Læknablaðið - 15.09.1988, Side 12
260
LÆKNABLAÐIÐ
Number (percentage)
Fig. 6. Six categoríes of solutions used in solving 8382 contacts.
Fig. 7. Thepatient’s reason on contacting, when the
contact wassolved with a prescription. Total number of
reasons were 2465.
Fig. 8. The structure of preventive practice from fig. 6,
929 contacts.
höfðu greininguna eða 9,7%. Alls voru 1439
erindi að baki þessum tíu greiningum í töflu IV
eða 27,6% af öllum skráðum erindum.
Algengustu greiningar aðrar en
sjúkdómsgreiningar voru læknisskoðun (WV70-)
923 skipti (17,7%), mæðraskoðun (WV220) 132
skipti (2,5%) og getnaðarvarnalyf (WV255) 83
skipti (1,6%). Samanlagt voru þessar þrettán
greiningar 2577 eða 49,4% af öllum skráðum
erindum.
Úrlausnir. Alls voru 8382 úrlausnir skráðar eða
að meðaltali 1,6 úrlausn/erindi. Helstu
úrlausnarflokkar eru dregnir saman á mynd 6.
Skoðum nánar þessa flokka.
I. Lyfjaávísanir. Lyf voru óneitanlega stór hluti
úrlausna eða 42% (3501 af 8382), en 2465 erindi
voru þarna að baki. Við hvert erindi, sem endaði
með lyfjaútskrift, var því að jafnaði ávísað 1,4
lyfi. Áður hefur komið fram að heildarfjöldi
erinda var 5217, þannig að i 47% tilfella lauk
erindi með útskrift á lyfi eða lyfjum. Yfirfært á
íbúafjölda héraðsins voru 3,6 lyfjaávísanir á
hvern íbúa. Enginn munur var milli karla og
kvenna í lyfjanotkun.
Mynd 7 sýnir skiptingu tilefnisflokka
lyfjaútskriftar og er sambærileg mynd 5, þar sem
sýnd er skipting allra tilefna hópsins. Tafla V
sýnir hverjar voru tíu algengustu greiningar við
lyfjaútskrift.
Tafla VI sýnir lyf, sem gefin voru, flokkuð
samkvæmt ATC-kerfi samanber íslensku
sérlyfjaskrána (4). Stærstu lyfjaflokkarnir eru
sýkingarlyf (án staðbundinnar notkunar) og
tauga- og geðlyf með 16,4% af
heildarávísunarfjölda hvor flokkur um sig. Næst
þeim koma hjartalyf 15,0%, öndunarfæralyf
14,5% og meltingarlyf 12,4%. {töflu VII má sjá
algengustu einstöku lyfin.
Rétt er að árétta að heildarnotkun lyfja verður
ekki metin á þennan hátt, þó að tilhneiging í
lyfjanotkun komi fram, heldur er hér talinn fjöldi
ávísana en ekki magn.