Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1994, Blaðsíða 19

Læknablaðið - 15.05.1994, Blaðsíða 19
LÆKNABLAÐIÐ 183 líklega hefur útbreiðsla sársjúkdóms verið að breytast á íslandi á síðustu áratugum. Mest áberandi er sú fjölgun sem kemur fram í skeifugarnarsárum hjá konum. Þessi breyting hefur orðið á tveimur til þremur áratugum og má líklega rekja til breytinga í umhverfisþáttum og félagslegum áhættuþáttum. A þessu tímabili varð mikil breyting á lifnaðarháttum. Þátttaka kvenna í atvinnulífinu jókst úr 20% árið 1960 í 85% árið 1985 (27) á meðan framlag þeirra til heimilisstarfa minnkaði sennilega ekki. A þessu tímabili tóku konur upp ýmsa siði sem verið höfðu algengari meðal karla, svo sem reykingar, en þær jukust meðal kvenna úr 30% í 43% á árunum 1958-78 (28). Þessi rannsókn sýnir að lyfjameðferð hefur orðið aðalmeðferðin við sársjúkdómi á Islandi á níunda áratugnum. Þrátt fyrir mjög mikla notkun magasárslyfja hefur heildartíðni fylgikvilla sársjúkdóms haldist óbreytt. Astæðan er ef til vill sú að einungis um 30% þessarar lyfjanotkunar er við sársjúkdómi (23). Fækkun fylgikvilla hjá aldurshópnum 20-49 ára gæti verið vegna fyrirbyggjandi áhrifa viðhaldsmeðferðar með H2-blokkum, en lækkun á heildartíðni sársjúkdóms gæti einnig átt sinn þátt. Það er áhugavert að bera okkar niðurstöður saman við niðurstöður rannsókna frá hinum Norðurlöndunum. Norsk rannsókn (29) sýndi að í Bergen var tíðni aðgerða við holsárum nánast óbreytt allt tímabilið 1935-1990 eða 10/100.000/ár. Sænsk rannsókn (30) sýndi hins vegar að tíðni aðgerða við holsárum minnkaði úr 12,8 í 6,4/100.000/ár á milli áranna 1956 og 1986. Finnsk rannsókn (31) sýndi að tfðni aðgerða vegna holsára var á bilinu 2,3-7,5/100.000/ár árin 1977- 1989 og var engin marktæk breyting milli tímabila. I okkar rannsókn er meðaltíðnin 6,6-7,3/100.000/ár 1976-1989 og var heldur engin marktæk breyting milli tímabila. Sænska rannsóknin er sú eina sem sýnir lækkandi tíðni aðgerða, en tíðnin er svipuð í sænsku, finnsku og íslensku rannsókninni þegar sambærileg tímabil eru borin saman. Þessi samanburður sýnir að magasárslyf hafa ekki haft merkjanleg áhrif á tíðni aðgerða við holsárum á neinu Norðurlandanna. Tíðni aðgerða vegna blæðinga var einungis tilgreind í finnsku rannsókninni (31) og var hún 2,8-8,9/100.000/ár en í okkar rannsókn var meðaltíðnin 3,2-4,1/100.000/ár. í hvorugri rannsókninni kom fram marktæk breyting milli tímabila. Mjög erfitt er að meta raunverulega tíðni ætissára (ulcus pepticum) meðal þjóða. Ein ábending um tíðnina er fjöldi aðgerða við holsárum. Samkvæmt tölum sem tilgreindar eru hér að framan virðist tíðnin svipuð í Svíþjóð (30), Finnlandi (31) og íslandi, en hæst er tíðnin í Noregi (29). Það er því ekki hægt að skýra mikla notkun á magasárslyfjum á íslandi út frá hárri tíðni á ætissárum. Þrátt fyrir það að ekki hafi verið hægt að sýna fram á með vissu að magalyfin hafi fækkað bráðum fylgikvillum sára þá er vert að leggja áherslu á að þau hafa gerbreytt lífi sjúklinga með sársjúkdóm og þannig leitt til verulegrar fækkunar valaðgerða. ÞAKKIR Höfundar þakka ytírlæknum á handlækningadeildum fyrir aðgang að gögnum og læknariturum fyrir ómetanlega aðstoð við að finna þau. Vísindasjóður styrkti þessa rannsókn og einnig Glaxo á Islandi. SUMMARY The use of drugs for the therapy of peptic ulcers in Iceland is 2-3 times greater than in other Nordic countries. The purpose of this study was to assess the effect of this usage on the incidence of elective and acute operations for peptic ulcer. The first H:-blocker was introduced in Iceland in 1976. Data was collected from all the four hospitals in lceland where those operations were done for the years 1971-1989. The mean number of operations for peptic ulcer was calculated for 5 year periods and for the age groups 20-49, 50-69 and 70 years and older. Elective operations were 786 but the number decreased by 82% from the first to the last period. The acute operations for peptic ulcer were 503, 288 (57%) for perforations, 159 (32%) for hemorrhages and 56 (11%) for other incidences. While the overall incidence for acute operations remained unchanged there was a decrease among the youngest age group and an increase among the oldest age group. There was a decreasing time trend for the male/female ratio, especially for elective operations. Our conclusion is that the introduction of ulcer healing drugs has decreased the use of elective operations for peptic ulcer. The decreased incidence of acute operations among the

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.