Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.1995, Side 6

Læknablaðið - 15.12.1995, Side 6
842 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81: 842-4 Ritstjómargrein Vísindin í vinnulagið (Evidence based medicine) Á tímum gífurlegra framfara í læknisfræði er ljóst að það er nær ógjörningur fyrir einstaka lækna að vinsa úr öllum þeim fróðleik sem birtist á ári hverju í um 25.000 læknisfræðitíma- ritum víðs vegar um heim. Á sama tíma eru gerðar auknar kröfur til lækna og annarra að fylgjast með framförum og að leitast við að beita ætíð nýjustu og bestu þekkingu sem völ er á í læknisfræði. Pað er því full ástæða til að vekja athygli íslenskra lækna á nýju tímariti í læknisfræði, Evidence-Based Medicine. Linking Research to Practice, sem gefið er út á vegum ameríska læknafélagsins og British Medical Journal for- lagsins (1). Tilgangur blaðsins er að birta úrval samantekta eða greina innan kvensjúkdóma- og fæðingarfræði, lyf-, skurð-, geð-, barna- og heimilislækninga, sem eru vel gerðar og líkleg- ar til þess að gagnast í klínískri vinnu. Því miður hefur það gerst allt of oft í sögu læknisfræðinnar að læknar hafi beitt læknis- meðferð sem byggðist á trú á ágæti hennar án þess að fyrir lægju upplýsingar eða rannsóknir um að hún gerði eitthvert gagn. Má hér nefna blóðtöppun til lækninga fyrr á öldum. Einnig eru þess mörg dæmi að rannsóknir um gagn- semi meðferðar liggi fyrir en hafi ekki komist til skila. Árið 1753 lágu fyrir rannsóknir á því að sítrónur og appelsínur væru góðar við skyr- bjúg. Engu að síður liðu um 40 ár áður en menn byrjuðu að hagnýta sér þessa þekkingu. Slíkt getur þó verið skiljanlegt með tilliti til lélegs upplýsingatlæðis á þeim tímum. En nú á tímum er ekki skortur á miðlun, heldur þvert á móti. Sannanir um gagnsemi streptókínasa- meðferðar við bráðri kransæðastíflu lágu fyrir um 10 árum áður en meðferðin var almennt tekin notkun. Skýringin á þessari seinkun var að hluta til sú.að fyrri rannsóknir voru byggðar á fáum sjúkratilfellum sem gáfu litla ntark- tækni. Ótvíræð vissa kom því ekki í ljós fyrr en beitt var svonefndri meta-analýsu, þar sem slegið var saman niðurstöðunr fyrri rannsókna. Rannsóknir sýna að sterameðferð við yfir- vofandi fæðingu fyrir tímann minnkar líkur á fylgikvillum barns og móður og minnkar kostn- að við meðferð (2). Engu að síður hefur gætt nokkurrar tregðu víða unr heim að taka upp þessa nteðferð (3). Oft og tíðum hefur það einnig tekið allt of langan tíma að hætta við einhverjar rannsóknir eða aðgerðir sem búið var að sanna að gerðu ekkert gagn. Upp úr 1970 voru komnar nægar sannanir fyrir því að enginn tilgangur væri að rannsaka þvag hjá frískum einkennalausum skólabörnum. Engu að síður var þessum ávana haldið áfram hér á landi langt fram á níunda áratuginn. Ljóst er að hér var því sóað tíma og fjármunum í óþarfa. Auk þess er líklegt að fjöldi barna hafi verð settur á lyfjameðferð að nauðsynjalausu vegna þessara rannsókna. Leitin að bestu þekkingu sem völ er á á hverjum tíma er að sjálfsögðu ekki ný af nál- inni. Evidence based medicine er ætlað að sam- eina rannsóknarstarfsemi og önnur gæðaþró- unarverkefni sem unnið hefur verið að undir ýmsum nöfnum, svo sem quality assurance, practice guidelines, audit og continuing medical education (3-6). Evidence based medicine fjall- ar því ekki eingöngu um vísindi heldur um ákveðið vinnuferli eða vinnulag sem æskilegt er að læknar tileinki sér og beiti á starfsævi sinni. Þar er lögð rík áhersla á að fara ekki eftir geðþótta eða völdum einstakra fræðimanna, heldur er unnið eftir kerfisbundinni samvinnu hóps, sem tileinkar sér ákveðin vinnubrögð. Aðferðin er í grófum dráttum eftirfarandi: Vandamálum sem upp koma í klínískri vinnu er forgangsraðað og breytt íspurningar. Dæmi (3): Læknar á stofugangi ræða um það sín á

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.