Læknablaðið - 15.12.1995, Side 13
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
847
Number
of children
Perforatio bulbi Contusio bulbi Eyelid trauma Minor injuries
Fig. 2. Type of eye injuries in 1984-1988 and 1989-1993.
Fig. 3. Children with eye injuries 1984-1988 and 1989-1993
divided into four age groups.
Number
of children 6
öj ----
5-
■ 1984-1988
□ 1989-1993
6
4
Perforatio bulbi
3 3
Í1 0 11.
Contusio bulb Eyelid trauma Minor injurics
Fig. 4. Type ofeye injuries in children one to four years old,
the years 1984-1988 and 1989-1993 compared.
tímabilinu hlutu 22 gat á auga en á seinna
tímabilinu 13. Fimm fengu sjónhimnulos og
fjögur ský á augastein í kjölfar áverkans.
B. Augnmar (contusio oculi) (51%). Sextíu
og átta börn fengu augnmar, af þeim voru 58
með blæðingu í forhólfi. Fimm þeirra fengu
endurblæðinu í forhólfi, þrjú tveimur dögum
eftir áverka, eitt daginn eftir og hjá einu tví-
blæddi tveimur og fjórum dögum eftir áverk-
ann. Tvö af þessum börnum þurftu á skurðað-
gerð að halda til að tæma blóð úr forhólfi og
létta þannig á hækkuðum augnþrýstingi. Hjá
sex börnum er lýst blæðingu í afturhólf augans.
Á fyrra tímabilinu fengu 45 augnmar en 23 á
seinna fimm ára tímabilinu. Fjögur börn fengu
ský á augastein í kjölfar áverkans og eitt barn
fékk gláku.
C. Augnlokaáverkar (14%). Alls hlutu 19
börn augnlokaáverka, þar af voru níu einnig
með áverka á táragöngum. Á fyrra tímabilinu
voru níu með augnlokaáverka en 10 á seinna
tímabilinu.
D. Minniháttar áverkar (8%). Minniháttar
áverkar voru 11, átta á fyrra tímabilinu en þrír á
því seinna. Undir minniháttar áverka flokkast
aðskotahlutur og sár á hornhimnu ásamt bruna
á yfirborði auga. Mynd 2 sýnir að öllum teg-
undum augnáverka hefur fækkað nema augn-
lokaáverkum sem hafa nálega staðið í stað.
Orsakir augnáverka: Tafla II sýnir að flest
slysin verða við leiki og þeim slysum hefur
fækkað mest. Fjöldi slysa við íþróttir stendur í
stað á þessum tveimur tímabilum. Fjögur börn
slösuðust í boltaíþróttum, þrjú í sundi og fjögur
á skíðum. Nokkra athygli vakti að af þeim 68
einstaklingum er hlotið höfðu augnmar á fyrra
tímabilinu höfðu 12 (26,7%) slasast af skotum
úr túttubyssum. Á seinna tímabilinu fengu tvö
börn augnmar af völdum túttubyssuskota
(8,7%). Voru því alls 14 áverkar vegna túttu-
byssa, sem er 20,6% af þeim sem fengu augn-
mar.
Þrjú augnslys á börnum urðu af völdum flug-
elda á hvoru tímabili fyrir sig eða sex alls.
Alls voru níu slys vegna ofbeldis, sjö á fyrra
tímabilinu en tvö á því síðara.
Mun fleiri alvarleg augnslys voru 1984-1988,
eða hjá 84 börnum (63%), samanborið við 49
börn (37%) er hlutu alvarlegan áverka á síðara
tímabilinu. Skipting í aldurshópa á þessum
fimm ára tímabilum sýnir að fækkun er í öllum
aldurshópunum nema yngsta, eins til fjögurra
ára (mynd 3). Mynd 4 sýnir tegundir augn-
áverka hjá yngsta aldurshópnum. Fleiri börn
komu á síðara tímabilinu en því fyrra með gat á
auga, augnmar og augnlokaáverka. Þessi slys
urðu heima og við leik.