Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1994, Blaðsíða 6

Læknablaðið - 15.05.1994, Blaðsíða 6
170 LÆKNABLAÐIÐ EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Gögn: Gagnagrunnur frá tölvu Rannsóknarstofunnar í Domus Medica var nýttur til þessa verkefnis. Rannsóknarstofan býður upp á allar algengar rannsóknir í blóðmeina- og efnameinafræði og er opin öllum læknum til þjónustu. Þeir læknar sem senda sjúklinga sína reglulega á rannsóknarstofuna eru allir starfandi í Reykjavík eða nálægum þéttbýlisstöðum, annað hvort á eigin stofum eða heilsugæslustöðvum. Yfirgnæfandi meirihluti sjúklinganna kemur frá læknuin sem nota rannsóknarstofuna reglulega, annað hvort nær einvörðungu eða eftir hentugleikum sjúklings og ræður þá staðsetning valinu (19). Sjúklingar koma oftast sjálfir á rannsóknarstofuna en á einni læknastöð er blóð dregið á staðnum og sent þaðan. Fyrir hvern sjúkling sem kemur á rannsóknarstofuna eru færðar inn á tölvu upplýsingar um persónuauðkenni, aldur, kyn, búsetu, nafn læknis sem biður um rannsóknina, komudagsetningu og hvaða rannsóknir beðið er um. A rannsóknai'beiðninni verður að velja hverja skjaldkirtilsrannsókn fyrir sig svo ekki er mögulegt að velja neina fyrirfram gefna samsetningu. Þegar talað er um skjaldkirtilspróf í þessari grein er átt við eina eða fleiri þessara mælinga sem valdar hafa verið af lækni í hverju tilviki til mats á skjaldkirtilsstarfsemi sjúklings. Strax og hverri rannsókn er lokið er niðurstaðan skráð í tölvuna. Þegar öllum umbeðnum rannsóknum á sjúklingi er lokið er svar sent til læknisins, en það er jafnframt geymt á minnisdiski tölvunnar. Oll svör sjúklinga, annarra en vistmanna á elliheimilum eða öðrum stofnunum frá apríl 1989 til 31. desember 1990, voru rannsökuð afturskyggnt Aðferðir: Hormónamœlingar: Mæld skjaldkirtilshormón voru; thýroxín (T4), frítt thýroxín (FT4) og þríjoðthýrónín (T3) og einnig thýrótrópín (TSH). T4 var mælt með mótefnamæliaðferð (immunoassay) með Delfia flúrskins- mælingarefnum (immunofluorescence- reagents) frá Pharmacia-Wallac í Turku í Finnlandi. FT4 og T3 voru mæld með mótefnamæliaðferðum með ljómunar- mælingarefnum (immunoluminescence) frá Amersham International Ltd. í Englandi. TSH mælingin var svonefnd annarrar kynslóðar mæling (5), þar sern notuð eru að minnsta kosti tvö mótefni og annað einstofna, og síðan ljómunaraðferð (Amersham) við að inæla styrk merkts mótefnis og þar með styrk TSH í sermi. Þessi mæling nær að mæla efni niður í styrkleikann 0,04 mU/1, en viðmiðunargildi hennar fyrir normalt úrtaksþýði er 0,24 - 2,9 mU/1. Viðmiðunarmörk hormónamælinganna voru fengin frá framleiðanda og mælingum rannsóknarstofunnar á 60 manna úrtaki heilbrigðra og bar þessum mörkum vel saman. Við flokkun lækna í sérgreinahópa var farið eftir þekktum starfsvettvangi, en ekki sérfræðiviðurkenningu, færi það ekki saman. Urvinnsla var gerð í tölvu með ’Tnformix” gagnagrunni. Staðtölulegir útreikningar: T-próf stúdents var notað til þess að bera saman meðaltöl. Staðlað frávik meðaltals (standard error of the mean; S.E.M.) er notað, þar sem sýnd er dreifing um meðaltal nema annað sé tekið fram. NIÐURSTÖÐUR Sjötíu og sjö læknar, flestir heimilis- eða lyflæknar, höfðu sent að minnsta Table I. Specialities: Number aiul average professional age of doctors who iuid sent 100 patients or more. Speciality Number of doctors Mean professional age (years) General practitioners . . 32 18.9 Endocrinologists 4 22.0 Other internists . 18 23.6 cardiologists 11 others 7 Other doctors . 22 19.5 Gynecologists 7 Pediatricians 4 Others 11 Table 11. Number of thyroid profiles requesled and mean frequency (SD) of ttiyroid tests per visit. Number of Mean frequency thyroid (%) of thyroid Speciality test profiles tests per visit (SD) General practitioners . . 3687 17.7 (10.6) Endocrinologists . 1543 73.6 (6.4) Other internists . 1366 20.8 (13.6) Other doctors . 1078 16.1 (16.0)

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.