra. Auk þess hefur það mun færri alvarlegar aukaverkanir en amiodaron. Tilgangur þessarar rannsóknar var því sá að athuga betur áhrif disopyramids á slegil takttruflanir í HCM og kanna þannig hvort þau áhrif, ásamt öðrum jákvæðum áhrifum lyfsins, geri það eftirsóknarvert I meðferð sjúklinga með HCM. Athugaðir voru 10 sjúklingar, meðalaldur 50 ár (35-69), með greinda HCM. Allir höfðu verið án lyfja með áhrifum á hjarta og blóðrás í a.m.k. 10 daga áður en rannsóknin hófst. Eftir grunnathuganir var gerð 48 klukkustunda hjartasíritun hjá hverjum sjúklingi fyrir sig. Síðan var hafin meðferð um munn með disopyramid 200 mg þrisvar á dag í fimm daga. Þá var endurtekin 48 klst. hjartasiritun á sömu meðferð. Úrlestur úr hjartasíritum var gerður með sérhönnuðu tölvuforriti, undir stjórn sérþjálfaðra meinatækna. Einn og sami læknirinn fór yfir sýnishorn af þeim hjartsláttartruflunum er fram komu á hverri upptöku. Síðan voru bornar saman slegil takttruflanir fyrir og á meðferð. Niðurstöður urðu þær, að sjö sjúklingar af 10 höfðu alvarlegar slegil takttruflanir (Ryan flokkur IV) fyrir meðferð en þrír aðeins minniháttar (Ryan flokkur I). Á meðferð fækkaði aukaslögum frá sleglum í heild um 60% (p<0,01). í fjórum sjúklingum af sex (66%) kom meðferðin í veg fyrir slegilhraðtakt (VT) og minnkaði heildartíðni VT samanlagt um tæp 80%, sem er

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.