Læknablaðið - 15.05.1991, Page 36
198
LÆKNABLAÐIÐ
Fyrir alla bakteríustofna samanlagt var r=0.930. Munurinn
á aðferðunum var lítill, um 0.1 klst. að meðaltali (<5=0.4).
Þessar niðurstöður benda til þess að unnt sé að meta
eftirhrif sýklalyfja á einfaldari og fljótlegri hátt en hefur
verið gert með mælingum á C02-myndun baktería.
RAUÐMUNNAVEIKI í LAXFISKI - FYRSTA
GREINING Á ÍSLANDI
Höfundar: Bernharð Laxdal, Herdís Sigurjónsdóttir.
Tilraunastöð Háskóla Islands í meinafræði, rannsóknadeild
fisksjúkdóma, Keldunt
I júlí 1990 greindist rauðmunnaveiki í fyrsta skipti á
íslandi, á rannsóknadeild fisksjúkdóma að Keldum.
Rauðmunnaveiki, sem á ensku er nefnd Enteric Redmouth
Disease (ERM), er af völdum bakteríunnar Yersinia
ruckeri. Sýkillinn Yersinia ruckeri, sem er af ætt
iðrabaktería, veldur sjúkdómi meðal laxfiska í eldi og er
hann talinn vera landlægur í Norður Ameríku auk þess
sem rauðmunnaveikin hefur greinst víða í Evrópu, Suður
Ameríku, Afríku og Ástralíu.
Sjúkdómseinkennum verður lýst auk þess sem lífefna- og
lífeðlisfræðilegir eiginleikar bakteríunnar verða kynntir og
þeir bomir saman við erlenda Y. ruckeri stofna.
EINANGRUN APIGENÍN-7-0-GLÚKÓSÍÐS
ÚR ÍSLENSKUM VALLHUMLI (ACHILLEA
MILLEFOLIUM L.) MEÐ MEDIUM PRESSURE
LIQUID CHROMATOGRAPHY
Höfundar: Sigurlaug Einarsdóttir, Kristín Ingólfsdóttir.
Lyfjafræði lyfsala, Háskóla íslands
Rannsókn var gerð á efnasamsetningu fslensks vallhumals,
Achillea millefolium L., einkum með tilliti til terpen
sambanda í rokfimu olíunni og flavonóíð sambanda.
Flavonóíð sambönd em útbreidd innan jurtaríkisins og
hafa verið hagnýtt sem litarefni í matvæla- og lyfjaiðnaði
og sem skordýraeitur. Rannsóknir hafa sýnt að sum
flavonóíð geta haft krampalosandi verkun in vivo og
á síðustu ámm hafa rannsóknir sýnt athyglisverðar
æxlishemjandi verkanir flavonóíð sambanda.
Frumathuganir sem gerðar voru á efnainnihaldi vallhumals
með þunnlagsgreiningu (TLC) bentu til að flavonóíð
sambönd væm til staðar í plöntunni. Við einangrun
þessara efna var útdráttur (extraction) gerður á blómum
(600 g) með metanóli í Soxhlet búnaði. Metanól lausnin
var hreinsuð og síðan skilin með Medium Pressure
Liquid Chromatography (MPLC). Kíselgel var notað
sem burðarefni og skriðvökvi var blanda af klóróformi
og metanóli (65:35). Mörgum fraktionum var safnað og
úr tveimur þeirra var einangrað efni (30 mg) sem var
endurkristallað í metanóli og þurrkað. Til að ákvarða
efnabyggingu efnisins voru gerðar kjamarófsmælingar
(Nuclear Magnetic Resonance; NMR). Tekin vom
vetnisróf ('H NMR) og kolefnisróf (13C NMR). Einnig
var tekið tvívíddarróf (two dimensional NMR) og sýndu
niðurstöður að um apigenín-7-0-glúkósíð var að ræða.
