Læknablaðið - 15.05.1991, Blaðsíða 54
210
LÆKNABLAÐIÐ
PTHrP: PEPTÍÐ SEM VELDUR HYPERKALSEMÍU
Höfundar: Þorvaldur Veigar Guðmundsson, Elín
Ólafsdóttir, Kristín Magnúsdóttir. Rannsóknadeild
Landspítalans, lífefnafræðistofa Háskóla fslands
Parathyroid Hormone related Peptide (PTHrP) líkist
parathyroid hormóni að virkni og að hluta tii byggingu og
dregur nafn sitt af því. Það er talið vera einn aðalvaldur
að HHM (humoral hypercalcemia of malignancy) og hefur
það verið einangrað úr nokkrum tegundum krabbameina.
Hjá heilbrigðum finnst það í húðfrumum (hlutverk
óþekkt), í fylgju og/eða fóstri, þar sem það er talið auka
kalsíum streymi til fósturs á meðgöngu. Einnig finnst það
í mjólk í miklu magni (/rM).
Hér er greint frá ákvörðun á PTHrP í mjólk, sermi
og legvatnssýnum. Notaður var pakki frá Peninsula
Laboratories og fengust svipaðar niðurstöður og aðrir hafa
greint frá.
Við höfum fengið mótefni frá þremur erlendum
rannsóknastofum gegn mismunandi hlutum PTHrP og
hafa þau verið notuð til uppsetningar á RIA og Delfia
mæliaðferðum. 1 RIA er peptíðið merkt I125 en sú aðferð
reyndist illa, þar sem peptíðið virðist missa bindigetu
við merkingu. Delfia mæliaðferðin byggir á merkingu
mótefnis með europium (Eu) og tókst sú merking vel.
Er nú unnið að útfærslu þeirrar mæliaðferðar.
SAMANBURÐUR Á MÓTEFNUM í HEILBRIGÐUM
LÖXUM OG í LÖXUM SÝKTUM AF KÝLAVEIKI
(.AEROMONAS SALMONICIDA UNDIRTEGUND
ACHROMOGENES
Höfundar: Bergljót Magnadóttir, Bjamheiður K.
Guðmundsdóttir
Bakterían Aeromonas salmonicida undirtegund
achromogenes veldur kýlaveiki í Iaxfiski og er vandamál
í íslensku fiskeldi eins og víða erlendis. Laxfiskar mynda
sérvirk mótefni gegn mótefnavökum kýlaveikibakteríunnar
en ónæmissvarið er veikara en til dæmis ónæmissvar
spendýra. Ástæðan er talin vera að hluta til vegna þess
hve ónæmiskerfi fiska er fmmstætt en einnig hefur
verið sýnt fram á að vissir mótefnavakar Aeromonas
salmonicida hafa bælandi áhrif á ónæmiskerfi fiska.
Sem liður í rannsóknum á ónæmissvari laxa gegn
mótefnavökum kýlaveikibakteríunnar var ákveðið að bera
saman heildarmagn mótefna, heildarmagn sermispróteina
og sérvirk mótefni tveggja sambærilegra hópa. Annar
hópurinn var heilbrigður en hinn hópurinn var frá stöð
þar sem kýlaveiki hafði verið viðloðandi vandamál um
árabil og fiskamir greinilega sýktir.
í ljós kom tölfræðilega marktæk hækkun á heildarmagni
mótefna og sermispróteins í sýktum laxi miðað við
ósýktan. Sérvirk mótefni gegn bakteríunni voru ekki
mælanleg í ósýkta hópnum en tæplega 50% af sýkta
hópnum hafði mælanleg sérvirk mótefni. Virknin var
hinsvegar í öllu tilfellum lág. Yfirleitt voru þau sermi
sem höfðu mælanlega sérvirkni, jákvæð gegn bæði
frumubundnum og utanfrumu mótefnavökum. I einstökum
fiskum var lítil tölfræðileg fylgni á milli heildarmagns
mótefnis og sérvirkni gegn mótefnavökum bakteríunnar.
Líkum er leitt að því að ósérvirk örvun á IgM
framleiðslu, sennilega af völdum bakteríunnar, geti átt
þátt í að bæla sérvirkt ónæmissvar.