Læknablaðið - 15.11.1992, Síða 29
LÆKNABLAÐIÐ 1992; 78: 373-8
373
Jakob Kristinssonl), Þorkell Jóhannesson, Ólafur Bjarnason2)
DAUÐSFÖLL AF VÖLDUM KOLOXÍÐEITRANA
AF ÚTBLÁSTURSLOFTI BIFREIÐA 1971-1990
INNGANGUR
Dauðsföll af völdum útblásturslofts bifreiða
eru velþekkt víða um heim. A þetta
ekki síst við í löndum, þar sem bílar eru
almenningseign (1-4). Heilbrigðisskýrslur
sýna, að hér á landi varð þessara dauðsfalla
ekki vart að neinu marki fyrr en um miðjan
sjöunda áratuginn. I ritgerð, sem birtist í
Læknablaðinu 1971 (5), var gerð grein fyrir
átta dauðsföllum sem urðu með þessum hætti
á árunum 1966-1970. I ritgerð þeirri, sem hér
fer á eftir, verður sagt frá 94 dauðsföllum til
viðbótar, sem urðu á tímabilinu 1971-1990.
Þar eð dauðsföllum af þessu tagi hefur fjölgað
mjög á undanfömum árum, þótti rétt að gera
grein fyrir þeim á þessum vettvangi.
EFNIVIÐUR
Efniviður rannsóknarinnar eru 94
einstaklingar, 85 karlar og níu konur, sem
létust á ámnum 1971-1990 úr koloxíðeitrun,
eftir að hafa andað að sér útblásturslofti
bifreiða. Fimmtíu og þrír þeirra fundust í
bifreið, þar sem útblásturinn hafði verið
leiddur inn í farþegarýmið gegnum slöngu en
fjörtíu í lokuðum bílskúr eða öðru húsnæði,
þar sem bifreið hafði verið skilin eftir í
gangi. Einn fannst í tjaldi, en útblástur
frá bifreið hafði verið leiddur inn í tjaldið
gegnum slöngu. Tveir þessara einstaklinga
voru með lífsmarki þegar að var komið.
Voru þeir fluttir í spítala, en létust þar
skömmu síðar. í 90 tilvikum var talið að
um sjálfsvíg hefði verið að ræða, en óljóst
var um fjögur. Meðalaldur hópsins var 40,6
ár. Yngstur var 16 ára piltur og elst 75 ára
gömul kona. Málum þessum var öllum vísað
af lögregluyfirvöldum til réttarlæknisfræðilegra
og réttarefnafræðilegra rannsókna í
rannsóknastofum í réttarlæknisfræði og
lyfjafræði við Háskóla íslands.
Frá 1)rannsóknastofu í lyfjafræöi, Háskóla íslands og
2)Ffannsóknastofu Háskólans viö Barónsstíg. Fyrirspurnir,
bréfaskipti: Jakob Kristinsson.
Fjöldi dauösfalla
Mynd 1. Dauðsföll af völdum koloxíðeitrana af útblœstri
bifreiða á Islandi á ttmabilinu 1971-1990. Svörtu súlurnar
sýna dauðsföll, sem komu til rannsóknar í rannsóknastofu
í réttarlœknisfrœði og rannsóknastofu í lyfjafrœði við
Háskóla Islands. Hvítu súlurnar sýna dauðsföll (fimm
talsins), sem voru af völdum koloxíðeitrunar samkvœmt
dánarvottorðum, en komu ekki til rannsóknar.
Ur dánarvottorðum (6) fengust upplýsingar
um aldur, kyn og dánarár fimm einstaklinga
til viðbótar, sem talið var að hefðu látist úr
koloxíðeitrun af útblásturslofti bifreiða. Eru
dauðsföll þessi sýnd á mynd 1 og tekin með
efniviðnum í töflum I og II. Að öðru leyti er
ekki um þau fjallað í þessari grein.
AÐFERÐIR
Koloxíðmettun blóðrauða var ákvörðuð
í öllum tilvikum. Var það gert með
ljósfallsmælingu í útfjólubláu ljósi (7). Einnig
var ákvörðuð þéttni etanóls í blóði og þvagi,
ef þvag var fyrir hendi. I málum, sem komu
til rannsóknar 1973 og síðar, var etanól
ákvarðað með gasgreiningu á súlu (8). I eldri
málum (fimm talsins) var það gert með ADH-
aðferð (9). í 27 tilvikum þótti ástæða til þess
að leita að öðrum lyfjum eða eiturefnum.