Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1994, Blaðsíða 37

Læknablaðið - 15.05.1994, Blaðsíða 37
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80: 201-209 201 Bjarni Jónsson UPPHAF ORÞÓPEDÍU Á ÍSLANDI Orþópedía er fræðin um kvilla og slys á stoð- og hreyfikerfi líkamans og meðferð þeirra. Enn hafa orðhagir Islendingar ekki fundið nafn á þessa grein, því bæklunarskurðlækningar er orð sem fólk mælt á íslenska tungu á bágt með að taka sér í munn. Hvers vegna skera orþópedar sig úr hópi annarra handlækna? Nú á tímum er þessi spurning líklega óþörf og svarið augljóst. Handlæknisfræði hefir þanist út svo geysilega - eins og læknisfræðin öll - að engum manni er fært að hafa þar yfirsýn að gagni. Hún hefir, af nauðsyn, klofnað niður í ýmsar deildir; þó stofninn sé einn eru greinarnar margar. Hvað skyldi þá hafa valdið því, að orþópedar tóku sig út úr hópi kírúrga svo snemma? Skyldi orsökin vera sú, að kírúrgar og orþópedar líta ekki mannslíkamann sömu augum og meðferð þeirra leggst í tvo farvegi? Kírúrginn lítur á Ifkamann sem samsafn af líffærum; þar eru lungu, magi og nýru og svo framvegis. Ef eitthvert þeirra veikist þarf að lækna það líffæri, einatt með skurðaðgerð. Sé botnlangi bólginn er hann tekinn, vilji sár í maga ekki gróa er tekið stykki úr inaganum; þegar því er lokið er lækningin búin. Orþópedinn lítur á manninn sem samsafn af liðum. Er þá ekki átt við liðamótin ein heldur einnig bönd og liðpoka utan um þau, vöðva og sinar sem hreyfa liðinn, og taugar sem stjórna vöðvunum alla leið ofan frá heila. Liðeining getur náð alla leið frá hvirfli til iljar. Þegar bein brotna skerðist starfsemi aðliggjandi liða. Ef lærleggjarháls brotnar hjá gamalli konu, þá segir fólkið ekki að lærbeinið hafi brotnað, það segir að hún hafi mjaðmarbrotnað og það er rétt; mjaðmarliðurinn er út úr spilinu. Eins er við brot á neðri sveifarenda, fólk segir ekki að viðkomandi hafi brotið þetta bein, það segir að hann hafi úlnliðsbrotnað. Stúdentum sem eru nýbúnir að læra líkamsfræði finnst þetta bera vott unt fáfræði almennings. Það er rangt. Skilningur fólksins á því hverju slysið olli er skarpari, og orþópedar hafa tileinkað sér þennan skilning. Meðferðartakmark kírúrgsins er líffærið, takmark orþópedsins er starfsemi limsins. Hjá kírúrgum er skurðaðgerðin oftast aðalatriði meðferðar. Hjá orþóped þarf oft skurðaðgerð, en hún er venjulega aðeins hluti af meðferðinni. Er þá einatt verulegur munur á viðhorli þessara tveggja flokka handlækna til sjúklinganna þó takmarkið sé það sama hjá báðum. Fyrstu skurðaðgerðir á krepptum liðum munu vera þverskurðir sina og vöðva (tenotomia, myotomia). Maður að nafni Strohmayer byrjaði á þeim á öndverðri nítjándu öld. Þegar hann hafði lagt stund á þær árum saman, lýsti hann þeirn loks í bók sem kom út 1838, og heíir ekki þurft að bæta um þær aðgerðir síðan. Var þá hægt að rétta margar kreppur, sem áður höfðu verið ólæknandi. Komust þessar aðgerðir í tísku og voru reyndar við fleira en þær ráða við, til dæmis hryggskekkju, og komu ekki að gagni þar. Nafnið orþópedía er eldra. Um miðja átjándu öld sendi frakkneskur maður - Andry - frá sér bók: "L’orthopédie ou l’Art de prévenir et de corriger dans les enfans les difformités du corps.” Hefir nafnið verið tekið upp í mörg ef ekki flest mál þó ekki sé bókin væntanlega mikil orþópedía í nútíma skilningi. Á seinni hluta 19. aldar var farið að koma upp stofnunum til þess að liðsinna bækluðu fólki, kenna því handverk og þjálfa það til starfa, og var þá fyrst og fremst hugað að börnum og

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.