Læknablaðið - 15.09.1988, Side 42
282
LÆKNABLAÐIÐ
Óljóst er hvort sýni eru send úr öllum konum,
sem fæða vanheil börn. Ekki eru heldur neinar
fastar reglur um sendingu sýna úr nýburum eða
eldri börnum, heldur farið eftir ýmsum
einkennum. Af svörum við sýnum úr börnum
fundust aðeins um 70%. Af þessari athugun er
því ekki heldur hægt að draga tölfræðilega
ályktun um algengi bogfrymlasóttar í nýburum
hér á landi. Hins vegar má teljast líklegt, að hún
sé sjaldgæf, þar sem ekkert barn fannst sýkt af
henni í þessum hópi.
3. Leit að bogfrymlasótt í sjúkraskrám
Landspítalans
Leitað var í sjúkdómaskrám lyflækningadeilda
Landspítalans árin 1970-1986 og fannst enginn
sjúklingur með greininguna bogfrymlasótt. Hins
vegar hafa tveir sjúklingar legið á
Borgarspítalanum eftir 1980 vegna þess sjúkdóms
(7). Varðandi sjúklinga á kvennadeild kom í ljós,
að kona, sem lág mótefni mældust hjá 1985,
hafði samkvæmt læknabréfi frá Sankti
Jósefsspítala, Landakoti legið þar á árinu 1980
vegna sjónhimnubólgu. Bogfrymlamótefni
mældust þá lágjákvæð og var því talið mögulegt,
að sjónhimnubólgan væri af völdum
Tafla III. Niðurstöður bogfrymlamótefnamœlinga I
sermi 108 fslendinga 1956 og aldursskipting þeirra. Sjá
texta.
Aldurshópar Fjöldi Jákvæð svör Hlutfal!
0-39 ..................... 84 6 7,1
40 ....................... 24 6 25,0
Alls 108 12 11,1
bogfrymlasýkingar. Ennfremur lá kona á
kvennadeild 1978 vegna nýrnasýkingar í þungun
og fékk auk þess sjúkdómsgreininguna: Obs.
toxoplasmosis antea. Hún hafði verið búsett í
Þýskalandi um tíma og 1975 eignaðist hún þar
barn, sem tekið var með keisaraskurði vegna
minnkandi fósturhreyfinga. Barnið dó 8 daga
gamalt. Samkvæmt krufningarskýrslu frá
Þýskalandi dó það úr bogfrymlasótt og fundust
útbreiddar skemmdir i heila, hjarta og lifur.
Tekið var fram, að konan hefði verið töluvert
veik á meðgöngutímanum.
Við leit í sjúkdómaskrám barnadeilda
Landspítalans árin 1958-1986 fannst eitt barn
með greininguna bogfrymlasótt, fætt i
októberlok 1979. Barnið og móðir þess höfðu
bogfrymlamótefni í þynningu 1:6.250 samkvæmt
SF litarprófi og bæði höfðu IgM mótefni í
þynningu 1:10. Þetta barn dafnaði vel og voru
ekki finnanleg nein sjúkleg einkenni á fyrsta
aldursári þess. Móðirin hafði verið lasin í tvær
vikur á 7. mánuði meðgöngu.
4. Áður birtar niðurstöður úr mælingum á
bogfrymlamótefnum í blóðsýnum frá islensku
fólki
1. Mcelingar í Bandaríkjunum. Árið 1956 birtist
grein eftir Feldman og Miller um
mótefnamælingar gegn bogfrymlum í fólki frá
ýmsum löndum, þar á meðal íslandi (8).
Höfundar höfðu fengið 108 íslensk blóðsýni frá
veirurannsóknastofu læknaskólans við Yale
háskóla (J. R. Paul og D. Horstmann), en þangað
hafa sýnin að öllum líkindum verið send til
mælinga á mótefnum gegn mænusóttarveirum.
Yfirlit yfir skráðar mcelingar bogfrymlamótefna í nokkrum hópum íslendinga.
Ár Mælistaöur Fjöldi Hlut- Höfundur
Aðferö Hópur jákv./alls fall heimild
1956 Bandaríkin Sabin-Feldman litarpróf börn og fullorðnir 12/108 n,i Feldman Miller (8)
1964 Danmörk Sabin-Feldman börn og fullorðnir 14/118 11,9 K.E.J. Siim (9)
litarpróf með hita í Bæjarsp. starfsm. sláturhúsa 8/22 36,4 K.E.J. Siim (9)
1981 England Sabin-Feldman litarpróf blóðgjafar 38/208 18,3 Woodruff (10)
1981-1987 Danmörk Sabin-Feldman konur af kvennadeild 20/279 7,1 K.E.J.
litarpróf og börn af barnadeild 5/73 6,8 núverandi rannsókn
Komplímentbinding IFAT, ELISA Landspitala
1984-85 ísland ELISA konur (sýnasafn 13/276 4,7 K.E.J.ogÓ.Á.
frá 1979) núverandi rannsókn