Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1994, Blaðsíða 27

Læknablaðið - 15.05.1994, Blaðsíða 27
LÆKNABLAÐIÐ 191 Mynd 3. Annar höfimda (S.D.) tveimur dögum eftir að safa úr selleríi hafði verið strokið á húð og hún stðan lýst með UVA-ljósi. Mynd 4. Annar höftmda (S.D.) einni viku eftir að safa úr selleríi Itafði verið strokið ú húð og hún síðan lýst með UVA-ljósi. UMRÆÐA Ljósertiexemi af völdum sellerís og sólarljóss (sólbaðstofu) hefur ekki fyrr verið lýst á íslandi þótt það sé þekkt erlendis. Sem dæmi má nefna húðbreytingar hjá selleríuppskerumönnum (5). Slæmu tilfelli hefur einnig verið lýst í Svíþjóð, þar sem kona nokkur borðaði soðna sellerírót og drakk síðan soðið (4). Kona þessi fór um klukkustundu síðar í ljósalampa. Fékk hún útbreiddan og slæman bruna með blöðrumyndunum. A sama hátt og sellen'uppskerumennirnir, fengu íslensku sjúklingarnir tveir staðbundinn annars stigs bruna þar sem safinn úr selleríplöntunum kom á húðina. Fyn i sjúklingurinn brann á mun stærra svæði en sá seinni, þar sem hann fékk mun meiri plöntusafa á húðina. Hjá báðunt þessum sjúklingum mátti sjá dæmigerð útbrot af völdum efnis sem strýkst við húðina. Við teljum að færðar hafi verið sönnur á að um ljósertiexem af völdum sellerís hafi verið að ræða með hinni dæmigerðu sjúkdóntsmynd og því að frainkölluð voru sams konar útbrot á S.D. með sams konar plöntum og sjúklingarnir höfðu handleikið. PUVA-bruni nær hámarki 48-72 klst. eftir geislun með UVA og er það í samræmi við tíinann sem leið frá UVA-geislun til hámarksbruna hjá bæði sjúklingum og S.D. Sellerí.er ræktað á fjórum til fimm stöðum á Islandi. Plönturnar eru fyrst hafðar í gróðurhúsum en eru fluttar út þegar líður á sumarið. Vitað er um að minnsta kosti tvö tilfelli þar sem litlir hópar íslenskra uppskerumanna fengu brunablöðrur á hendur og framhandleggi dagana eftir að þeir höfðu tekið upp sellerí (6). Til gamans má geta þess að í gamalli íslenskri garðyrkjubók er talað um að fólk geti fengið útbrot fái það á sig safa Bjarnarklóar (Heracleum Giganteum Hort.) sem er stór planta sem vex sums staðar í görðum á íslandi (7). Líklegt er að hér hafi verið lýst ljósertiexemi. Sufnar plöntur, þar á meðal sellerí, mynda psoralen í návist myglusveppsins Sclerotinia Sclerotiorum (8). Ekki er vitað hvort um slíka sýkingu var að ræða í þessarri sendingu af selleríi eða hvort innihald psoralen var óvenju mikið. Fremur lítið magn UVA fæst við sólbað á Islandi en gæti þó verið nægjanlegt til að framkalla Ijósertiexem í kjölfar þess að staðbundin ljósertandi efni svo sem sellerísafi hafi koinið á húðina. Sérstaklega ber að vara þá við sem snerta sellerí að forðast UVA- geislun í sólbaðstofum. SUMMARY We report two patients who were packing celery in the same supermarket. After work they went to a tanning parlour with UVA-sunlamps where they were irradiated for 18-20 minutes without first taking a shower. They had both used UVA- sunlamps before, without any adverse effects. On the following day a bad sunbum was observed on the skin of both patients were the celery had touched the skin. A third employee was known to have had a similar reaction but did not seek medical assistance. Photocontact dermatitis was produced in one of the authors (S.D.) by applying celery extract on the forearm and radiating with UVA-light. Photocontact dermatitis caused by celery and UVA- sunbeds is a well known phenomena but has not been described in Iceland before.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.