GREINING INNIHALDSEFNA í ÍSLENSKRI
PURPURAHIMNU OG NYTJAÞÖRUNGI (NORI)
FRÁJAPAN
Höfundar: Guðhorg A. Guðjónsdóttir, Kristín
Ingólfsdóttir, Kristín Ingvarsdóttir. Lyfjafræði lyfsala,
Háskóla Íslands
Rauðþörungar af Porphyra ættkvísl em mikið nýttir
til manneldis í Japan og em seldir á Vesturlöndum,
meðal annars hér á landi, undir heitinu »nori«. Við
íslandsstrendur vex þömngur af Porphyra ættkvísl,
svokölluð purpurahimna (P. umbilicalis). Kynnt verður
aðferð sem þróuð hefur verið til að mæla askorbínsým
í íslenskri purpurahimnu og japönsku »nori« með
háþrýstivökvagreiningu (HPLC). Greining innihaldsefna
í þörungum með háþrýstivökvagreiningu er vandasöm
því í þörungunum er urmull efna sem hafa truflandi
áhrif. Niðurstöður mælinganna sýna að mikil sveifla er
á askorbínsýru innihaldi eftir því hvenær þömngurinn er
tíndur. Purpurahimna sem tínd var í júlí inniheldur um
10 mg/100 g en septembersýni inniheldur 170 mg/100
g. Askorbínsýruinnihald í japönsku »nori« sem selt er
hér á landi virðist breytilegt eftir sendingum, í einu sýni
mældust til dæmis 16 mg/100 g, en í öðru sýni frá sama
framleiðanda mældust 137 mg/100 g. »Nori« sem okkur
barst beint frá Japan inniheldur álíka mikið og íslenska
septembersýnið, eða 170 mg/100 g.
Kynntar verða niðurstöður fmmefnamælinga á japönsku
»nori« og íslenskri purpurahimnu. Talsverður munur er á
frumefnainnihaldi þömnganna tveggja. Til að mynda er
arsen innihald japanska þömngsins (33 ppm) margfalt
meira en í þeim íslenska (6 ppm) og langt yfir þeim
mörkum sem almennt gilda um hámarks leyfilegt magn
arsens í fæðu.
RANNSÓKNIR Á MJÚKRI AFLEIÐU STERA
(STABILITY AND PHARMACOKINETICS OF A
NOVEL SOFT CORTICOSTEROID)
Höfundar: Þorsteinn Loftsson, Whei-Mei Wu, Jöm
Dmstmp Larsen, Nicholas Bodor. Lyfjafræði lyfsala,
Háskóla Islands, Center for Drug Design and Delivery,
University of Florida, USA
Mjúk lyf eru líffræðilega virk efnasambönd sem brotna
niður í líkamanum, gjaman í einu skrefi, í óvirk
umbrotsefni, eftir að þau hafa haft tilætluð áhrif. Við
hönnun mjúkra lyfja er leitast við að einfalda umbrotsferla
þeirra og forðast myndun líffræðilegra virkra milli-
og umbrotsefna. Þannig er reynt að skilja lyfhrifin frá
eiturhrifunum og auka lækningastuðulinn (therapeutic
index). Ein aðferðin við hönnun á mjúkum lyfjum er að
samtengja afleiður af óvirkum (óeitmðum) umbrotsefnum
þekktra lyfja sem hafa svipaða byggingu og þau
(isosteric og isoelectronic). Þannig var óvirkt umbrotsefni
prednisólóns notað sem kjami við samtengingu á mjúkri
afleiðu barkstera (SC). Hópum var bætt á þennan kjama
þannig að bygging hans líktist lyfjum í flokki barkstera.
Jafnframt var veikbyggðu tengi komið fyrir í byggingunni
þannig að aðalniðurbrotsefni SC var hinn upphaflegi
kjami. Dreifing og útskilnaður (pharmacokinetic) SC vom
rannsökuð í rottum og kanínum. Auk þess var flutningur
SC í gegnum húð hárlausra músa mældur.
Niðurstöður rannsóknanna sýna að bólgueyðandi áhrif
SC eru sambærileg áhrifum betametasóns, en SC veldur
minni aukaverkunum en betametasón. Unnt er að auka
leysanleika SC í vatni með myndun SC-sýklódextrín-
komplexa. Stöðugleiki SC í vatnslausn er viðunandi.
í rottum er SC aðallega brotið niður í hinn upphaflega
kjama. Þessi óvirki kjami er mjög vatnssækinn og skilst
hratt út úr líkamanum. SC frásogast vel í gegnum lífrænar
himnur.