Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.05.1994, Qupperneq 32

Læknablaðið - 15.05.1994, Qupperneq 32
196 LÆKNABLAÐIÐ þeirra meira en 20.000 km árlega en 10,1% af samanburðarhópnum (p<0,0001). Langvinnir sjúkdómar og lyfjanotkun: Við tölfræðilegan samanburð á samanburðarhópi og ökumönnum var ekki um marktækan mun að ræða varðandi langvinnna sjúkdóma. I samanburðarhópi höfðu alls sex einstaklingar sögu unr sykursýki en þrír meðal ökumanna. Fimm voru flogaveikir í samanburðarhópi en fjórir meðal ökumanna. 1 samanburðarhópi höfðu 49 sögu um hjarta- og æðasjúkdóma en 15 meðal ökumanna. Notkun svefn- og róandi lyfja var sambærileg í báðum hópum. Einkenni um syfjusjúkdóma: Algengara var að ökumenn teldu sig ekki fá nægan svefn, eða 31,0% á móti 22,0% (p=0,002) (tafla III). Svarendur í eldri aldurshópum töldu sig oftar fá nægan svefn, bæði í samanburðarhópi (p=0,022) og meðal ökumanna (p=0,014) (tafla IV) en svör voru ekki háð kyni. Hrotur voru algengari í samanburðarhópi en 13,2% hrutu að staðaldri og 22,5% stundum, en sambærilegar tölur hjá ökumönnum voru 6,8% og 26,6% (p=0,01) (tafla III). Hrotur að staðaldri voru mun algengari (p=0,0001) meðal þeirra eldri, bæði hjá samanburðarhópi og ökumönnum (tafla V) og einnig meira en þrefalt algengari meðal karla en kvenna (p=0,0001). Dagsyfja var algengari meðal ökumanna en í samanburðarhópi (p=0,0005) (tafla III). Dagsyfja að staðaldri var algengust meðal þeirra sem voru undir 20 ára og yfir 50 ára í samanburðarhópi, en lang algengust meðal ungra ökumanna (tafla V). Dagsyfjan virðist heldur algengari meðal kvenna, en munurinn var ekki marktækur. Það voru alls 133 (17,9%) einstaklingar í samanburðarhópi sem lýstu bæði hrotum og dagsyfju en 65 (19,0%) meðal ökumanna. Aðaleinkenni drómasýki auk dagsyfju eru máttleysi við geðshræringu (cataplexy) og lömun og ofskynjanir í svefnrofunum. Bæði lömun og ofskynjanir í svefnrofunum voru algengari í yngstu aldurshópunum í báðum hópum, en jafn algeng rneðal karla og kvenna. Máttleysi við geðshræringu var aftur á móti nær þrefalt tíðara meðal kvenna en karla í samanburðarhópi (30,3% á móti 11,3%, p=0,0001). Máttleysi við geðshræringu var algengara í samanburðarhópi (p<0,03) en lömun í svefnrofunum (p<0,01) og ofskynjanir í svefnrofunum voru algengari (p<0,05) meðal ökumanna (tafla III). Alls reyndust 5,6% ökumanna hafa þrjú eða fleiri einkenni um drómasýki (samanber að ofan), en 3,5% í samanburðarhópi (p=0,15). Alls töldu 48 ökumenn (15,4%) að syfja hafi stuðlað að umferðarslysi því er þeir lentu í en 60 (19,1%) að þreyta væri þar valdandi. Af þessum 108 ökumönnum nefndu 37 einstaklingar bæði syfju og þreytu. Meðal ökumanna úr syfjuslysum eru einkenni um kæfisvefn og drómasýki algeng, en munurinn á þeim og öðrum ökumönnum er ekki tölfræðilega marktækur (tafla III). Alls höfðu fimm (10,4%) ökumanna úr syfjuslysum þrjú eða fleiri einkenni um drómasýki samanborið við 13 (4,9%) annarra ökumanna (p=0,24). Ökumenn töldu sig oftar næstum sofnaða við stýrið heldur en samanburðarhópur (p=0,003) (tafla III) og þeir sem lent höfðu í syfjuslysi voru einnig marktækt (p=0,03) oftar með slíka sögu. Áfengisneysla: Það voru fleiri í samanburðarhópi sem ekki neyttu áfengis (27,7%) heldur en meðal ökumanna (19,4%) (p=0,0047). Þessi munur er þó ekki marktækur ef eingöngu eru bornir saman þeir sem eru undir 30 ára aldri (16,9% á móti 14,3%, p=0,5) og hverfur alveg ef eingöngu eru bornir saman karlar á ofangreindum aldri (14,1% á móti 13,7%, p=0,9). í heildina svöruðu ökumenn fleiri CAGE spurningum jákvætt og svöruðu alls 14,3% þeirra þremur eða fjórum CAGE spurningum jákvætt miðað við 6,3% úr samanburðarhópi (p=0,0001) (tafla III). Karlar svöruðu oftar en konur (p<0,0001) þremur eða fjórum CAGE spurningum jákvætt bæði í samanburðarhópi (9,7% á móti 3,3%) og meðal ökumanna (19,2% á móti 2,9%). Þeir ökumenn sem töldu að syfja hefði stuðlað að umferðarslysinu svöruðu þessum spurningum nær helmingi oftar jákvætt en aðrir ökumenn (p=0,OI4) (tafla III). Tafla VI sýnir að áfengissýki er nær fimmfalt algengari meðal ökumanna undir tvítugu en meðal sama aldurshóps úr samanburðarhópi og einnig er um verulegan mun að ræða hjá þeim eldri. Þeir ökumenn sem svöruðu jákvætt þremur eða fjórum CAGE spurningum og töldu sytju hafa átt þátt í slysinu (n=12) (tafla III) voru flestir á aldrinum 20-29 ára (tafla VI). Logistísk aöhvarfsgreining: Frumbreytan var

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.