Læknablaðið - 15.05.1991, Qupperneq 49
LÆKNABLAÐIÐ
207
og Westem-blot til að Ieita að PrP í heilasýnum úr
sauðfé. Tilgangurinn var tvíþættur, annars vegar að
bæta greiningaraðferðina og hinsvegar ti! að athuga
dreifingu SAF/PrP innan heilans. Allar kindur, sem
höfðu dæmigerðar vefjaskemmdir reyndust SAF og PrP
jákvæðar og að auki kindur sem höfðu sjúkdómseinkenni
en engar vefjaskemmdir. Jafnframt fannst SAF og PrP
í nokkrum kindum sem hvorki höfðu sjúkdómseinkenni
né vefjaskemmdir. Þessar niðurstöður benda til þess að
SAF og PrP séu fyrir hendi áður en vefjaskemmdir og/eða
sjúkdómseinkenni koma fram og gætu því komið að haldi
við greiningu sýkingar á meðgöngutíma. Rannsóknir
okkar leiddu í ljós misdreifingu á PrP í heila. Mest fannst
af því í litla heila en mjög lítið í hvítu stóra heila. Þannig
skiptir það máli fyrir greiningu úr hvaða hluta heilans
sýnið er tekið.
SNÍKJUDÝRIÐ CRYPTOSPORIDIUM LANDLÆGT Á
ÍSLANDI
Höfundar: Matthías Eydal, Karl Skfrnisson, Sigurður H.
Richter. Tilraunastöð Háskólans í meinafræði að Keldum
Gródýrið Ctyptosporidium sp. er einfrumungur sem fer
í menn og dýr og sýkir einkum ungviði. Sníkjudýrið fer
í þekjufrumur í meltingarvegi, fjölgar sér þar og getur
valdið niðurgangi, ógleði, uppköstum, kviðarverkjum,
þyngdar- og vökvatapi. Smitun verður með saurmegnuðu
vami eða fæðu. Venjulega ganga sjúkdómseinkenni
yfir á um það bil viku en í einstaklingum með skertar
ónæmisvamir verða sýkingar oft þrálátar. Engin lyf eru
þekkt gegn Cryptosporidium.
Á tilraunastöðinni að Keldum fara fram greiningar á
sníkjudýrum í mönnum og í lok ársins 1985 var farið að
Ieita sérstaklega að Cryptosporidium í þeim saursýnum
sem berast. Síðan hafa fundist 15 tilfelli í mönnum.
Síðastliðið vor hófust rannsóknir á ungviði fjölmargra
dýrategunda víða um land. Alls hafa verið rannsökuð um
300 saurýni, mismörg eftir tegundum. Nú þegar hefur
Cryptosporidium fundist í kálfum, folöldum, lömbum,
hvolpum, kettlingum, minkahvolpum og kjúklingum, en
auk þess hafa verið skoðuð sýni úr grísum, landselskópum
og dúfnaungum.
Fyrirhugað er að rannsaka á næstu mánuðum fleiri sýni
og úr fleiri dýrategundum til að fá betra yfirlit yfir tíðni,
dreifingu og smitleiðir Cryptosporidium.
GREINING Á ARFGENGRI HEILABLÆÐINGU
MEÐ DNA FJÖLFÖLDUNARTÆKNI (PCR)
Höfundar: Sif Jónsdóttir, Magnus Abrahamson, Ástríður
Pálsdóttir, Anders Grubb, Óiafur Jensson. Erfðafræðideild
Blóðbankans, Klinisk Kemi deild, Háskólasjúkrahúsinu í
Lundi, Svíþjóð, líffræðistofnun H.f.
Arfgeng heilablæðing vegna cystatin C mýlildis
(amyloid) hefur ríkjandi erfðahátt og einkennist af
mýlildisútfellingum í mörgum vefjum líkamans.
Alvarlegustu afleiðingamar eru heilblæðingar vegna
mýlildisútfellinga í heilaæðum sem leiða í langflestum
tilfellum til dauða á aldrinum 20-40 ára.
