Læknablaðið - 15.09.1988, Qupperneq 6
256
LÆKNABLAÐIÐ
sjúkraskýrsla, sem notast við samskiptaseðla til
skráningar og er á tölvutæku formi. Var unnið að
þessu með góðri aðstoð Péturs Péturssonar á
Bolungarvík, sem þá var héraðslæknir á
Vestfjörðum. Samskiptaseðlar, mynd 1, voru
strax teknir í notkun og vinna hófst við að semja
heilsuvandaskrár, sem eru efnisyfirlit
sjúkraskrárinnar og skráir heilsuvandamál
íbúans, gömul sem ný. Heilsuvandaskrár voru
unnar upp úr upplýsingum, sem fyrir lágu, þ.e.
læknabréfum og samskiptum, sem skráð höfðu
verið. Að kvöldi hvers starfsdags var farið yfir
sjúkraskýrslur þeirra, sem höfðu leitað til læknis
þann daginn og teknar saman heilsuvandaskrár.
SAMSKIPTASEÐILL
FÆÐINGARNÚMER
NAFN
HEIMILI
□ RAÐAÐUR TlMI □ SKYNDIKOMA □ VAKT
□ SlMTAL VIÐ □ SlMTAL VID □ VIÐTAL □ VIÐTAL VIÐ SJ MILLIG MANN ASTOFU MILLIG MANN □ VITJUN TIL SJ.
□ SAMA VITJUN □ VITJUN A ANNARS SJ SJÚKRAHÚS □ SAMRAÐS- KVAÐNING □ FÆRSLA AN SAMSKIPTA
DAGUR MAN AR KL HEILBRIGÐISSTARFSMAÐUR
TILEFNI FLOKKUN 1 1 1 1
LÝSING HEILBRIGÐISSTARFSMANNS
□ FRAMHALD A BAKHLIO
□ FARSOTT □ ATVSJD □ AUKAV.LYFS
GREINING
RADNUMER U J FLOKKUN I l-l II I l-l I
ÚRLAUSNIR 1. FLOKKUN I l-l I I I I I I
2. I l-l I I I I I I
3 ll-l I I I I I I
4. .. I l-l I I I I I I
Fig. 1. Communication note (1).
Að lokum voru allar skýrslur íbúa, sem ekki
höfðu komið, tíndar út og yfirfarnar á sama hátt.
Tók þetta starf ríflega þrjá mánuði. Á
samskiptaseðlunum er gert ráð fyrir að settir séu
kódar (1, 3) fyrir tölvufærslu tilefna, greininga og
úrlausna. Var tekin upp sú regla að læknir setti
kóda fyrir greiningar, en ritari fyrir tilefni og
úrlausnir. Gekk þetta starf mjög vel, en mikill
tími fór samt í þetta, sérstaklega að kynna sér
innihald og möguleika mismunandi kódunar (1,
3). Tímann frá því að notkun samskiptaseðla
hófst, þ.e. frá október 1984, til 1. júlí 1985 var
ákveðið að telja aðlögunartíma. Skilgreint úrtak
þessarar greinar nær til tólf mánaða,
1.7.85-30.6.86. Rétt er að undanskilja fyrstu
mánuðina, því þann tíma tók að vinna upp
skýrslur og mynda heilsuvandaskrár. Síðan tók
við þjálfun starfsfólks, þar sem smám saman var
bætt inn fleiri atriðum, eftir því sem þessu fleytti
fram.
Öll skráning fór fram á þann veg að
samskiptaseðill, mynd 1, var útfylltur fyrir hvert
erindi við starfsmann heilsugæslunnar, sem hafði
vægi (minniháttar erindi, sem nefnd voru
samhliða öðrum féllu framhjá skráningu).
Mikilvægustu liðir samskiptaseðils eru tilefni
samskipta (íbúa), greining (læknis) og úrlausnir
(rannsókn og meðferð). Innihald seðilsins var svo
vélritað á dagbókarblöð og seðlar geymdir til
síðari tölvufærslu. Allar rannnsókir og
upplýsingar af læknabréfum voru færðar á
samskiptaseðla. Sérstaklega var gætt að því, að
öll símtöl væru færð á samskiptaseðla, hvort
heldur var á símatíma eða vakt. Það verður að
teljast kostur við þessa upplýsingasöfnun, að
86,5170 samskipta voru í höndum eins aðila
(greinarhöfundar).
III. Vinnsla. Vinnsla fór fram á einkatölvu af
gerðinni Tandon PCX með tuttugu megabyta
hörðum diski. Landlæknisembættið útvegaði
Heilsugæsluforrit Egilsstaðakerfisins (1).
Greinarhöfundur og eiginkona hans slógu af
samskiptaseðlum inn í tölvuna.
IV. íbúar. Einstaklingar, sem féllu undir
skoðunarhópinn, voru allir þeir, sem skráðir voru
til heimilis á starfssvæðinu, en þar bjuggu, 1.
desember 1985, 983 einstaklingar í sjö hreppum
(2). í töflu I er sýnd skipting íbúa eftir kyni og
aldri til enda þess tíma, sem úrtak þessarar
greinar nær til. Þá er hlutfallsleg skipting milli
aldurshópa sýnd ásamt skiptingu landsmanna 1.
desember 1985 (2). Aldursskipting í héraðinu og á
landinu í heild er samkvæmt töflu I mjög áþekk.