Læknablaðið - 15.09.1988, Qupperneq 40
280
LÆKNABLAÐIÐ
Niðurstöður gleypnimælinga er svo hægt að
reikna yfir í einingar (enzyme immunoassay units:
EIU) eftir formúlu, sem tekur tillit til gleypnigilda
prófsýnis og viðmiðunarsýna.
Túlkun á fjölda eininga er sem hér segir:
Undir 10 einingum...................neikvætt sýni
10-20 einingar.....................vafasvar
21-60 einingar....................lágjákvætt sýni
61-130 einingar......................jákvætt sýni
Yfir 130 einingar............hájákvætt sýni.
Öflun sýna. Sýni voru fengin úr blóðsýnasafni,
sem til var á Rannsóknastofu Háskólans í
veirufræði frá því 1979-1980, þegar miklu af
sýnum var safnað úr konum til mælinga á
mótefnum gegn rauðum hundum. Valin voru
blóðsýni úr tveimur aldurshópum kvenna, 139 úr
aldurshópi 27-32 ára og 137 úr aldurshópi 17-22
ára. Ekki var reynt að kanna búsetu- eða
atvinnusögu kvennanna.
Niðurstöður. Útkomur úr mælingum voru
skýrar, ekkert sýni mældist milli 10 og 20 eininga,
þ.e. vafasvar. Þrettán konur af 276 höfðu
mótefni eða 4,7%. Tafla I sýnir útkomu úr
hvorum aldurshópi fyrir sig.
Tafla I. Niðurstöður úr mœlingum bogfrymlamótefna l
sermi 276 kvenna.
Aldurshópar Fjöldi Jákvæð svör Hlutfall
17-22 ................... 137 6 4,4
27-32 ................... 139 7 5,0
Alls 276 13 4,7
Ályktað var, að aðferðin væri auðveld í
framkvæmd en efnið var hins vegar fulldýrt bæði
vegna þáverandi hárra tolla á rannsóknavörum og
lítilla möguleika á magnafslætti, þar sem
endingartími efnisins leyfði ekki kaup til prófa í
mörg ár. Nú hefur sýklarannsóknadeild
Landspítala hins vegar samið um kaup á efni í
sams konar próf frá öðru fyrirtæki á hagkvæmari
kjörum og eignast ljósgleypnimæli. Er deildinni
því ekkert að vanbúnaði lengur að mæla
bogfrymlamótefni í serum með ELISA-aðferð.
2. Mælingar í sýnum frá Landspítala á Statens
Seruminstitut 1981-1987
Efniviður. Á árunum 1981-1987 bárust tæplega
450 blóðsýni frá Landspítala til sýkladeildar með
beiðni um mælingar á mótefnum gegn
bogfrymlum. Á sýklarannsóknadeild voru sýnin
útbúin til sendingar á Statens Seruminstitut en
svarmiðar þaðan bárust viðkomandi
sjúkradeildum. Flest sýnanna (325) voru frá
kvennadeild og næstflest (103) frá barnadeildum.
Frá öðrum deildum Landspítala bárust 14 sýni,
svör fundust aðeins við átta þeirra og sýndu tvö
lág mótefni, hin engin. Verða engar ályktanir
dregnar af þeim sýnum og því ekki fjallað nánar
um þau.
Á kvennadeild gilda vinnureglur um það, úr
hvaða konum blóðsýni skuli send til mælinga á
mótefnum gegn bogfrymlum og eru þessar helstar
(5):
1. Úr konum, sem misst hafa fóstur tvisvar til
þrisvar eða oftar.
2. Úr konum, sem missa fóstur eftir 16. viku
meðgöngu.
3. Úr konum, sem fæða andvana barn.
Auk þess eru stundum send sýni úr konum, sem
fæða veikt eða vanskapað barn eða fæða fyrir
tímann. Þá kemur og fyrir, að send eru sýni úr
konum, sem bogfrymlamótefni hafa fundist hjá
áður.
Á barnadeildum eru ekki fastar reglur um
sýnatökur til mælinga á bogfrymlamótefnum,
heldur er tekið sýni ef læknir telur barn hafa
einkenni, sem gætu bent til bogfrymlasóttar (5).
Með leyfi yfirlækna kvennadeildar og
barnadeilda fletti annar höfunda (K.E.J.)
sjúkraskrám sjúklinga, sem þessar deildir höfðu
sent sýni úr. Af 325 sýnum frá kvennadeild
fundust svör við 279 (86%) og af 103 sýnum frá
barnadeildum fundust svör við 73 (71%).
Frá kvennadeild var mestur hluti þeirra sýna, sem
svör fundust við, úr konum sem misst höfðu
fóstur (um 73%), nokkur hluti úr konum, sem
fæddu andvana, vanheilt eða skammlíft barn (um
18%) og úr nokkrum voru sýni send af öðrum eða
ótilgreindum ástæðum (um 9%). Þessar konur
voru á aldrinum 16-43 ára, flestar 20-35 ára.
Frá barnadeildum voru um 60% sýna úr nýburum
með einhver veikindi, vanþrif eða vansköpun og
um 40% úr eldri börnum, flestum á fyrsta ári,
sem lögð voru inn vegna líkamlegs og/eða andlegs
vanþroska.
Flest sýnanna voru mæld með Sabin Feldman
litarprófi (SF) og mörg einnig með
komplímentbindiprófi (Kb) og/eða
glitmótefnaprófi (IFAT). Jákvæð voru talin sýni,
sem sýndu svörun í serumþynningu 1:10 eða
meira í Iitar- og glitmótefnaprófum og í þynningu
1:2 eða meira í komplímentbindiprófi.
Hvatatengt mótefnapróf (ELISA) hefur nýlega