Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1994, Blaðsíða 22

Læknablaðið - 15.05.1994, Blaðsíða 22
186 LÆKNABLAÐIÐ jafnframt 51% allra dauðsfalla af völdum eldsvoða sem urðu á tímabilinu (5). I hópnum voru 36 einstaklingar, 28 karlar og átta konur, á aldrinum þriggja til 74 ára. Var meðalaldur þeirra 45,3 ár. Þrjátíu og tveir létust í eldsvoða í íbúð eða öðru íveruhúsnæði, þrír um borð í fiskiskipi og einn á vinnustað. Koloxíðmettun blóðrauða og þéttni etanóls í blóði var ákvörðuð í öllum tilvikum. Koloxíðmettun blóðrauða var fundin með ljósfallsmælingu í sýnilegu ljósi (6) en þéttni etanóls með gasgreiningu á súlu eins og áður hefur verið lýst (7). Síðastnefnda aðferðin var þróuð á Rannsóknastofu í lyfjafræði árið 1972 með hliðsjón af aðferð Alan Curry og félaga (8). Ekki var leitað að öðrum lyfjum eða eiturefnum, nema þau kæmu sérstaklega við sögu. Er þannig stóð á voru þau oftast ákvörðuð með gasgreiningu á súlu eða vökvagreiningu. Samanburðarhópur I: Til þess að meta vægi koloxíðeitrana í dauðsföllum af völdum eldsvoða var koloxíðmettun blóðrauða borin saman við koloxíðmettun blóðrauða í dauðsföllum af völdum koloxíðeitrana af útblásturslofti bifreiða sem rannsökuð voru á tímabilinu 1971-1990 (9). 1 hópnum voru saintals 94 einstaklingar, 85 karlar og fjórar konur. Þremur einstaklingum var þó sleppt úr samanburðinum. Tveir þeirra höfðu hlotið meðferð á spítala og var koloxíðmettun blóðrauða við andlátið því lægri en ella. Einn var með bráða lungnabólgu sem talin var hafa átt þátt í dauða hans. Samanburðarhópur II: Við mat á ölvun og tíðni ölvunar voru til samanburðar tekin öll önnur banaslys sem vitað var að komið hefðu til rannsóknar í Rannsóknastofu í lyfjafræði á tímabilinu 1971-1990. Einstaklingum yngri en 15 ára og dauðsföllum af völdum eitrana var þó sleppt. í hópnum voru samtals 522 einstaklingar, 420 karlar og 102 konur, á aldrinum 15-76 ára. Etanól hafði verið ákvarðað í blóði allra þessara einstaklinga. Ekki hafði verið leitað að öðrum lyfjum eða eiturefnum í þessum efniviði nema þau kæmu sérstaklega við sögu. Farið var yfir krufningaskýrslur og athuguð lokagreining dánarmeins í hverju tilviki. Við tölfræðilega útreikninga voru notuð t-próf, kí- kvaðratpróf og línuleg aðhvarfsgreining (linear regression analysis). NIÐURSTÖÐUR Dreifing á niðurstöðutölum mælinga á koloxíðmettun blóðrauða alls hópsins er sýnd á mynd 1. Var hún á bilinu 0-84% og meðalgildi 53,5%. Tuttugu og tveir hinna látnu voru með verulega áverka af völdum bruna. Koloxíðmettun blóðrauða var þar á bilinu 0-70% og var í 10 tilvikum yfir banvænum mörkum (um 50%). Var talið að þessir einstaklingar hefðu ýmist látist af völdum bruna eða samverkandi áhrifum koloxíðeitrunar og bruna. Fjórtán hinna látnu voru hins vegar með litla eða enga áverka af völdum bruna. Var álitið að þeir hefðu látist úr koloxíð- eða reykeitrun eingöngu. Koloxíðmettun blóðrauða var í þessum tilvikum á bilinu 49-84% og meðalgildi 65,5%. Er það talsvert lægra en í samanburðarhópi I, en þar var koloxíðmettun blóðrauða á bilinu 47-87% og meðalgildi 73% (9). Munurinn er marktækur (t-próf, P<0,01). Roloxíðmettun blóðrauða virtist óháð þéttni etanóls í blóði í þessum 14 einstaklingum og eins í efniviðnum öllum (línuleg aðhvarfsgreining, P>0,5). Akvörðun á etanóli í blóði sýndu að 24 einstaklingar á aldrinum 19-67 ára höfðu neytt áfengis skömmu fyrir andlátið. Voru það 70,6% þeirra einstaklinga sem voru 15 ára og eldri. I samanburðarhópi II voru 197 með etanól í blóðinu (37,7%). Afengisneysla var þannig mun algengari meðal þeirra sem fórust í eldsvoða, en í samanburðarhópnum og er mismunurinn marktækur (P<0,001, kí-kvaðrat próf, df=l). Dreifing á niðurstöðutölum etanólmælinga í þeim sem höfðu etanól í blóðinu er sýnd á mynd 2. Var þéttni etanóls á bilinu 0,47-4,37%c og meðalgildi 2,34%c. Sextán einstaklingar voru með 2%c eða meira af etanóli í blóðinu. I samanburðarhónum var þéttni etanóls í blóði á bilinu 0,20-3,95%c og meðalgildi l,81%o. Marktækur munur var á meðalgildum hópanna (t-próf, P<0,01). í átta tilvikum þótti ástæða til þess að leita að lyfjum í líffærum hinna látnu. 1 ljós kom að tveir höfðu tekið lyf skömmu fyrir andlátið (asetýlsalisýlsýra, díazepam). Lyf þessi höfðu í báðum tilvikum verið tekin í lækningalegum skömmtum að því er best varð séð.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.