Læknablaðið - 15.12.1995, Blaðsíða 51
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
879
cillín ónæmi hefur fundist hér,
en ekki náð fótfestu. Vankó-
mýcín ónæmi og algert amínó-
glýkósíð ónæmi hafa hins vegar
ekki fundist á íslandi.
Haemophilus
Ekki er lengur gert næmis-
próf fyrir klóramfeníkóli. í
staðinn er næmi tetracýklína at-
hugað. Fjöldi stofna sem mynda
P-laktamasa hefur farið sívax-
andi og er nú kominn yfir 20% á
höfuðborgarsvæðinu. Prátt
fyrir það eru ekki gerð næmis-
próf fyrir amoxicillíni með kla-
vúlan sýru. Astæðan er sú að
þau næmispróf gefa ekki áreið-
anlega niðurstöðu (sjá nánari
lýsingu aftar). H. influenzae er
nánast alltaf ónæmur fyrir er-
ýtrómýcíni og roxítrómýcíni, en
getur verið næmur fyrir azítró-
mýcíni og klarítrómýcíni. Hægt
er að biðja sérstaklega um næm-
ispróf fyrir þessum lyfjum.
Gram neikvæðir
(kólí-líkir) stafir
í fyrstu er næmi athugað fyrir
sex sýklalyfjum. Ef um fjöl-
ónæman stofn er að ræða, þá er
næmi athugað fyrir sex sýkla-
lyfjum til viðbótar. Ekki hafa
verið gerðar miklar breytingar,
en lyfjum hefur aðeins verið
víxlað með tilliti til þess hvaða
lyf eru prófuð fyrst og hvaða lyf
síðar. Sérstök lyf eru valin fyrir
Salmonella og Shigella (ampi-
cillín, súlfatrímetóprím, cípró-
floxacín, klóramfeníkól og cef-
tríaxón).
Súlfónamíð og
trímetóprím
Hætt hefur verið við að at-
huga næmi fyrir súlfónamíðum
og trímetóprími í sitt hvoru lagi
nema við þvagfærasýkingar (þá
trímetóprím). Astæðan er sú að
það skortir viðmiðunarstaðla
fyrir þessi lyf frá NCCLS fyrir
sýkingar annars staðar en í
þvagfærum. í staðinn er athug-
að næmi fyrir súlfa-trímetóprím
blöndunni. Rétt er að geta þess
að ónæmi er orðið útbreitt fyrir
þessum lyfjum hjá þeim sýklum
sem oftast valda öndunarfæra-
sýkingum (pneumókokkum og
H. influenzae). Þessa lyfja-
blöndu ætti því ekki að nota sem
fyrsta lyf við öndunarfærasýk-
ingum, auk þess sem þau gætu
aukið enn á tíðni penicillín
ónæmra pneumókokka (3).
Amoxicillín með
klavúlan sýru
Ekki er athugað næmi Haem-
ophilus og Staphylococcus fyrir
þessari lyfjablöndu. Hins vegar
er auðvelt að segja til um næmi
þessara sýkla fyrir blöndunni.
Ef Haemophilus (eða Branha-
mella/Moraxella) er næmur
fyrir ampicillíni, þá er að sjálf-
sögðu einnig næmi fyrir amoxi-
cillín-klavúlan sýru blöndunni
og sömuleiðis ef ónæmið stafar
af penicillínasa myndun (sem
klavúlan sýra hemur). Aðeins
ef ónæmi er fyrir cefúroxími og/
eða ampicillíni án þ-laktamasa-
myndunar, má búast við ónæmi
fyrir amoxicillín-klavúlan sýru.
Oxacillín/meticillín segir fyrir
um næmi fyrir amoxicillín-kla-
vúlan sýru hjá stafýlókokkum.
Það er eitt af markmiðum
sýklafræðideildarinnar að veita
bestu þjónustu sem aðstæður
leyfa. Vinsamlegast hafið því
samband við lækna sýklafræði-
deildarinnnar ef eitthvað er
óljóst eða ef þið teljið einhverj-
ar breytinganna vera til hins
verra.
Heimildir
1. Kristinsson KG. Um sýklalyf, svkla-
lyfjamælingar og túlkun næmisprófa.
Læknablaðid 1990; 76: 211-6.
2. Woods GL, Washington JA. Antim-
icrobial susceptibility tests: dilution
and disk diffusion methods. In: Murr-
ay PR, Baron EJ, Pfaller MA, Tenover
PC, Yolken RH, eds. Manual of Clin-
ical Microbiology. 6th ed. Washing-
ton: Society for Microbiology, 1995:
1327-41.
3. Arason VA, Kristinsson KG, Sigur-
dsson JA, Gudmundsson S, Mölstad S,
Stefansdottir G. The effect of antim-
icrobial use on carriage of penicillin
resistant pneumococci. Interscience
conference on Antimicrobial Agnets
and Chemotherapy. Orlando: Amer-
ican Society for Microbiology, 1994:
85.
Karl G. Kristinsson,
Ólafur Steingrímsson
sýklafræðideild Landspítalans
Arshátíð LR 1996
Árshátíð Læknafélags Reykjavíkur verður
haldin laugardaginn 20. janúar á Hótel Sögu.
Nánar auglýst í janúarhefti Læknablaðsins.