Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1994, Blaðsíða 17

Læknablaðið - 15.05.1994, Blaðsíða 17
LÆKNABLAÐIÐ 181 Valaðgerðir eru aðgerðir sem eru áætlaðar og gerðar í þeim tilgangi að minnka sýruframleiðslu. Bráðaaðgerðir eru aðgerðir sem ber brátt að vegna fylgikvilla eins og blæðinga og holsára. Upplýsingar um mannfjölda voru fengnar hjá Hagstofu Islands. Meðalíbúafjöldi var reiknaður fyrir tímabilin 1971-75. 1976-80, 1981-85 og 1986-89, fyrir aldurshópana 0-49 ára, 50-69 ára og 70 ára og eldri, fyrir alla aldursfiokka og bæði kyn. Til að kanna staðtölulegan mun á tölum í töflu II, III og IV var notað kí-kvaðrat próf, 2 x 4 töflur með frímarki = 3. P<0,05 var talið marktækt. NIÐURSTÖÐUR Valaðgerð vegna sársjúkdóms var gerð á alls 786 sjúklingum (tafla I). Fjöldinn lækkaði um 82% milli fyrsta og síðasta tímabils. Alls voru gerðar 503 bráðaaðgerðir, 288 (57%) vegna holsára, 159 (32%) vegna blæðinga en ástæður 56 aðgerða (11%) voru aðrar. Engin marktæk breyting er á tíðni bráðaaðgerða þegar tekið er tillit til breytinga á fólksfjölda (tafla II). Tafla III sýnir hlutfall maga- og skeifugarnarsára fyrir rannsóknatímabilið og er engin marktæk breyting. Tafla IV sýnir kynjahlutfallið (karlar/konur) fyrir bráða- og valaðgerðir við maga- og skeifugarnarsárum. Hlutfallið lækkar í öllum flokkum miðað við tímabilið 1971-1975 en lækkunin er aðeins marktæk fyrir valaðgerðir. Tafla V sýnir meðaltíðni bráðaaðgerða á ári, fyrir aldurshópana 20-49 ára, 50-69 ára og 70 ára og eldri (fyrir 100.000 íbúa/ár), fyrir öll sjúkdómsnúmer sársjúkdóma í maga og skeifugörn. Vegna fárra aðgerða f hverjum hópi eru sveiflur milli tímabila nokkrar en heildartíðnin er sýnd í síðasta dálki í töflu V, sem tekur til allra sjúkdómsnúmera. Heildartíðnin er einnig sýnd á mynd I. Tíðnin hjá yngsta aldurshópnum fellur úr 27 (miðað við 100.000 íbúa/ár) árin 1971-75 í 12 árin 1981-89. Tíðnin hjá aldurshópnum 50-69 ára er nálægt 55 allan tímann. Hjá elsta aldurshópnum (70 ára og eldri) vex tíðnin mikið, úr 50 á árunum 1971-75 í 138 árin 1986-89. UMRÆÐA Rannsóknin hefur leitt í ljós þó nokkrar breytingar á tíðni aðgerða á Islandi vegna sársjúkdóms í maga og skeifugörn. Mest áberandi er fækkun valaðgerða frá 1976 í um það bil 18% af hámarksfjölda. Címetidín var skráð á Islandi árið 1976 og notkun H2- blokka og annarra lyfja við sársjúkdómi hefur verið stöðugt vaxandi í um það bil 20 DDD/1000 íbúa/dag árið 1990 sem er tvisvar til þrisvar sinnum meira en á hinum Norðurlöndunum (22). Tímabundin eða samfelld meðferð með H2-blokkum er orðin algengasta meðferð við sársjúkdómi. Heildartíðni bráðaaðgerða vegna blæðandi Table V. Mean incidence of operations for acute complications of peptic ulcer per 100.000/year according to age groups. Periods Age groups Duodenal ulcer Gastric ulcer Gastric and duodenal ulcer Other ulcers Total Without perforaton With perforaton Without perforaton With perforaton With and without perforaton 1971-75 20-49 3 13 5 5 26 1 27 50-69 11 11 11 20 53 5 58 70+ 7 9 23 6 45 5 50 1976-80 20-49 2 11 1 5 18 0 18 50-69 9 17 7 16 49 3 52 70+ 22 24 30 12 88 11 99 1981-85 20-49 2 5 2 2 11 1 12 50-69 9 25 15 7 55 1 57 70+ 12 31 24 22 89 7 96 1986-89 20-49 1 6 2 2 11 1 12 50-69 8 15 8 19 50 4 54 70+ 32 25 32 43 132 6 138

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.