Læknablaðið - 15.09.1988, Qupperneq 5
LÆKNABLAÐIÐ 1988; 74: 255-63
255
Þorsteinn Njálsson
SKRÁNING OG VINNSLA SAMSKIPTA Á
HEILSUGÆSLUSTÖÐINNI Á HÓLMAVÍK
1. JÚLÍ 1985 TIL 30. JÚNÍ 1986
ÚTDRÁTTUR
Grein þessi nær til eins árs skráningar á
Heilsugæslustöðinni á Hólmavík frá 1.7. 1985 til
30. 6. 1986. íbúar eru 983 og samskipti áttu
89,2% á þessum tíma, alls í 4974 skipti, eða 5,1
samskipti á íbúa. Lýst er aðferðum við skráningu
og uppsetningu Egilsstaðakerfisins (1) við
heilsugæslustöðina.
Hiklaust er hægt að segja, að Egilsstaðakerfið
hafi sannað gildi sitt. Það gefur kost á
skemmtilegri og aðgengilegri vandamiðaðri
sjúkraskrá ásamt möguleika á tölvufærslu. Víða
um land er nú þegar byrjað að safna upplýsingum
af samskiptaseðlum í tölvur og vonar
greinarhöfundur að þessi skrif verði læknum
hvatning til að skoða upplýsingasafn sitt og
jafnvel að koma því á framfæri.
INNGANGUR
í þessari grein er lýst hvernig komið er á
vandamiðaðri og tölvutækri skráningu samskipta
við sjúkraskýrslugerð á heilsugæslustöð,
svokölluðu Egilsstaðakerfi (1). Starf þetta var
unnið á heilsugæslustöðinni á Hólmavík í
Strandasýslu, sem er starfssvæði eins læknis með
tæplega 1000 íbúum. Skoðað er tólf mánaða
tímabil skráningar, mynstur samskipta, tilefna,
greininga og úrlausna. Notkun lyfja er skoðuð
sérstaklega. Viðfangsefnið gefur ótal möguleika
til að skoða og skilgreina starf á heilsugæslustöð.
Góð útfylling samskiptaseðla og síðan úrvinnsla
gefur lækni tækifæri til að meta starf sitt, gefur
færi á sjálfsgagnrýni og umræðum milli
samstarfsmanna, sem síðan hlýtur að koma fram
í betra og ánægjulegra starfi.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
I. Heilsugœsluumdœmið á Hólmavík tekur til
Strandasýslu norðan Bæjarhrepps, sem er syðsti
hreppur sýslunnar en vegna betri samgangna
kjósa íbúar hans að tilheyra
Hvammstangalæknishéraði. íbúar
læknishéraðsins 1. desember 1985 voru 983 (2).
Barst 25/04/1988. Samþykkt 01/07/1988.
Greinarhöfundur starfaði á Hólmavík frá
október 1984 til ágúst 1986.
Þéttbýliskjarnar eru tveir í héraðinu, Hólmavík
með 428 íbúa og Drangsnes með 111 íbúa.
Heilsugæslustöðin er á Hólmavík. Frá henni eru
um 70 km í syðstu byggð héraðsins en um 140 í
nyrstu byggð.
í héraðinu eru þrjár móttökur utan
heilsugæslustöðvarinnar. Fyrst er að nefna
heilsugæsluselið í Norðurfirði í Árneshreppi, en
þar var opnuð aðstaða fyrir lækni sumarið 1985.
Þjónar selið íbúum hreppsins, sem eru 145. Farið
er á þriggja vikna fresti og dvalið einn til tvo daga
eftir veðráttu. Þá er móttaka í Drangsnesi að ósk
íbúanna en um 40 km eru milli Hólmavíkur og
Drangsness. Farið er á tveggja vikna fresti og
dvalið einn eftirmiðdag. íbúar
Kaldrananeshrepps, sem sækja þessa móttöku,
eru 186. Veturinn 1985-86 var byrjað með
móttöku í Broddanesskóla að ósk tveggja syðstu
hreppanna, en þangað eru ríflega 40 km. Farið er
þangað mánaðarlega yfir vetrartímann. íbúar
þessara tveggja hreppa eru 129. Á Hólmavík er
stofumóttaka fjóra daga í viku, en fimmta daginn
er farið á fyrrnefndar heilsugæslumóttökur. Þá er
rétt að nefna að á Hólmavík er sjúkraskýli með
tólf rúmum, sem fyrst og fremst eru notuð til
aðhlynningar fyrir gamalt fólk, en gefa samt
tækifæri á innlögnum til minniháttar
aðhlynningar eða eftirlits, sem er einkar
hagkvæmt í svo stóru héraði. Sumarið 1985 var
tekin í notkun ný heilsugæslustöð á Hólmavík og
varð þá öll aðstaða til fyrirmyndar og starfið
léttist til muna.
II. Skráning. Á Hólmavík hafði skráning
samskipta verið í molum, vegna tíðra
mannaskipta um árabil, þar sem sumir reyndu að
skrá samskipti, en aðrir ekki. Fór
greinarhöfundur til Hólmavíkur með því
hugarfari, að koma lagi á skráningu og taka upp
svokallað Egilsstaðakerfi (1) við skráningu
samskipta, sem reynst hefur mjög vel víða um
land. Egilsstaðakerfið er vandamiðuð