Orsök þessa sjúkdóms má rekja til T-A punktbreytingar
í táknröð tvö (exon 2) í cystatin C geni sem staðsett er
á litningi nr. 20. Þetta stökkbreytta gen stýrir myndun á
afbrigðilegu cystatin C próteini sem hefur amínósýruna
glútamín (Gln) í stað leusín (Leu) í stöðu 68. Þetta
veldur því að cystatin C fellur út í vefjum í formi
mýlildisþráða. Hægt er að nema þessa stökkbreytingu
með skerðibútagreiningu, því við hana tapast skerðistaður
fyrir ensímið Alu I. Stökkbreytingin hefur nú fundist í níu
íslenskum ættum.
Fram til þessa höfum við beitt skerðibútagreiningu með
»Southem blotting« tækni til greiningar á arfgengri
heilabæðingu hjá sjúklingum og arfbemm. Nú höfum við
hins vegar þróað fljótvirkari og einfaldari greiningaraðferð
þar sem táknröð tvö í cystatin C geni ásamt aðliggjandi
svæðum hennar em fjölfölduð með PCR-tækni
(polymerase chain reaction) og síðan klippt með ensíminu
Álu I. Koma þá fram þrír DNA bútar 29, 70 og 176 bp
hjá einstaklingum með eðlileg cystatin C gen en arberar
með arfgenga heilabæðingu hafa að auki 205 bp bút.
Eitt hundrað og áttatíu einstaklingar hafa nú verið
skimaðir fyrir ofangreindri stökkbreytingu í cystatin C
geni með »Southem blotting« tækni og/eða PCR-tækni
og er þar með talin ein fósturgreining. Tuttugu og fjórir
sjúklingar og 10 einkennalausir ættingjar f áhættuhópi
reyndust vera með stökkbreytt cystatin C gen en 95
óskyldir einstaklingar, 11 makar og 40 ættingjar reyndust
hafa eðlileg cystatin C gen.
RANNSÓKN Á ARFGENGUM BLÖÐRUNÝRUM Á
ÍSLANDI MEÐ ERFÐATÆKNI
Höfundar: Ragnheiður Fossdal, Páll Ásmundsson,
Magnús Böðvarsson, Remi Spillaert, Ólafur Jensson.
Erfðafræðideild Blóðbankans, blóðskilunardeild
Landspítalans, líffræðistofnun H.I.
Um 21% sjúklinga hér á landi sem þurfa meðferð í
gervinýra em með arfgeng blöðmným (polycystic kidney
disease, PKDl). Þetta er ríkjandi erfðasjúkdómur sem
hefur breytilega sjúkdómsmynd innan sömu fjölskyldu en
flestir greinast með algjöra nýmabilun um 50 ára aldur.
Erfðaefnisrannsóknir erlendis hafa sýnt fram á tengsl
sjúkdómsins við litning 16, á svæði sem er um 3-4 miljón
basapör þráðhaftsmegin við alfa-globin genasvæðið á
styttri armi litningsins (16pl3.3). Sjúkdómsgenið er ekki
þekkt en með viðeigandi DNA þreifumm og Southem
blotting til greiningar á erfðabreytileika nálægt því
(RFLP), er hægt að fylgjast með hvemig meingenið og
aðliggjandi DNA þess erfist.
Rannsókn stendur nú yfir á arfgengum blöðmnýmm á
íslandi, þar sem athuguð em tengsl sjúkdómsins við svæði
á litningi 16 sem afmarkast af þreifumnum 3’HVR og
3-15. 3’HVR er einangraður af svæði, 8 kb (þúsund
basapör) frá alfal-globin geninu, sem hefur mikinn
erfðabreytileika vegna mismunandi fjölda endurtekinna
basaraða (VNTR). 3-15 þreifarinn þekkir breytileika á
DNA bút 4 milljón basabör þráðhafts megin við PKDl-
genið. Hann greinir einungis tvær arfgerðir. Sama gildir
um flesta aðra þreifara sem við notum og einangraðir
hafa verið af svæðinu. DNA var einangrað úr blóði 29
einstaklinga frá tveim fjölskyldum og em í þeim hópi átta
sjúklingar. I öllum tilfellum em greinileg tengsl 3’HVR
arfgerða við sjúkdóminn. Sama gildir um 2BP5, 218EP6,
41-1 og 3-15 þreifara þar sem arfblendni var til staðar.
Engin yfirvíxlun fannst milli arfgerða fyrmefndra þreifara
og sjúkdómsins.
Af rannsókninni hingað til má draga eftirfarandi álykanir: